Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 23

Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 23
23MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 markaðurinn og okkar helstu við- skiptavinir. Við sáum fram að á að öll sú hagræðing sem við næðum fram með nýju framleiðsluaðferð- inni yrði étin upp af ofurtollum á kísil sem við seldum til Kína þar sem stærstu sólarhlaðaverksmiðj- urnar eru. Í ljósi alls þessa varð eðlilega erfitt um vik að fjármagna byggingu verksmiðju í Mississippi. Við urðum því að hætta við áformin þar og leita eftir framleiðslumögu- leikum annars staðar þar sem ekki væru í gildi refsitollar á kísil fram- leiddum fyrir kínverska markaðinn. Við skoðuðum Malasíu og önnur lönd víða í Asíu. Við könnuðum líka möguleika í Sádí-Arabíu eins og ég nefndi áðan, og heimsóttum Ísland. Hér vissum við að orka væri á sam- keppnishæfu verði og að hér væru góðir starfskraftar með þekkingu á málmiðnaði. Við vissum hins veg- ar ekki af því að hér væri hægt að nálgast hrákísil og höfðum held- ur ekki frétt að það væri nýbúið að koma á fríverslunarsamningi milli Íslands og Kína. Sá samningur er mjög þýðingarmikill fyrir okkur því Asía og einkum Kína er einn stærsti framleiðandi sólarhlaða í heimin- um í dag og verður sjálfsagt einnig í framtíðinni.“ Hafnar ásökunum um mengun Á Íslandi hefur nýverið farið fram hörð umræða um verksmiðju Silicor Materials á Grundartanga. Dæmi eru um að þekkt fólk úr þjóðlíf- inu hafi látið stór orð falla þar sem dregin hefur verið upp mjög dökk mynd af mengun frá verksmiðj- unni. Aðspurð segist Terry þekkja til þessarar umræðu. „Við höfum kannski ekki verið nógu dugleg að koma því á framfæri sem við erum að fara að gera á Íslandi og hvað við höfum gert í Kanada. Það er allt- af spurning þegar farið er af stað í svona verkefni hversu hátt það eigi að fara í byrjun. Við höfum viljað tryggja fyrst og fremst að þetta yrði að veruleika áður en við segðum mikið opinberlega. Mér hefði ekki liðið vel með það að hafa kannski átt þátt í því að vekja falskar vænt- ingar meðal fólks. En núna þeg- ar útlit er fyrir að allt gangi upp þá þurfum við auðvitað að upplýsa al- menning. Ég veit að það hafa meðal annars verið fullyrðingar um að við notuðum flúor í okkar framleiðslu. Þetta er ekki rétt. Við notum engan flúor. Það kemur engin slík mengun frá okkar starfsemi. Við brennum ekki olíuefnum. Í okkar ferli erum við fyrst og fremst að bræða sam- an ál og kísil. Svo látum við málm- ana þéttast þar sem kísillinn storkn- ar á undan álinu. Við fleytum álinu af og sendum það til baka. Einu efn- in sem koma inn í þetta eru vatnið og sýran sem við notum til að þvo kísilflögurnar. Þar umbreytist sýran í álklóríðið sem svo er selt til vatns- hreinsunar eins og ég rakti áðan. Við framleiðum engin mengandi efni, það er enginn úrgangur. Fyr- ir verkfræðing eins og mig sem hef- ur unnið að þróun endurnýjanlegra orkugjafa allt mitt líf þá er þetta mjög hreinleg framleiðsluaðferð sem hvílir á sterkum grunni.“ Getur Terry Jester staðið föst- um fótum á því að engin hættuleg mengun komi frá verksmiðjunni á Grundartanga? Hún brosir við áður en hún svarar. „Ég skal nefna verk- smiðjuna okkar í Toronto. Hún er í iðngörðum fyrir léttan iðnað og skrifstofur. Í sömu byggingu til hliðar við okkur er pökkunarfyrir- tæki fyrir grænmeti til manneldis. Hinum megin eru skrifstofur heil- brigðisfyrirtækis. Þetta er í stuttu máli hér og nú kannski besta stað- festingin sem ég get gefið á því að okkar aðferð er vistvæn og laus við mengun.