Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 39
39MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar
frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á
augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt
leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
auðveldar smásendingar
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
������� ���������
� e���.��
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Lið ÍA í knattspyrnu karla atti kappi
fyrir framan 1200 áhorfendur í
Breiðholtinu á mánudagskvöldið.
Var þetta fyrsti heimaleikur Leikn-
is í efstu deild í sögu félagsins. Teit-
ur Pétursson kom inn í lið Skaga-
manna í stað Darren Lough. Að
öðru leyti var byrjunarliðið óbreytt.
Jafnt var á með liðum í fyrri hálfleik.
Skagamenn máttu þó teljast heppn-
ir að lenda ekki undir eftir mistök
Árna Snæs í markinu sem missti
boltann í öftustu línu en Ármann
Smári bjargaði á línu.
Hálfleiksræða Gunnlaugs Jóns-
sonar virðist hafa náð til leikmanna.
Þeir mættu af krafti í síðari hálfleik
og Albert Hafsteinsson fékk tvö ágæt
marktækifæri áður en eina mark
leiksins leit dagsins ljós. Arsenij Bui-
nickij vann boltann á miðsvæðinu,
sendi út á vinstri kant á Marko And-
elkovic sem gaf fyrir markið. Þar
fann knötturinn koll Garðars Gunn-
laugssonar sem skallaði boltann í
fjærhornið og kom Skagamönnum
yfir en Eyjólfur Tómasson var ekki
sannfærandi í marki Leiknismanna.
Eftir markið sóttu Leiknismenn en
tókst ekki að skapa sér færi fyrr en
á lokaandartökum leiksins og hefðu
getað stolið stigi en skot Hilmars
Árna Halldórssonar small í stöng-
inni. Lokatölur á Leiknisvelli 1-0,
Skagamönnum í vil.
Næsti leikur Skagamanna er
heima á sunnudaginn gegn læri-
sveinum Óla Þórðar í Víkingi og
hefst klukkan 19:15. kgk
Garðar Gunnlaugsson skoraði eina
mark leiksins og sitt fyrsta í sumar.
Fyrsti sigur Skagamanna í sumar
Víkingur Ólafsvík spilaði sinn fyrsta
leik í fyrstu deild á laugardaginn
þegar liðið tók á móti Haukum.
Góð stemning var fyrir leikinn og
var boðið upp á grillaðar pylsur og
Svala til að hressa mannskapinn.
Völlurinn var í góðu ástandi mið-
að við árstíma og kuldakastið sem
hefur verið undanfarið. Leikurinn
var mjög jafn en Víkingar voru ívið
sterkari. Mikil barátta var og bar
leikurinn þess merki að þetta var
fyrsti leikur liðanna í sumar. Vík-
ingar unnu leikinn 1-0 og skoraði
Alfreð Már Hjaltalín sigurmarkið á
32. mínútu. Aðdragandi marksins
var einkar glæsilegur þar sem Guð-
mundur Reynir Gunnarsson og
Kristófer Eggertsson léku vel upp
vinstri kantinn sem endaði með
góðri fyrirgjöf þess fyrrnefnda.
Um 400 manns voru á leiknum
sem spilaður var við erfiðar aðstæð-
ur; mikill vindur og kuldi sem sem
gerði leikmönnum og áhorfend-
um erfitt fyrir. Víkingasveitin sér
um að velja leikmann dagsins og að
þessu sinni var Admir Kubat sem
fékk það sæmdarheiti. Næsti leik-
ur Víkings er á móti Gróttu á laug-
ardaginn.
af
Sigur í fyrsta leik Víkings
í fyrstu deild
Fölskvalaus fögnuður eftir markið.
Fyrsta markið og það eina í leiknum.
Sundfólk úr Sundfélagi Akraness
gerði það gott á Landsbankamóti
ÍRB sem fram fór í Reykjanesbæ
helgina 8.-10. maí síðastliðna.
Tæplega 60 sundmenn frá SA
tóku þátt í mótinu og sneru marg-
ir þeirra heim hlaðnir verðlaunum.
Aldrei hafa jafn margir fulltrúar
sundfélagsins keppt á þessu móti. Á
föstudegi kepptu þrír vaskir sund-
garpar í flokki átta ára og yngri á
sínu fyrsta sundmóti.
Að morgni laugardags og sunnu-
dags kepptu um 40 sundmenn
í flokki 9-12 ára. Þeir stóðu sig
með stakri prýði og komust marg-
oft á verðlaunapall. Í 50 m bringu-
sundi drengja 10 ára og yngri urðu
þau ótrúlegu úrslit að sundmenn
Sundfélags Akraness skipuðu fimm
efstu sætin. Tómas Týr Tómasson
vann þar gullverðlaun, Bjarni Snær
Skarphéðinsson silfur og Guð-
bjarni Sigþórsson brons. Baltasar
Alexandersson Eck hafnaði í fjórða
sæti og Matheus Kuptel í fimmta.
Eftir hádegi á laugardag og
sunnudag var keppt í flokkum 13
ára og eldri. Keppendur SA stóðu
sig vel þar sem og annars staðar og
komu heim með fjölmörg verð-
laun.
Keppendur SA skipuðu til að
mynda þrjú efstu sætin í 50 m bak-
sundi drengja 13-14 ára. Erlend
Magnússon varð fyrstur, Sindri
Andreas Bjarnason annar og Nat-
anael Bergmann Gunnarsson
þriðji.
Meðfylgjandi myndir eru m.a.
fengnar af facebooksíðu Sundfélags
Akraness. kgk
Góður árangur sundfólks SA í Reykjanesbæ
Tómas Týr stóð sig glimrandi vel. Hér er hann brosandi
og ánægður með afrakstur dagsins. Hann sagðist hafa
synt til heiðurs mömmu sinni, Bjarnheiði Hallsdóttir, á
mæðradaginn.
Drengirnir úr SA sem skipuðu fimm efstu sætin í 50 m
bringusundi 10 ára og yngri. Keppendur í flokki 13 ára og eldri.
Fjölmennur hópur keppenda SA í flokki 12 ára og yngri.
Fljótustu þrír í 50m baksundi drengja 13-14 ára. F.v.
Sindri Andreas Bjarnason sem hafnaði í öðru sæti, Erlend
Magnússon sem sigraði og Natanael Bergmann Gunnarsson
sem hafnaði í þriðja sæti.
Íslensku atvinnukylfingarnir Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir úr GR og
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni
á Akranesi náðu góðum árangri á
ASGI meistaramótinu sem lauk á
laugardaginn í Sviss. Ólafía hafn-
aði í 5. sæti á -5 samtals en hún
náði sér ekki á strik á lokahring-
num þar sem hún lék á 75 högg-
um. Valdís Þóra endaði í 7.–9.
sæti en hún lék lokahringinn á 70
höggum og var samtals á -3. Þetta
er besti árangur þeirra á tímabilinu
og besti árangur þeirra beggja frá
upphafi á þessari sterku atvinnu-
mótaröð. Frá þessu var greint á
golf.is
mm
Ólafía og Valdís náðu sínum besta
árangri frá upphafi á LETAS
Valdís Þóra Jónsdóttir.