Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2015, Síða 17

Skessuhorn - 13.05.2015, Síða 17
17MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Stafrænn röntgenlesari hefur ver- ið pantaður á heilsugæslustöðina í Búðardal. Halla Steinólfsdótt- ir, bóndi í Ytri-Fagradal á Skarðs- strönd, hafði forgöngu um að ljúka söfnun fyrir lesaranum meðal sveitunga sinna eftir að hafa orð- ið fyrir óhappi og þurft að reyna á eigin skinni hve seinlegt getur ver- ið að fá niðurstöður úr röntgen- myndatöku í Búðardal. Því ákvað hún að blása til söfnunar með áskorun sem hún birti á facebook- síðu sinni og sagt var frá í síðasta Skessuhorni. Örfáum dögum síðar hafði nægt fé safnast og var lesar- inn pantaður mánudaginn 4. maí. „Það er búið að panta kvikindið!“ sagði Halla glöð í bragði þegar blaðamaður Skessuhorns talaði við hana undir lok síðustu viku. „Ég er alveg rosalega sátt við þetta og sátt við hana Þorbjörgu, svarta sauðinn sem stökk á höndina á mér. Hún er líka mjög sjálfstæð og átti ekkert að vera fengin en hrútarnir sluppu í og síðan gerðist þetta,“ segir Halla. „Reyndar ber að geta þess að Lionsklúbburinn var byrjaður að safna fyrir svona lesara. Það gekk eitthvað hægt og vantaði herslumuninn upp á, þannig að málið lá niðri. „En ég er mjög ánægð með að búið sé að panta tækið og vil þakka þeim sem gáfu og brugðust við. Efst er mér í huga að þetta sé væntanlegt þann- ig að það sé ekki mismunun eftir búsetu. Svo veit ég til að það vant- ar svona tæki í Grundarfjörð og ég vil skora á sveitunga þar að fá sér svona,“ segir Halla og hlær við, en gamninu fylgir þó nokkur alvara. „Það er ónýtt að hafa ekki svona á öllum heilsugæslustöðvum. Það er hægt að nota þennan búnað við röntgentækin sem eru þar fyrir.“ kgk Í byrjun þessa mánaðar tóku gildi nýjar reglur á kvennadeild Land- spítalans í Reykjavík. Samkvæmt þeim mælast ljósmæður og læknar til þess að eingöngu sé einn ein- staklingur auk móður viðstaddur hverja fæðingu, auk þess sem heim- sóknartími til sængurkvenna hefur verið takmarkaður. Að sögn Önnu Björnsdóttir deildarstjóra kvenna- deildar HVE eiga þessar nýju regl- ur eingöngu við á Landspítala- num en ekki á fæðingadeild HVE á Akranesi. „Hér mega að hámarki tveir vera viðstaddir hverja fæðingu og þannig hefur það verið í nokk- ur ár.“ Heimsóknartími til sængur- kvenna hefur ekki verið takmarkað- ur á HVE en ætlast er til að sýnd sé tillitsemi og að heimsóknum sé haldið í lágmarki. Þá eru heim- sóknir barna yngri en 12 ára ekki leyfðar nema um systkini barnsins sé að ræða. grþ Tveir mega vera viðstaddir fæðingu Stafrænn röntgenlesari væntanlegur í Búðardal Halla Steinólfsdóttir, bóndi í Ytri- Fagradal. 17. maí. klukkan 19:15 Lestu um það um leið og það gerist ÍA - Víkingur R. í beinni á vef Skessuhorns WWW.SKESSUHORN.is TEXTALÝSING! veit á vandaða lausn FA S TU S _F _2 2 .0 5 .1 5 MEÐ ALLT Á HREINU Í ÞVOTTAHÚSINU NÝ LÍNA FRÁ ELECTROLUX Öflugt par fyrir litlar ferðaþjónustur, fyrirtæki og stærri heimili. Mikill orkusparnaður felst í MYpro VERÐ KR. Þvottavél 280.500,- án vsk. Þurrkari 210.400,- án vsk. Verið velkomin í verslun okkar að Síðumúla 16, 2.h. Opið mán - fös 8.30 - 17.00

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.