Skessuhorn


Skessuhorn - 29.07.2015, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 29.07.2015, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 201530 Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina? Spurning vikunnar (Spurt í Borgarnesi) Vigdís Ósk Viggósdóttir (Rúnar Daði Svanbergsson er með á myndinni) „Ég ætla bara að hugsa um börn- in.“ Torfi Vestmann „Ætli ég fari ekki í bústað.“ Hanna Tryggvadóttir „Ég ætla að fara í bústað.“ Lovísa Guðlaugsdóttir „Ég ætla að fara í afmæli.“ Ingunn Lind Þórðardóttir og Karen Eva Sæmundsdóttir „Við ætlum að fara til Akureyr- ar.“ „Þessi íþrótt byggir á miklu trausti, annars getur hún verið stórhættu- leg,“ segir Annika Katrín Almars- dóttir, 15 ára Skagastúlka, um klappstýruíþróttina, þegar Skessu- horn hafði samband við hana. Ann- ika er búsett í Danmörku þar sem hún hefur æft klappstýruíþróttina undanfarin ár. „Áður en ég flutti til Danmerkur æfði ég fimleika á Ís- landi. Mig langaði að halda áfram að æfa en fimleikar hér í Danmörku eru mjög ólíkir fimleikum á Íslandi. Þeir hentuðu mér ekki, ég ákvað að prófa klappstýruíþróttina og elskaði það,“ segir Annika aðspurð hvernig hún byrjaði í þessari íþrótt. Myndu allar fórna sér „Það hjálpar að hafa verið í fimleik- um en þetta er samt mjög ólíkt. Þetta er blanda af fimleikum, dansi og æf- ingum sem krefjast mikils styrks þar sem við búum til pýramída og hend- um stelpum upp í loftið og snúum þeim. Þetta gerum við allt á tveim- ur og hálfri mínútu. Stelpan sem við hendum upp í loft er kölluð „flyer.“ Hún þarf að geta treyst okk- ur hundrað prósent. Það skiptir því miklu máli að við grípum hana allt- af. Það er ekkert sem stoppar okkur í því. Við myndum allar fórna okk- ur, þó það kosti glóðarauga, brotið nef eða jafnvel heilahristing, áður en einhver er látin lenda í gólfinu,“ segir hún og bætir við að þetta sé svo sannarlega íþrótt þó sumir haldi öðru fram. Mætti í prufu og var meðal þeirra bestu Annika hefur undanfarið æft með Copenhagen Cheerleaders og komst í landslið Danmerkur um áramótin síðustu. „Ég var meðal þeirra yngstu í Copenhagen Cheerleaders og æfði með liði sem var komið á stig sex, það er hæsta stigið. Við unnum all- ar þær keppnir sem við tókum þátt í. Ég ákvað að prófa að sækja um í landsliðinu. Ég mætti í prufu þar sem aðeins þær bestu voru valdar og ég var á meðal þeirra.“ Í vetur æfði Annika aðra hverja helgi á Jótlandi með landsliðinu. Það er um fjögurra til fimm klukku- stunda akstur til Jótlands. Þar æfði ég þrjá daga í röð í sjö klukkustundir eða meira.“ Hinar helgarnar og fjóra til fimm virka daga að auki æfði hún með Copenhagen Cheerleaders. Nú í vor var heimsmeistaramót klappstýra haldið í Orlando í Flo- rida. Annika fór með landsliðinu á mótið og höfnuðu þær í fjórða sæti. Finnland hafnaði í því þriðja, Nor- egur í öðru og Bandaríkin hrepptu heimsmeistaratitilinn. „Það er óhætt að segja að Skandinavía hafi eigin- lega tekið sigurinn,“ segir Annika glöð. Aðspurð um hvað taki við núna segist Annika ætla að taka sér pásu frá klappstýruíþróttinni og einbeita sér að hestunum. „Ég hef alltaf ver- ið í hestum, alveg frá því ég man eft- ir mér. Ég hef ekki getað sinnt því undanfarið því það hefur tekið mik- inn tíma að vera klappstýra. Ég ætla að fara í eitt ár í heimavistarskóla úti í sveit þar sem eru hestar. Vonandi held ég svo áfram að æfa klappstý- ruíþróttina þegar ég kem heim úr skólanum,“ segir Annika að lokum. arg Annika Katrín Almarsdóttir: Annika Katrín á Heimsmeistaramóti í Orlando nú í vor. Gæðingamót Snæfellings 2015 fór fram í Stykkishólmi 26. júlí í góðu veðri. Þátttaka var góð og gekk mót- ið vel í alla staði. Keppt var í öllum flokkum og í fyrsta sinn var keppt í C- flokki, þar sem riðið var fet, tölt og brokk. Áður hafði verið keppt í feti, tölti og stökki. Mæltist þessi nýjung vel fyrir og þátttakendur ánægðir. Hestur mótsins var valinn Atlas frá Lýsuhóli og hryssa mótsins var Fjöður frá Ólafsvík. Knapi mótsins var Hrefna Rós Lárusdóttir og Borghildur Gunnarsdóttir var valin efnilegasti knapinn. Aðstandendur mótsins vilja þak- ka Arion banka hf. kærlega fyrir að styrkja mótið, sem og öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við fram- kvæmd mótsins. A-úrslit eru eftirfarandi: Tölt T3 1. flokkur 1. Gunnar Tryggvason / Ómur frá Brimilsvöllum 7,50. 