“ Einstök verksmiðja af sinni gerð Framleiðsluaðferð Silicor Materials er varin einkaleyfum. Verksmiðjan á Grundartanga verður þannig fyrsta stóriðjan sem framleiðir kísil með aðferð fyrirtækisins. Það vinnsluferli er gerólíkt hinu svokallaða Siemens- ferli sem notað hefur verið til þessa í heiminum. Það er bæði mengandi og því fylgir sprengihætta. „Kísil- framleiðslan samkvæmt okkar að- ferð kostar um helmingi minna en sú sem beitt er við Siemens-aðferð- ina. Fjárfestingarkostnaðurinn í okkar verksmiðju er um þriðjungur þess sem jafnstór verksmiðja af Sie- mens-gerð myndi kosta. Fjárfest- ar fá þannig fé sitt fyrr til baka. Við getum selt okkar vöru til viðskipta- vinanna á hagstæðara verði en þau fyrirtæki sem keppa við okkur. Við verðum mjög samkeppnishæf, um- hverfisvæn og allir ættu að verða kátir,“ segir Terry. Forstjóri Silicor Materials ítrekar þó að þrátt fyrir að fyrirtækið fram- leiði kísil með svo ódýrum hætti þá muni það einungis standa fyrir um fjórum prósentum af heimsfram- leiðslunni á kísil í sólarhlöð þegar verksmiðjan á Grundartanga verð- ur tilbúin. „Við höfum þegar gert framvirka samninga um sölu á 70% af framleiðslunni og hefðum getað selt allt. Við viljum hins vegar eiga hluta af framleiðslunni til góða og selja hana á frjálsum mörkuðum í svokallaðri spot-sölu.“ Eftir að hafa komið til Íslands nær 20 sinnum á næstum jafn mörgum undanförnum mánuðum þá er Terry sannfærð um Ísland sé fullkominn staður fyrir Silicor Materials. „Það er mjög heillandi að nota endur- nýjanlega vatnsorku til að framleiða afar verðmætt hráefni í framleiðslu á jafn vistvænni orku og sólarork- an vissulega er. Það hefur verið sýnt fram á að með einni kílóvattsstund af rafmagni megi framleiða kísil í sólarhlað sem á eftir að endast til að framleiða 38 kílóvattsstundir af raf- magni úr geislum sólar.“ „Hér verður hjarta og sál fyrirtækisins“ Terry Jester býr enn í Kaliforníu og stjórnar þaðan fyrirtæki sem verða mun með starfsstöðvar þar, í Tor- onto í Kanada, í Berlín í Þýska- landi og á Grundartanga á Íslandi. „Í Kaliforníu eru aðalstöðvar Sili- cor. Þaðan er auðvelt að komast til viðskiptavinanna í Asíu. En aðal- verksmiðja okkar verður á Íslandi. Þar verður hjarta og sál fyrirtæk- isins. Ég hef miklar væntingar og vona að verksmiðjan gangi það vel að við getum sem fyrst byrjað að skoða möguleikana á stækkun. Það eru virkilega ævintýralegir hlutir að gerast í sólarorkugeiranum. Vöxtur- inn er í tveggja stafa tölum mælt í prósentum frá ári til árs. Þróunin er mjög hröð í framleiðslu á rafhlöðum til dæmis fyrir rafbíla. Ég sé stór- kostleg tækifæri í framtíðinni. Hún er björt,“ segir Terry Jester. mþh Kísill unninn í verksmiðju Silicor Materials í Toronto í Kanada. Þar hefur verið framleiddur kísill með einkaleyfisvörðum aðferðum fyrirtækisins síðan 2006 og tæknin þróuð og betrumbætt. Nú er fyrirtækið tilbúið að taka skrefið og hefja fram- leiðslu í stærri stíl í nýrri verksmiðju sem það vill reisa á Grundartanga. Teikning sem sýnir verksmiðju Silicor Materials á Grundartanga. Þýski tæknirisinn SMS Siemens hefur starfað náið með Silicor í fjögur ár, selur tækjabúnaðinn og ábyrgist fyrir sitt leyti að verksmiðjan skili því sem til er ætlast. Aðstandendur hennar segja að þetta iðjuver muni marka tímamót á heimsvísu í nýtingu sólarorku til rafmagnsframleiðslu. Terry Jester og Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxaflóahafna á lóðinni á Katanesi við Grundartanga þar sem fyrirhugað er að verksmiðja Silicor Materials rísi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.