Skessuhorn - 29.07.2015, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 11
ÖLL ALMENN VERKTAKASTARFSEMI
Eiríkur J. Ingólfsson ehf.
S
ke
ss
uh
or
n
20
13
„Þetta er gamall draumur að ræt-
ast hjá mér, að verða bóndi,“ sagði
Skúli Hreinn Guðbjörnsson, bóndi
í Miðskógi í Dölum, þegar blaða-
maður Skessuhorns heimsótti hann
á föstudaginn var. Hann og eigin-
kona hans Guðrún Esther Jóns-
dóttir eru nýflutt vestur í Dali en
höfðu áður búið suður á Akranesi
í tæp ellefu ár. Skúli hafði þar unn-
ið sem rekstrarstjóri Húsasmiðj-
unnar í áratug. Í vor ákváðu þau
hjónin hins vegar að söðla um sig,
kaupa jörð vestur í Dölum og ger-
ast bændur. Auk þess tók Guðrún
Esther að sér afleysingar hjá Lyfju
út sumarið og var í vinnuferð þegar
blaðamann bar að garði.
Yfirgáfu Akranes
fyrir Dalalífið
„Við vorum búin að spá í þetta og
leita að jörð í tvö ár. Hún fannst
núna í vetur og við keyptum Mið-
skóg og fluttum hingað 1. maí. Við
skiptum jörðinni og húsinu okk-
ar á Akranesi og sumarbústaðnum
í Svínadal,“ segir Skúli. „Jörðin var
reyndar ekki á sölu. Ég hringdi bara
í bóndann og gerði honum tilboð.“
Aðspurður kveðst Skúli ekki
muna nákvæmlega hve stór Mið-
skógsjörðin sé, en túnin séu 53
hektarar. „Þetta er flott kúajörð.
Þeir sem þekkja til segja að þetta
sé með bestu kúajörðum í Dölum,“
segir hann. Íbúðarhúsið fylgdi með
í skiptunum, útihúsin, bústofninn
auk allra véla og tækja. Hann tel-
ur rúmlega hundrað gripi, þar af
36 mjólkurkýr og stefnir Skúli á að
fjölga þeim í vetur. Til þess hefur
hann ráðist í að breyta hálfri hlöð-
unni í kálfaeldi. „Það er á dag-
skránni að fjölga beljunum og
helst vildi ég koma upp mjaltabás
líka. Ég er hrifnari af bás en róbót,
finnst ég vera í meiri tengslum við
kúna,“ segir Skúli. „Þetta sprengir
líklega strax utan af sér húsnæðið,“
segir hann og brosir.
Tekur við góðu búi
Eins og áður sagði fluttu Skúli og
Guðrún Esther að Miðskógi 1. maí
síðastliðinn. „Bóndinn fyrrverandi
mjólkaði að morgni og ég tók við
og mjólkaði um kvöldið, það var
eiginlega bara þannig. Ég var hérna
á þrjá daga með honum. Mætti
segja að ég hafi verið í aðlögun,
svona eins og krakkarnir á leikskól-
anum,“ segir hann og hlær við.
Skúli er þó enginn nýgræðingur
þegar kemur að landbúnaði. Hann
er alinn upp á bænum Svalbarði á
Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu
og því öllum hnútum kunnug-
ur þegar kemur að starfi bóndans.
Guðrún Esther er einnig úr sveit,
frá bænum Skuld í Saurbæ í Döl-
um. Sveitalífið er því ekki nýtt fyr-
ir þeim hjónum. En hvernig kann
Skúli við sig í Miðskógi það sem
af er? „Þetta er búið að vera alveg
dásamlegt. Brjálað að gera í hey-
skap, tiltekt og breytingum,“ bætir
hann við og telur sig hafa tekið við
góðu búi. „Bústofninn er góður en
það mættu vera meiri nyt í kúnum.
En líklega er þar um að kenna heyj-
unum frá því í fyrra, þau voru lé-
leg hér eins og víða. Ég náði aðeins
upp nytunum í maí og júní með því
að auka fóðrið og gefa vel af fóð-
urbæti.“
Hvetur fleiri til að
gerast bændur
Um þessar mundir er fyrri slætti í
Miðskógi lokið og heyskapur hef-
ur gengið vel að sögn Skúla. Nú
styttist í seinni sláttinn og bóndinn
bíður eftir rigningu svo háin megi
spretta sem best. „Mér finnst einna
skemmtilegast, enn sem komið er,
hvað túnin hér eru skemmtileg að
vinna á, ég er ekki vanur því að
norðan. Þar voru þetta smá bleðl-
ar út um allt. Hér eru þau stór og
mikil, mjög þægileg að vinna á,“
segir hann kátur og sæll.
„Ég mæli með þessu og hvet
fleiri til að gerast bændur. Þetta er
alveg snilld,“ segir Skúli. „Þetta er
allavega besta megrunaraðferð sem
hægt er að fá. Ég held ég sé búinn
að léttast um tólf kíló síðan ég kom
í maí,“ segir Skúli að lokum, léttur í
bragði. kgk
Lét gamlan draum rætast og gerðist kúabóndi
Skúli Hreinn Guðbjartsson, bóndi í Miðskógi í Dölum.
Reykholtshátíð fór fram um ný-
liðna helgi, en hátíðin hefur ver-
ið haldin árlega frá árinu 1997.
Hátíðin hófst á föstudagskvöld-
inu með opnunartónleikum Karla-
kórsins Heimis, þar sem fullt var
út úr dyrum. Á tónleikunum var
Þóra Einarsdóttir sópran sérstakur
gestur. „Hátíðin gekk vonum fram-
ar, allir tónleikarnir gengu eins og
best var á kosið og voru allir mjög
vel sóttir. Veðrið var gott og nóg
af fólki á svæðinu,“ segir Sigur-
geir Agnarsson stjórnandi hátíðar-
innar í samtali við Skessuhorn. Á
laugardeginum hélt Páll Bergþórs-
son veðurfræðingur fyrirlestur um
Vínlandsgátuna í Snorrastofu þar
sem aðsókn var einnig mjög góð.
arg/ Ljósm. bhs.
Reykholtshátíð gekk vonum framar
Gestir Reykholtshátíðar
Karlakórinn Heimir hélt opnunartónleika á föstudagskvöldinu. Gestir Reykholtshátíðar.