2. Iðunn Svansdóttir / Fjöður frá Ólafsvík 7,39. 3. Halldór Sigurkarlsson / Hrafnkatla frá Snartartungu 6,89. Tölt T7 2. flokkur - A úrslit 1. Herborg Sigríður Sigurðardóttir / Assa frá Bjarnarhöfn 6,75. 2. Veronika Osterhammer / Kári frá Brimilsvöllum 6,25. 3. Hrefna Frímannsdóttir / Fluga frá Bjarnarhöfn 6,08. 17 ára og yngri 1. Glódís Líf Gunnarsdóttir / Magni frá Spágilsstöðum 7,17. 2. Fanney O. Gunnarsdóttir / Fífa frá Brimilsvöllum 6,83. 3. Borghildur Gunnarsdóttir / Skuggi frá Hrísdal 6,33. A flokkur 1. Jóhann Kristinn Ragnarsson / Atlas frá Lýsuhóli 8,94. 2. Hrefna Rós Lárusdóttir / Sól frá Reykhólum 8,49. 3. Lárus Ástmar Hannesson / Magni frá Lýsuhóli 8,40. B flokkur 1. Iðunn Svansdóttir / Fjöður frá Ólafsvík 8.72. 2. Hrefna Rós Lárusdóttir / Hnokki frá Reykhólum 8,68. 3. Jón Bjarni Þorvarðarson / Svalur frá Bergi 8,48. Ungmennaflokkur 1. Hrefna Rós Lárusdóttir / Hnokki frá Reykhólum 8,71. 2. Guðný Margrét Siguroddsdóttir / Reykur frá Brennistöðum 8,57. Unglingaflokkur 1. Borghildur Gunnarsdóttir / Gára frá Snjallsteinshöfða I 8,50. 2. Fanney O. Gunnarsdóttir / Fífa frá Brimilsvöllum 8,44. 3. Harpa Lilja Ólafsdóttir / Hrókur frá Grundarfirði 8,33. Barnaflokkur 1. Glódís Líf Gunnarsdóttir / Magni frá Spágilsstöðum 8,56. 2. Fjóla Rún Sölvadóttir / Blik frá Dalsmynni 8,31. 3. Hafdís Lóa Sigurbjörnsdóttir / Lotning frá Minni-Borg 8,16. C flokkur 1. Nadine E. Walter / Krummi frá Reykhólm 8,38. 2. Linda Helgadóttir / Geysir frá Læk 8,31. 3.Margrét Sigurðardóttir / Frá frá Hítarneskoti 8,19. -fréttatilkynning Úrslit úr gæðingamóti á Hestaþingi Snæfellings Glódís og Magni frá Spágilsstöðum sigruðu í barnaflokki og tölti 17 ára og yngri. Borghildur Gunnarsdóttir, sigurvegri í unglingaflokki og efnilegasti knapinn. Hrefna Rós Lárusdóttir, sigurvegari í ungmennaflokki og knapi mótsins. Jóhann Ragnarsson og Atlas frá Lýsuhóli sigruðu A flokkinn. Atlas var jafnframt valinn hestur mótsins. Iðunn Svansdóttir og Fjöður frá Ólafs- vík sigruðu B flokkinn. Fjöður var valin hryssa mótsins. „Við myndum allar fórna okkur, þó það gæti kostað glóðarauga, brotið nef eða jafnvel heilahristing“ Í byrjun júlí tók 4. flokkur stráka í Skallagrími þátt Helsinki Cup, sem er eitt stærsta fótboltamót fyr- ir börn og ungmenni á norðurlönd- unum. Á mótinu voru hátt í 20 þúsund þátttakendur frá 12 lönd- um. Auk Skallagríms tóku Fylkir og KR einnig þátt. Skallagrímur sendi tvö lið til keppni á mótinu, annars vegar 11 manna lið og hins vegar 9 manna lið. Liðin stóðu sig vel og voru fé- laginu til sóma, en þess má geta að 11 manna liðið varð í öðru sæti í sínum riðli og komst alla leið í 16-liða úrslit í sínum flokki. Alls tóku 22 strákar þátt í ferð- inni. Flestir þeirra koma úr Borg- arnesi, nokkrir af Hvanneyri, frá Varmlandi og úr Borgarhreppn- um. Undirbúningur og söfnun fyrir ferðina stóð yfir allan síðasta vetur og vilja strákarnir nota tækifærið og þakka þeim fjölmörgu fyrirtækjum og einstaklingum sem lögðu þeim lið fyrir stuðninginn. -fréttatilkynning/ Ljósm. Ómar Örn Ragnarsson Skallagrímur í útrás Leikmaður Skallagríms fer framhjá mótherja sínum í leik í Finnlandi. Hluti hópsins sem keppti fyrir Skalla- grím á Helsinki Cup í Finnlandi.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.