Skessuhorn - 29.07.2015, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 201512
Hollenska flutingaskipið Happy
Dover kom til hafnar í Grundar-
tanga á þriðjudagskvöld með nýj-
an og öflugan krana sem sinna á
uppskipun og útskipun í Grundar-
tangahöfn. Kraninn verður annar
af tveimur stærstu sinnar tegundar
hér á landi og mun geta lyft tveim-
ur 20 feta gámum í einu. Kraninn
er í eigu Eimskipa. Hann verður
rafknúinn og því verður útblásturs-
mengun frá honum í lágmarki.
Afkastageta hafnarinnar
aukin
Eimskip hafa keypt tvo krana af
þessari gerð. Happy Dover skil-
aði öðrum þeirra af sér við álver-
ið á Reyðarfirði og tók þaðan eldri
hafnarkrana og flutti til Reykja-
víkur. Sá krani á að leysa af kran-
ann Jaka sem þjónað hefur dyggi-
lega í Sundahöfn um árabil. Jaki fer
í yfirhalningu eftir langa og dygga
þjónustu. „Koma kranans er mik-
il tímamót fyrir Grundartanga-
höfn. Hingað til hefur verið treyst
á skipakranana í uppskipunum og
útskipunum þar og það getur ver-
ið seinlegt. Með þessum nýja krana
er þannig verið að auka verulega
afkastagetu Grundartangahafnar.
Í raun er þetta undirstrikun á því
mikla vörumagni sem fer í gegnum
Grundartanga og er vaxandi,“ seg-
ir Gísli Gíslason hafnarstjóri Faxa-
flóahafna.
Markar tímamót
Gísli segir að koma nýja hafnar-
kranans sé hluti af ákveðinni fram-
tíðarsýn sem nú sé að taka á sig stöð-
ugt skýrari mynd. „Við sjáum fyr-
ir okkur að Sundahöfn í Reykjavík
og Grundartangi í Hvalfirði munu
spila miklu meira saman á komandi
árum þegar kemur að innflutningi
og útflutningi. Nýi kraninn opn-
ar möguleika til að skipta flutn-
ingum meira en verið hefur þann-
ig að þungavörur og plássfrekar fari
frekar í gegnum Grundartanga en
hitt um Sundahöfn. Í þessu sam-
bandi má líka nefna að Eimskip
hafa fengið úthlutað þremur lóðum
á Grundartanga þar sem fyrirtæk-
ið hyggst reisa vöruhótel. Staðsetn-
ing nýja hafnarkranans er enn eitt
merkið um það hvernig menn horfa
á þróunina hér við Faxaflóann. Þar
eru að mínu mati framundan bæði
skynsamlegar og jákvæðar breyt-
ingar,“ segir Gísli Gíslason hafnar-
stjóri. mþh
Nýr og öflugur bryggjukrani kemur til Grundartanga
Happy Dover siglir inn Hvalfjörðinn með nýja kranann á þilfari. Kraninn er blár á lit og merktur Eimskipum.
Skipaflutningar um Grundartanga aukast stöðugt og munu væntanlega gera enn
þegar höfnin þar hefur fengið nýjan krana. Hér mætir Happy Dover flutningaskip-
inu Wilson Flushing á útleið til móts við Galtarvík.
Kraninn hefur verið settur upp á hafnarsvæðinu á Grundartanga og er strax orðinn áberandi kennileiti þar sem hann stendur
á hafnarbakkanum.
Starfsmenn Klafa tóku á móti Happy Dover þegar skipið lagðist að bryggju.
Nýi kraninn gnæfir til himins á þilfari Happy Dover.