Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 29
29MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Útskriftargjafir
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
@home
Erum á Facebook:
Í síðustu viku var mælt fyrir frum-
varpi á Alþingi um breytingu á lög-
um um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum. Flutningsmenn
voru 16 þingmenn úr Samfylkingu,
Bjartri framtíð og Pírötum en fyrsti
flutningsmaður er Helgi Hjörv-
ar. Með frumvarpinu er lagt til að
undanþágur mjólkuriðnaðarins frá
ákvæðum samkeppnislaga er varða
samráð, samruna og verðtilfærslu
verði afnumdar. „Aðilar á borð við
Samkeppniseftirlitið og Neytenda-
samtökin hafa lengi varað við því að
mjólkuriðnaðurinn sé undanþeginn
ákvæðum samkeppnislaga. Undan-
þágan var lögfest með afbrigðum
í miklum flýti árið 2004 þrátt fyr-
ir viðvaranir samkeppnisyfirvalda
og andstöðu á þingi. Tillaga sama
efnis og er að finna í frumvarpinu
var felld á Alþingi árið 2011 með
30 atkvæðum gegn 19. Eftir það
hafa enn komið upp mál hjá sam-
keppnisyfirvöldum sem varða hina
óeðlilegu samkeppnisstöðu sem
ríkir í mjólkuriðnaði. Virk sam-
keppni með skýrum leikreglum er
best til þess fallin að tryggja hag
neytenda. Engin rök hníga til þess
að önnur lögmál gildi um mjólkur-
framleiðslu en aðra starfsemi,“ seg-
ir í tilkynningu frá Helga Hjörvar,
fyrsta flutningsmanni að hinu nýja
frumvarpi.
mm
Frumvarp um afnám undan-
þága mjólkuriðnaðarins
Þakið lyftist næstum af gamla
félagsheimilinu Brún í Bæjarsveit
á sunnudagskvöldið þegar fólk
kom þar saman á tónleikum til að
heiðra breska tónlistarmanninn
Eric Clapton. Hann varð sjötug-
ur fyrr á þessu ári og af þeim sök-
um efndu Clapton-félagar í Borg-
arfirði til heiðurstónleika. Tónlist-
armenn sem allir koma úr Borgar-
firði og Hvalfirði stofnuðu sveitina
Key to the highway og æfðu sam-
an lög í dagskrá sem síðan var flutt
í Brún.
Hjómsveitin samanstóð af Reyni
Haukssyni gítarleikara frá Hvann-
eyri, Heimi Klemenzsyni hljóm-
borðsleikara frá Dýrastöðum,
svo voru það bræðurnir Ásmund-
ur bassaleikari og Jakob Grétar
trommuleikari, Sigurðssynir, báð-
ir frá Varmalæk, og síðan söngvar-
inn Heiðmar Eyjólfsson frá Hlíð
í Hvalfjarðarsveit sem nýverið
sló í gegn í söngleiknum Grease
á Akranesi. Í lávarðadeild Key to
the highway eru svo þeir Gunn-
ar Ringsted gítarleikari og tónlist-
arkennari í Borgarnesi og Ólaf-
ur Garðarsson trommuleikari sem
m.a. spilaði fyrrum í mörgum af
þekktustu hljómsveitum Íslands.
Haukur Júlíusson frá Hvanneyri,
faðir Reynis gítarleikara, var síð-
an kynnir og sögumaður þessa
kvöldstund. Hún varð bæði stór-
skemmtileg og eftirminnileg þar
sem tæpt var á löngum ferli Clap-
tons.
„Það komu um níutíu manns
sem var mjög gott. Ég spurði að
gamni mínu fólk sem kom hvernig
það hefði frétt af þessum viðburði.
„Það var auglýsing í Skessuhorni,“
sögðu margir. Ég hafði gaman af
að heyra það því ég hafði sett aug-
lýsingu í blaðið og hún virkaði
greinilega svona ljómandi vel,“
segir Haukur Júlíusson. Hann er
mikill Clapton-aðdáandi og að
sjálfsögðu einn Clapton-félaganna
sem stóðu fyrir tónleikunum. Á
tónleikunum sagði Haukur með-
al annars frá því að hann, Ólaf-
ur Garðarsson, Geir Waage síðar
prestur í Reykholti, Óskar Guð-
mundsson seinna rithöfundur og
fræðimaður í Véum sem allir voru
á tónleikunum í Brún ættu sam-
eiginlega fortíð. „Við vorum all-
ir saman í skóla á Núpi. Þar kom
saman ungt fólk alls staðar af land-
inu. Þar man ég að var endurómur
af Yardbirds sem var ein af fyrstu
hljómsveitum Eric Claptons. Svo
var Jóhannes Gunnarsson neyt-
endafrömuður líka með okkur á
Núpi. Hann kynnti fyrir okkur
það sem þá var meira svona jaðar-
tónlist, eins og söngkonuna Joan
Baez.“
Mikil breidd í
hljómsveitinni
Leynigestur tónleikanna í Brún var
Ólafur Garðarsson trommuleikari.
Þannig voru tveir trommuleikarar á
tónleikunum sem báðir slógu takt-
inn samtímis. Það gaf tónleikunum
mjög skemmtilegt yfirbragð bæði
tónlistarlega og sjónrænt. „Ólaf-
ur var einn af Óðmönnum, Trú-
broti og Náttúru en hefur lítið stig-
ið á svið til fjölda ára. Svo kom þessi
hugmynd upp að hann tæki í með
þeim með og svo þróaðist það í hann
spilaði með þeim. Sá yngsti í hjóm-
sveitinni er tvítugur en elsti 65 ára.
Þeir hittust fyrst allir saman á laug-
ardeginum fyrir tónleikana. Yngri
strákarnir voru himinlifandi að fá
að spila með sjálfum Ólafi Garðars-
syni og síðan spillti ekki fyrir að hafa
Gunnar Ringsted með. Báðir þessir
tveir búa yfir áratuga reynslu og eru
hluti af tónlistarsögu Íslands,“ seg-
ir Haukur.
Tónleikarnir í Brún heppnuðust
það vel að full ástæða er til að spyrja
hvort ekki sé lag að endurtaka þá á
stærri vettvangi. „Það hefur ekki
verið rætt. Sumir í hljómssveitinni
eru uppteknir út af plötuupptöku
og Reynir sonur minn er að flytja
til Noregs í byrjun júní. Það væri
þó vissulega gaman að endurtaka
þetta,“ segir Haukur Júlíusson.
mþh/ Ljósm. Gunnlaugur Júlíusson
Haldið var upp á sjötugsafmæli Eric Claptons í Brún
Hljómsveitin Key to the Highway á sviði í Brún.
Gamlir skólafélagar og Clapton-aðdáendur þeir Óskar Guðmundsson og Haukur
Júlíusson bera saman bækur sínar eftir konsertinn. Haukur var sögumaður og
kynnir á tónleikunum.