Skessuhorn - 13.05.2015, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 13. MAÍ 2015
Terry Jester kom til Íslands fyrsta
sinn einn haustdag síðla í október
2013. Henni telst svo til að hún
hafi sótt landið heim 18 sinnum
eftir það. Hún segist hafa kolfall-
ið fyrir Íslandi. „Ég er mjög hrif-
inn af öllu sem ég sé og af fólkinu
sem ég hef hitt. Ísland er yndislegt.
Sumarfríinu í ár ætla ég að eyða á
Íslandi með dætrum mínum. Við
ætlum að ferðast um og skoða land-
ið betur en mér hefur gefist tími
til fram til þessa.“ Hingað til hef-
ur Terry oftast verið mjög upptekin
þegar hún hefur komið til Íslands.
Það er engin furða. Hún er forstjóri
bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor
Materials sem hyggst brátt hefjast
handa við að reisa kísilverksmiðju
á Grundartanga. Með þeirri verk-
smiðju skapast um 450 bein störf.
Fjárfestingin hljóðar upp á um 120
milljarða króna. Verksmiðjan á að
valda straumhvörfum í sólarorku-
framleiðslu á heimsvísu. Blaða-
maður Skessuhorns hitti Terry að
máli í síðustu viku og fræddist ör-
lítið um hana sjálfa, framleiðslu-
tæknina, umhverfismál en ekki síst
um verkefnið stóra sem framundan
er á Grundartanga.
Meðal frumkvöðlanna
„Ég er verkfræðingur og tveggja
barna móðir. Ég fæddist í Ohio-
ríki í Bandaríkjunum en ólst upp
í Kaliforníu. Faðir minn var flug-
verkfræðingur og vann við að þróa
þotur. Vegna starfa hans flutti fjöl-
skyldan til Kaliforníu. Systkini mín
eru sjö talsins, flest strákar þannig
að ég varð að berjast fyrir mínum
hlut í hópnum,“ segir Terry. Hún
hlær dátt við endurminninguna.
Eftir menntaskólann lá leið
hennar í verkfræðinám. Að hennar
sögn var það kannski vegna þess að
faðir hennar var menntaður í þeirri
grein. „Með verkfræðináminu fór
ég í ýmiss konar starfsnám. Þar
prófaði ég flugverkfræðina en þótti
hún ekki nógu áhugaverð. Þá fór
ég til tölvufyrirtækis og líkaði ákaf-
lega vel. Samt færði ég mig svo yfir
til fyrirtækis sem framleiddi sólar-
hlöð. Þar fékk ég svo vinnu þegar
ég lauk námi 1978.“
Terry vissi það kannski ekki þá
en átti eftir að gera sér grein fyr-
ir því síðar að hér var hún virkilega
að taka þátt í sögulegri nýsköp-
un. Á þessum árum var Kalifornía
með sinn Silicon Valley (Kísildal),
sjálft ævintýralandið þegar kom að
nýrri tækni. Kalifornía var miðstöð
stórkostlegrar grósku sem átti eft-
ir að breyta heiminum og enn sér
vart fyrir endann á. Fyrirtækið sem
Terry starfaði hjá í öll þessi ár var
Atlantic Richfield Company. Það
hafði upphaflega starfað sem gas-
og olíufélag. Atlantic Richfield var
meðal annars framarlega í að hefja
orkuvinnslu í Alaska. Þegar olíu-
kreppan skall á heiminum seint á
áttunda áratugnum þótti stjórn-
endum þess rétt að leita leiða til að
gera Bandaríkin minna háð olíunni.
Því hóf fyrirtækið að gera tilraun-
ir til framleiðslu á orku úr öðrum
orkugjöfum en olíu. Það leiddi til
þess að Atlantic Richfield stofnaði
sérstaka sólarorkudeild í hinni sól-
ríku Kaliforníu þar sem Terry fékk
vinnu. Þessi deild varð meðal braut-
ryðjenda í því að beisla orkuna sem
fengist úr geislum sólar. Sem ung-
ur og nýmenntaður verkfræðingur
með áhuga á orku- og umhverfis-
málum þá var Terry rétt manneskja
þarna á réttum tíma.
Hefur að baki
36 ára reynslu
Hún segir að á þessum árum hafi
hún og samstarfsfólk hennar vissu-
lega mátt teljast sem eins konar
frumkvöðlar. „Við vissum að við
værum að þróa eitthvað nýtt. Við
gerðum okkur grein fyrir því að sól-
arorka ætti framtíð fyrir sér en viss-
um ekki hve stóran sess hún fengi
í orkuöflun íbúa jarðar í framtíð-
inni. Stundum héldum við að eng-
ir hefðu áhuga á því sem við vor-
um að gera. Við unnum mikið með
ýmiss konar efnivið til framleiðslu
á sólarhlöðunum og prófuðum þau.
