Skessuhorn


Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 32

Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015 Það var mikið um að vera í Fjöl- brautaskóla Snæfellinga fimmtu- daginn 7. maí. Þá mættu nokkr- ir hressir snjókarlar úr kvikmynd- inni Frozen og sungu og trölluðu fyrir kennara og nemendur. Þarna voru á ferðinni útskriftarnemend- ur skólans að sleppa fram af sér beislinu eins og tíðkast á þess- um árstíma. Skoruðu útskriftar- nemendurnir kennarana á hólm í danskeppni ásamt fleiri þrautum. Að endingu var svo öllum boð- ið í vöfflur á kennarastofunni eins og hefð er fyrir. Það var líf og fjör eins og meðfylgjandi myndir bera með sér. tfk Dimmiteruðu í snjókarla- búningum úr Frozen Starfsmenn í Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi áttu í gær fund þar sem samþykkt var samhljóða ályktun þar sem mótmælt er harð- lega uppsögnum sjö starfsmanna við ræstingar. 26 starfsmenn sátu fund- inn. Orðrétt er ályktun fundarins eftirfarandi: „Fundur starfsmanna Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi hald- inn þriðjudaginn 12. maí 2015 mót- mælir harðlega uppsögnum 7 starfs- manna sem starfa við ræstingar í skólanum og skorar á skólameistara að draga uppsagnirnar til baka. Ekki hefur verið sýnt fram á að nokkuð sparist með breyttu fyrirkomulagi við ræstingar. Þvert á móti má víða finna dæmi um hið gagnstæða þegar öll kurl eru komin til grafar. Fráleitt er að gera starfsfólk í ræst- ingum ábyrgt fyrir þeim halla sem orðið hefur á rekstri stofnunarinnar á undanförnum árum. Hér er byrj- að á öfugum enda. Skólameistarar eiga að snúa sér að ríkisvaldinu og krefjast þess að það veiti skólunum fé í samræmi við fjárþörf. Mikil er ábyrgð þeirra sem um véla. Í FVA er ekki bruðlað með neitt, þar er engin óráðsía. Rekstarhalli skólans er fyrst og fremst til orðinn vegna þess að skólinn fær ekki nóg fjármagn til að greiða umsamin laun og borga húsa- leigu. Talsvert var skorið niður í ræst- ingum eftir hrun. Ekki var ráð- ið í stöður sem losnuðu, sem þýddi auknar byrðar á þá sem eftir voru. Nóg komið af slíku.“ mm Mótmæla uppsögnum ræstingafólks í FVA Það var gestkvæmt í Grunnskóla Snæfellsbæjar í síðustu viku, en þá komu 22 kennarar frá tíu löndum í heimsókn. Grunnskóli Snæfellsbæj- ar hefur undanfarin tvö ár tekið þátt í samstarfsverkefni á vegum Come- nius sem er menntaáætlun styrkt af Evrópusambandinu. Verkefnið heit- ir „Natural Wonders in Europe – a study of our national parks and re- serves.“ Í verkefninu hefur ver- ið lögð áhersla á þjóðgarða og eiga allir skólarnir það sameiginlegt að vera staðsettir nálægt þjóðgarði þó enginn þeirra sé eins nálægt þjóð- garði og Grunnskóli Snæfellsbæjar. Nemendur allra skólanna hafa unn- ið ýmis verkefni og fræðst um þjóð- garða hvers annars. Skólarnir sem taka þátt í verk- efninu auk Grunnskóla Snæfells- bæjar eru frá Póllandi, Írlandi, Dan- mörku, Spáni, Frakklandi, Portú- gal, Kýpur, Þýskalandi, Tyrklandi og Lettlandi. Var heimsóknin lið- ur í áðurnefndu verkefni sem lýkur nú í vor. Gestirnir skoðuðu skólann, hittu nemendur sem sýndu þeim skólann sinn og héldu skemmtun fyrir þá. Einnig var farið í skoðunar- ferðir í þjóðgarðinn og í Vatnshelli. Voru gestirnar, þrátt fyrir kulda og vind, mjög hrifnir af stórfenglegu útsýninu, landslaginu og hrárri feg- urð náttúrunnar eins og einn þeirra orðaði það. þa Erlendir gestir í heimsókn á Snæfellsnesi Sumarstarf Skógræktarfélags Akra- ness er þessa dagana að komast í fullan gang. Við munum leggja mesta áherslu á gróðursetningu í sumar og stefnum að því að setja niður meira en tíu þúsund tré. Öll aðstoð við það er vel þegin, t.d. geta hópar eða starfsmannafélög helgað sér svæði og sett niður tré og hirt um svæðið á annan hátt. Markmið okkar er ekki aðeins að koma upp skjólbelti heldur einn- ig að skapa skemmtilegt útivistar- svæði fyrir bæjarbúa og gesti. Til þess þarf m.a. að fjölga göngu- og hjólreiðastígum í bænum og fyr- ir utan hann. Gera þarf greiðfæra stíga meðfram þjóðveginum og upp að Akrafjalli. Við Akurnes- ingar höfum dregist nokkuð aftur úr höfuðborgarsvæðinu að þessu leyti og þurfum að bæta um betur. Göngu- og hjólreiðastígar stuðla að bættu heilsufari bæjarbúa, and- legu sem líkamlegu. Stígagerð er kostnaðarsöm og hefur ekki verið stór þáttur í starfi Skógræktarfélags Akraness. Þó var nokkuð unnið við stígagerð í Slögu á síðasta ári en þá fengum við m.a. styrk frá Landgræðslu- sjóði og nokkrum fyrirtækjum á Akranesi. Ef við fáum styrki í sum- ar munum við að einhverju leyti nota þá í stígagerð en einnig þurf- um við að sinna viðhaldi, slætti á stígum o.s.fv. Þó allt starf félags- ins sé sjálfboðaliðastarf þá fellur til margs konar kostnaður sem lítið fjárvana félag þarf að standa skil á. Mánudagar klukkan 17 verða vinnudagar í sumar eins og undan- farin sumur og haust. Unnið verð- ur í Slögu og við þjóðveginn. All- ir eru velkomnir, einnig þeir sem ekki eru í félaginu. Það munar um alla sem taka þátt, hvort sem vinnuþrekið er mikið eða lítið. Það er hugurinn sem skiptir máli. Mæting er við Einbúann við þjóð- veginn. Þau fyrirtæki og einstakling- ar sem vilja styðja okkur geta lagt inn á eftirfarandi reikning: Skóg- ræktarfélag Akraness, Kennitala: 690689-2949 Bankareikningur: 0186-26-7064. Við þurfum ekki háa styrki, það munar um allt. Ég hvet alla unnendur fagurs umhverfis og mannlífs til að ger- ast félagar í Skógræktarfélaginu og hjálpa okkur við að græða upp landið. Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu Skógræktarfélagsins: www.skog.is/akranes/ Einnig má senda tölvupóst á jensbb@inter- net.is eða hringja í síma 897 5148 ef fólk vill gerast félagar eða koma með góðar ábendingar. Jens B. Baldursson Höf. er formaður Skógræktarfé- lags Akraness Nóg að gera hjá Skógræktarfélagi Akraness í sumar Á myndinni eru þau Philippe, Eiríkur, Leó, Þóra og Bjarni að setja niður furur eftir aðalfund Skógræktarfélags Íslands sem haldinn var á Akranesi í ágúst 2014. Frá jólatrjáasölu í Slögu fyrir síðustu jól.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.