Skessuhorn


Skessuhorn - 29.07.2015, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 29.07.2015, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 20154 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smáaug- lýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.573 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.230. Rafræn áskrift kostar 2.023 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.867 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Magnús Þór Hafsteinsson mth@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Emilía Ottesen, markaðsstjóri emilia@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson omar@skessuhorn.is Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Hin þögla kyrrstaða í menntamálum Að undanförnu hef ég talsvert verið að velta fyrir mér menntakerfinu hér á landi og hvert það stefnir. Á því virðast vera meinbugir en um þá má hins vegar ekki tala. Viðbrögð við ábendingum eru álíka hófstillt og ef kristn- um mönnum væri hælt ótæplilega í strangtrúaðri mosku úti í heimi. Þessari umræðuhefð verðum við hins vegar að breyta því án umræðu, jafnvel þótt menn þurfi að takast á, verða ekki framfarir. Við þurfum til dæmis að ræða að hér á landi erum við að útskrifa úr fram- haldsskólum stúdenta sem eru allt að tveimur árum eldri en nýstúdentar í löndunum í kringum okkur. Án þess þó að þeir hafi lært eitthvað meira en jafnaldrar þeirra t.d. á hinum Norðurlöndunum. Þá er einnig ljóst að menntakerfið tekur afar takmarkað mið af þeim atvinnugreinum sem hér eru stærstar og breytingarnar í atvinnuháttum eru lengi að skila sér inn í menntakerfið. Þannig er til dæmis lítið til af sérhæfðum iðnaðarmönnum til starfa í stóriðju og við húsbyggingar og sérhæft fólk í ferðaþjónustu er alltof fátt með tilliti til þess að greinin er farin að skaffa mest allra atvinnu- greina til þjóðarbúsins. Þá erum við einnig farin að leggja þá kvöð á fólk sem aflar sér sérhæfðrar menntunar að það þurfi að stunda allt að sex til átta ára háskólanám til að öðlast starfsréttindi, án þess þó að launin séu í nokkru samræmi við þennan árafjölda í námi. Fólk er þar af leiðandi komið fast að þrítugu þegar það loksins hefur lokið námi. Ofan á þetta bætist að náms- lánakerfið hefur gengið sér til húðar og er jafnvel svo vitlaust að fólk þyrfti að vera allt að sjötíu ár á vinnumarkaði til að geta mögulega greitt lánin sín til baka. Mismunurinn fellur á ríkið og okkur skattborgarana þar sem fátítt er að fólk sé á vinnumarkaði til hundrað ára aldurs. Ef við ætlum okkar að halda sjálfstæði okkar sem fámenn og tiltölulega einangruð þjóð norður í höfum, verðum við að gera á menntakerfinu okkar þær breytingar sem þarf. Að öðrum kosti verðum við eftirbátar helstu sam- keppnisþjóða og getum ekki lengur staðið í fremstu röð og missum unga fólkið okkar til starfa úti í heimi. Allt þetta eru hins vegar afleiður. Ef horft er til auðlinda og tekna Íslendinga sem hlutfalls af mannfjölda hljótum við að vera ríkust allra. Vandamálið okkar er að tekjunum og auðlindunum er illa skipt. Þekkt er að þeir ríku vilja verða ríkari, sama hvað það kostar. Þeir eyra engu til að halda í peninginn og ríkidæmi sitt. Ef skipting auðlindanna væri hins vegar jafnari og réttlátari, væri auðvelt mál að byggja hér á landi upp menntakerfi í fremstu röð. Það er bara ekki verið að því! Ofan á allt þetta hefur hluti menntakerfisins verið færður á hendur sveit- arfélaga án þess að nægjanlegar tekjur hafi fylgt. Sveitarfélög reka leik- og grunnskóla og verða að gera það svo sómi er af jafnvel þótt þau hafi enga fjárhagslega burði til þess. Gæði menntunar verður því sjaldnast betri á hverjum stað en efni og aðstæður sveitarsjóðs leyfa. Svo þegar blessuð börnin koma á framhaldsskólaaldur tekur ríkið við. Þeir framhaldsskólar sem telja sig „besta“ setja einkunnakvóta á innritaða nemendur sem ger- ir þá eðli málsins samkvæmt hæfari til að útskrifa framúrskarandi nemend- ur, en hinir skólarnir sem verða að taka inn þá nemendur sem hinir „góðu“ vilja ekki innrita til náms. Svo þegar upp á háskólastigið kemur bíður