Margt af því hefur staðist tímans
tönn. Sú þekking sem við öfluð-
um gagnast enn í dag vel við fram-
leiðslu á búnaði til að nýta sólarork-
una. Sjálf starfaði ég mikið við að
þróa sólarhlöð þannig að þau endist
árum saman. Það var mikil áskorun
en líka mjög lærdómsríkt að starfa
við svona sprotavinnu. Þarna var ég
í 28 ár. Í dag er ég mjög stolt af því
að geta sagt fólki frá því að ég hafi
unnið svona lengi við sólarorku-
iðnaðinn næstum frá byrjun. Sól-
arljósið er að skila svo mikilli orku
til mannskyns með lágmarks um-
hverfisáhrifum. Ég er mjög þakklát
fyrir að hafa fengið þetta tækifæri
strax frá unga aldri.“
Straumhvörf urðu svo á starfs-
ferlinum árið 2010. „Þá var mér
boðið að koma og vinna hjá Sili-
cor Materials sem þá var nýstofn-
að. Það hafði gerst með samruna
tveggja annarra frumkvöðlafyrir-
tækja í framleiðslu sólarhlaða, það
er Calisolar í Kaliforníu og 6N
Silicon í Kanada. Nafnið Silicor er
dregið af heitum þessa tveggja fyr-
irtækja. Mitt hlutverk var að reka
verksmiðjur Silicor-fyrirtækisins í
Kaliforníu og Kanada. Ég stjórn-
aði þessum tveimur verksmiðjum í
nokkur ár áður en ég var gerð að
forstjóra Silicor. Þá var kominn
tími til að koma rekstrinum á hærra
stig, það er auka umsvifin og hefja
sókn.“
Fundu upp nýja
framleiðsluaðferð
Terry útskýrir hvernig það hefur
stöðugt tekist á undanförnum árum
að lækka framleiðslukostnaðinn á
sólarhlöðum. Þannig hafa þau orðið
ódýrari og aðgengilegri fyrir venju-
legt fólk. Einn þáttur hefur þó alltaf
staðið eftir, kísillinn sem notaður er
í sólarhlöðin. „Það hefur ekki tek-
ist að minnka framleiðslukostnað á
honum þar til við hjá Silicor þró-
uðum nýja aðferð. Það er einmitt
hún sem gerir það svo spennandi
að vinna fyrir Silicor. Okkur hefur
heppnast að draga úr framleiðslu-
kostnaðinum á kíslinum um næst-
um helming. Það hafði tekist að
virkja sólarorkuna. Ég hafði starfað
við að þróa þá tækni. Í mínum huga
var það síðan alltaf svo að næsti
ávinningur fælist í að framleiða kís-
ilinn með ódýrari hætti. Það var
forsenda þess að hægt yrði að auka
umsvif sólarorkuiðnaðarins. Sólar-
orkan verður jú að vera samkeppn-
ishæf við aðra orku þegar kemur að
kostnaði við öflun.“
Það sem fólkið á bak við Silicor
hefur í stuttu máli gert er að finna
upp og þróa nýja aðferð. Með henni
er ál notað til að hreinsa kísilinn og
ná úr honum aukaefnum. „Þetta
er einstök aðferð og mjög örugg í
allri framkvæmd. Engin aukaefni
eru notuð. Allt sem notað er í ferl-
inu heyrir til þess og er endurnýtt.
Ég segi oft að fjögur efni séu notuð
við ferlið. Þrjú þeirra eru ál, vatn og
sýra. Öll yfirgefa ferlið á ákveðnum
stigum en það fjórða situr eftir og
er kísillinn. Álið sem er notað fer
úr ferlinu með lítils háttar íblöndun
af kísil og öðrum efnum. Slíkt kís-
ilál er eftirsótt hráefni í ýmsan iðn-
að svo sem í framleiðslu á bifreið-
um og flugvélum. Við seljum það.
Álklóríð myndast þegar við þvo-
um kísilflögurnar úr vatni og sýru.
