Skessuhorn - 29.07.2015, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 9
„Ég sé fólk með öðrum hætti og
það ýtir undir sköpunina. Ég sé oft
eitthvað í fólki og umhverfinu sem
kveikir á ímyndunaraflinu og ég fer
á flug. Ég nota það oftast til að búa
til eitthvað sem ekki er til, eitthvað
óraunverulegt og nýtt,“ svarar Vera
Líndal Guðnadóttir, listakona og
mannfræðingur, aðspurð hvernig
mannfræðin og listin fari saman.
Skapar eftir innblæstri
Blaðamaður hitti Veru í Galleríi
Bjarna Þórs þar sem hún hefur ver-
ið að mála galleríið að utan í sum-
ar. Þar hefur hún einnig aðstöðu til
að vinna þegar hún kemur á Akra-
nes en hún er fædd og uppalin
Skagastúlka. „Verkin mín geta ver-
ið hvernig sem er. Það er svo margt
sem veitir mér innblástur. Það get-
ur verið eitthvað í fari fólks sem ég
hitti, taktur í tónlist sem ég hlusta
á, atriði úr bíómynd eða bara hvað
sem er. Þá fer eitthvað af stað í hug-
anum og ég sé fyrir mér alveg nýjan
heim. Oft á tíðum óraunverulegan
heim sem alls ekki er til, það er það
sem ég teikna. Af hverju að teikna
eitthvað sem er til nú þegar, þeg-
ar maður hefur frelsi til að teikna
það sem manni dettur í hug? Ef t.d.
andlit einhvers gefur mér innblást-
ur er ég ekki að fara að teikna ná-
kvæma andlitsmynd af þeirri mann-
eskju. Ég nýti mér andlitsdrættina,
persónuleikann og fas hvers og eins.
Myndin getur endað í algjörri steik
en persónan var kveikjan af henni,“
segir Vera og hlær.
Sýning í desember
Þessa dagana er nóg að gera hjá
Veru en fyrir utan að vinna fulla
vinnu hjá Símanum er í nægu að
snúast í listinni. „Ég er með nokkur
verk í gangi núna. Fólk hefur sam-
band við mig og biður mig um að
mála fyrir sig eitthvað ákveðið. Það
er vinsælt núna að fá persónuleg
verk. Þá gefur sá sem pantar verkið
mér upplýsingar sem eiga að koma
fram í verkinu og ég bý til eitt-
hvað út frá þeim upplýsingum, en
ég geri það í mínum stíl. Ég er líka
að fara að mála vegg hjá Reykjavík
Hair núna við fyrsta tækifæri. Það
er að aukast að fólk vilji láta mála
veggi hjá sér. Það er ekki allt hvítt
og kassalaga lengur og veggjalist
er að verða áberandi, sem er mjög
ánægjulegt,“ segir Vera og brosir.
Aðspurð hvað sé framundan seg-
ist hún stefna á áframhaldandi nám
í haust og sýningu í desember. „Ég
stefni á teikninám í haust þar sem
ég mun taka 7 vikna netkúrsa sem
gefa mér diplóma. Eins langar mig
að halda sýningu í desember. Það er
alveg kominn tími á það enda kom-
in tvö ár frá síðustu sýningu, en
mig langar að fara að halda sýning-
ar árlega. Ég hef ekkert neglt niður,
hvorki staðsetningu né nákvæm-
lega hvernig sýningin verður. Lík-
lega mun ég þó sýna bæði málverk
og teikningar.“
arg
Hafa reynst vel í skjólbelti og sem skógarplöntur.
U.þ.b. 40 cm háar. Verð 7.000 kr. pokinn (20 stk. í poka).
Einnig til sölu bergfura og grenitré.
U.þ.b. 20 cm háar. Verð 350 kr. stk.
Grenigerði er staðsett u.þ.b. tvo km norðan við
hringtorgið í Borgarnesi, á móti golfvellinum.
Til sölu fallegar og þéttar
Grenigerði – Ríta Freyja og Páll
437 1664 / 849 4836 / ritapall@simnet.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2015
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & smur, Nesvegi 5
Fimmtudaginn 6. ágúst
Föstudaginn 7. ágúst
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 438 – 1385
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
5
Vera Líndal Guðnadóttir listakona:
„Af hverju að teikna eitthvað sem maður sér þegar maður
hefur frelsi til að teikna það sem manni dettur í hug?“
Vera Líndal að mála vegginn hjá Galleríi Bjarna Þórs.
Vera Líndal fyrir framan Gallerí Bjarna Þórs.