stúd- entum val um háskóla sem ýmist eru ríkisreknir eða sjálfseignarstofnan- ir með ríkisstyrk. Aldrei á þessu ferli nemandans frá grunnskóla til háskóla er gerð tilraun til að beina fólki markvisst til náms sem eftirspurn er eftir frá atvinnulífinu. Með tilstyrk ríkisins erum við því að fjöldaframleiða sér- fræðinga með margra ára háskólanám, jafnvel án þess að þörf sé á þeim til vinnu. Á sama tíma skortir fólk með sérhæfða menntun í þeim atvinnu- greinum sem þjóðin er að reyna að framfleyta sér á. Um þetta má hins veg- ar ekki tala opinskátt og því þurfum við líklega að bíða talsvert lengur eft- ir menntakerfi í fremstu röð. Magnús Magnússon. Þann 29. júlí í fyrra, höfðu alls 86 smábátar stundað makrílveiðar það sem af var sumri og alls aflað 1.592 tonna. Samkvæmt yfirliti Fiskistofu nú þá hafa aðeins ellefu smábátar á landsvísu sótt makrílafla í greip- ar Ægis það sem af er sumri. Þeir hafa samtals landað rétt rúmum 32 tonnum. Af þessum ellefu eru sjö smábátar frá Vesturlandi. Á sama tíma í fyrra höfðu 27 bátar af Vest- urlandi hafið makrílveiðar og alls aflað 549 tonna. Þetta eru mik- il viðbrigði samanborið við sama tíma í fyrra. Ekki allt gull sem glóir Ljóst er að nú stefnir í að makríl- vertíð smábáta í sumar verði að- eins skugginn af því sem verið hef- ur á síðustu vertíðum. „Staðan sem upp er komin er grafalvarleg og mikið áhyggjuefni og sýnir glöggt að ekki allt gull sem glóir,“ segir í frétt á vef Landssambands smá- bátaeigenda. Talað er um að verð í boði fyrir handfæraveiddan makríl séu aðeins um helmingur þess sem fékkst greitt fyrir hann á vertíðinni í fyrra. Það stefnir því í verðhrun á makríl smábátanna og afleiðingin verður hrun í veiðum nema verðin hækki. Helst er að smábátaeigend- ur sjái sér hag í að veiða makrílinn og frysta hann í beitu fyrir línuveið- arnar í haust og vetur. Stóru skipin hafa aflað betur en þó er ljóst af aflatölum að ekki er sami krafturinn í aflabrögðum þeirra og á síðasta ári. Heildarafli þeirra um er 45 þúsund tonn það sem af er. Á sama tíma í fyrra voru þau hins vegar búin að veiða 61 þús- und tonn samkvæmt vef Fiskistofu. Afli þeirra það sem af er vertíð nú er þannig um 14 þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra. Segja má að um fjórðungi minni makríl- afli hafi borist á land það sem af er þessari vertíð samanborið við 29. júlí í fyrra. Aðeins búið að veiða fjórðung kvótans Heildar aflaheimildir íslenskra skipa í makríl nú í ár eru 179 þús- und tonn þannig að enn eru 118 þúsund tonn óveidd ef kvótinn á að nást. Nú er búið að veiða 26 prósent af kvóta ársins. Í fyrra var heildarkvótinn 148 þúsund tonn. Þá var búið að veiða alls 41 prósent af kvótanum þann 29. júlí. Enn virðist mikil óvissa ríkja um sölu- og markaðsmál á makríl. Teikn eru á lofti um talsverðar verð- lækkanir á alþjóðlegum mörkuð- um. Þykir margt benda til að mik- ið verðfall verði á makríl í ár enda alvarlegar blikur á lofti í markaðs- málum. Geysimikið er í húfi fyr- ir þjóðarbúið enda var makríllinn verðmætasti nytjastofn Íslands á síðasta ári. Hann hefur sömuleiðis verið góð búbót fyrir sjávarútveg- inn og atvinnulíf á Vesturlandi um sumartímann. mþh Enn ríkir mikil óvissa um makrílvertíð sumarsins Makrílbátar frá Akranesi hafa verið gerðir klárir til veiða en liggja enn bundnir við bryggjur í heimahöfn. Tekið á móti makríl hjá Fiskmarkaði Íslands á Akranesi fyrr þessum mánuði. Miklar verðlækkanir virðast hafa orðið á fiskinum. Makríll veiðist nú í höfninni á Akranesi. Nokkrir slíkir komu á öngla sportveiðifólks sem naut veðurblíðunnar á bryggjunum á Akranesi á föstudagskvöld við að renna fyrir fisk. Undanfarin sum- ur hafa fjölmargir, ungir jafnt sem eldri, skemmt sér við að veiða þennan röndótta og sprettharða fisk. Næstu vikur munu skera úr um hvort aflinn verði jafn góður og svo oft áður. mþh Makríllinn er mættur í Akraneshöfn Gunnar Hákonarson er einn þeirra sem hafa gaman af makrílveiðunum. Hér hefur hann fengið einn fallegan til að bíta á. Þessi ungi Skagapiltur fékk tvo væna makríla á sama slóðann.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.