Þessi aukaafurð er í vökvaformi og
líka seld áfram. Álklóríð eða PAC
er notað til hreinsunar á drykkjar-
vatni til dæmis hjá vatnsveitum víða
um heim. Þið hér á Íslandi þekk-
ið líklega ekki til þess því hér eigið
þið svo mikið af hreinu vatni. Það
er mikil eftirspurn eftir álklóríði, til
dæmis í Norður Ameríku og Evr-
ópu og auðvelt að losna við það.“
Þaulprófað ferli sem
virkar vel
Hún segir að aðferð Silicor til að
draga úr framleiðslukostnaði á kísil,
og þannig hjálpa til við að auka enn
möguleika sólarorkuframleiðslu
í heiminum, hafi einmitt gert það
að verkum að hún vildi leggja fyrir-
tækinu lið. „Svo sá ég líka að þessi
aðferð væri bæði örugg og um-
hverfisvæn.“
Blaðamaður staldrar einmitt við
sjálfa aðferðina. Hún er ný, en virk-
ar hún? „Já, fullkomlega. Við höf-
um starfrækt verksmiðju okk-
ar í Toronto í Kanada síðan 2006
og framleitt kísil þar. Það er búið
að keyra ferlið í þessari verk-
smiðju í yfir þúsund skipti og fram-
leiða meira en 20 milljón sólar-
hlöð með kísil úr henni. Við erum
löngu komin af tilraunastiginu. Um
helmingur framleiðslunnar hef-
ur farið til stórfyrirtækja á borð við
SHARP og Suntec. Það fyrrnefnda
er framleiðandi á rafeindavörum en
Suntec er kínverskt og býr til sól-
arhlöð. Bæði fyrirtækin eru mjög
sterk á sínum sviðum. Við höfum
átt góða samvinnu við þau. Ég vil
líka nefna þýska tæknirisann SMS
Siemag sem hefur framleitt bún-
að til stóriðnaðar í 150 ár. Undan-
farin fjögur ár höfum við átt náið
samstarf við það fyrirtæki. Við hjá
Silicor rekum líka eigin rannsókna-
miðstöð í Berlín í Þýskalandi. SMS
mun selja okkur tækjabúnaðinn í
verksmiðjuna á Grundartanga og
ábyrgist fyrir sitt leyti að aðferð-
in virki. Grundartangaverksmiðjan
verður útbúin á sama hátt og verk-
smiðja okkar í Toronto hefur ver-
ið síðustu níu árin. Þetta eru sömu
tæki og sama tækni. Eini munur-
inn er að við verðum með þrisv-
ar sinnum meiri framleiðslugetu á
Grundartanga en í Toronto. Það
er ekki vegna þess að einingarnar í
tækjabúnaðinum sjálfum séu stærri,
heldur vegna þess að við verð-
um með fleiri tæki. Þetta sést þeg-
ar teikningar af Grundartangaverk-
smiðjunni eru skoðaðar.“
Viðskiptastríð setti
strik í reikninginn
Þá vaknar sú spurning hvers vegna
Silicor hafi ekki einfaldlega ákveðið
að stækka verksmiðju sína í Kanada?
Terry svarar því til að fyrirtækið hafi
ekki haft nóg pláss til að stækka á
lóð sinni í Toronto. „Við erum einn-
ig að greiða hærra orkuverð þar en á
Íslandi. Þegar við byrjuðum að leita
að stað fyrir nýja verksmiðju höfð-
um við þrjú meginatriði að leiðar-
ljósi. Í fyrsta lagi vildum við finna
stað þar sem við værum velkomin,
stað þar sem fólk óskaði eftir starf-
semi okkar. Í öðru lagi leituðum
við að raforku á viðunandi verði.
Þar litum við á ýmsa aðra kosti en
Ísland svo sem Sádí-Arabíu. Síð-
an þurftum við að hafa aðgang að
góðu starfsfólki sem kæmi úr um-
hverfi þar sem fólk hefði skilning
og þekkingu á málmvinnslu. Fram-
leiðsluferill okkar á kísil byggir fyrst
og fremst á málmvinnsluaðferðum,
ekki á efnafræði. Öll þessi skilyrði
voru uppfyllt á Íslandi.“
Terry bætir við í framhaldinu að
Silicor hafi reyndar fyrir nokkrum
misserum síðan verið komið langt
á veg með að reisa svona kísilverk-
smiðju í Mississippi í Bandaríkjun-
um. Þá skall hins vegar á eins kon-
ar viðskiptastríð milli Bandaríkj-
anna og Kína í framleiðslu og sölu á
sólarhlöðum. Bandarísk stjórnvöld
settu ofurtolla á sólarhlöð framleidd
í Kína. Þar svöruðu menn með því
að setja 60% toll á sólarkísil sem
væri framleiddur í Bandaríkjunum.
„Með þessu var útilokað fyrir okk-
ur að framleiða kísil í Bandaríkj-
unum og selja hann til sólarhlaða-
framleiðenda í Kína sem er stærsti
Terry Jester forstjóri kísilfyrirtækisins Silicor Materials:
„Hjarta og sál fyrirtækisins verður á Íslandi“
Theresa Jester, eða Terry eins og hún er alltaf kölluð, hefur unnið að þróun
nýtingar sólarorku allan sinn starfsferil til þessa sem spannar nú 36 ár.
Þetta eru sólarhlöðin sem kísilinn er notaður í. Þau vinna raforku úr geislum
sólarinnar.
Terry Jester í miðborg Reykjavíkur daginn sem viðtalið var tekið. Hún segist hafa
fallið algerlega fyrir Íslandi, fegurð þess og fólkinu sem hér býr.