Skessuhorn - 29.07.2015, Qupperneq 24
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 201524
„Það var starfslýsingin sem heillaði
mig. Mér fannst magnað að það væri
til starf sem sameinaði áhugamál
mín, menntun og starfsreynslu. Það
varð náttúrlega til þess að ég ákvað
að sækja um,“ sagði Sigríður Hjálm-
arsdóttir, nýráðinn menningar- og
markaðsfulltrúi Grundarfjarðarbæj-
ar, í samtali við Skessuhorn. „Ekki
skemmdi fyrir að það var í Grund-
arfirði. Mamma, Signý Bjarnadótt-
ir, er frá Bjarnarhöfn þannig að þar
á ég ættingja, sem og í Grundarfirði
og víðar á Snæfellsnesinu. Svo þótti
mér ágætt að fara aðeins af höfuð-
borgarsvæðinu en hafa það samt í
þægilegri fjarlægð. Það er tiltölulega
stutt fyrir mig að skreppa þangað og
heimsækja fjölskyldu og vini og að
sama skapi fyrir þá að renna vestur.
Ég er alin upp á Sauðárkróki þann-
ig að ég er ekkert óvön því að búa
á landsbyggðinni og hef mætt mik-
illi jákvæðni þann stutta tíma sem
ég hef verið fyrir vestan undanfarið.
Þar er greinilega gott fólk sem styð-
ur við bakið á hverju öðru,“ bætir
hún við.
Byrjar í ágúst
Sigríður tekur formlega við starf-
inu eftir verslunarmannahelgi. „Ég
er í raun bara búin að fara í nokkurs
konar starfskynningu og líst mjög
vel á, bæði starfið og verðandi sam-
starfsfólk mitt. Forveri minn, hún
Alda Hlín, er augljóslega búin að
vinna þarna mjög gott starf þannig
að það verður heilmikið verk að feta
í hennar spor,“ segir Sigríður. Starf-
ið segir hún nokkuð yfirgripsmik-
ið. Undir markaðsmálahlutann falli
kynning á sveitarfélaginu, samskipti
við fjölmiðla og fleira. Menningar-
hlutinn nái aftur yfir ýmsa viðburði
sem haldnir eru í bænum, sögumið-
stöðina og íþróttastarf, svo fátt eitt
sé nefnt.
Í íþróttunum er Sigríður svo að
segja á heimavelli, kveðst alltaf hafa
stundað þær af miklu kappi. „Ég spil-
aði fótbolta og körfu, var í frjálsum
og æfði sund þegar ég var yngri. Svo
var ég í skátunum og á skíðum. Ég
var í öllu,“ segir hún. „Ég hef aldrei
sagt alveg skilið við fótboltann, hef
spilað innanhússbolta flesta vet-
ur eftir að ég hætti að keppa,“ seg-
ir Sigríður, en hún varð einmitt Ís-
lands- og bikarmeistari með Breiða-
bliki árið ´96 þar sem hún lék sem
sóknarmaður. „Þessa dagana er ég
svo að æfa mig í golfinu. Ég er sko
ekki hætt í íþróttunum,“ segir hún
og hlær við.
Ætlaði að verða
sjúkrahúsprestur
Sigríður hefur víðtæka reynslu úr at-
vinnulífinu. Hún hefur starfað sem
blaðamaður og við önnur ritstörf,
verið stundakennari í Háskóla Ís-
lands, starfað að æskulýðsmálum,
knattspyrnuþjálfun og við löggæslu.
Einnig starfaði hún hjá KOM al-
mannatengslum ehf. þar sem hún sá
um kynningarmál og viðburðastjór-
nun.
Sigríður er með meistarapróf
í mannauðsstjórnun en háskóla-
ganga hennar hófst á guðfræði-
námi. „Ég byrjaði í guðfræðinni
þegar ég var tvítug og ætlaði mér
alltaf að verða sjúkrahúsprest-
ur. Fannst það mjög áhugavert og
sá fyrir mér að það myndi henta
mér vel,“ segir hún. „Síðan fór ég
að vinna við fjölmiðla og við al-
mannatengsl og þótti það mjög
skemmtilegt. Þá hægðist á náminu
og áhuginn dreifðist yfir á fleira
meðfram því. En mig langaði allt-
af að fara í mastersnám og þótti
mannauðsstjórnun mjög áhuga-
verð. Það var virkilega skemmti-
legt nám,“ segir hún. „Ég hef allt-
af hugsað með mér að kannski taki
ég bara embættisnámið „þegar ég
verð orðin stór,“ núna er ég bara
að gera svo margt annað,“ segir
hún og bætir því við að hún hlakki
mikið til að flytja í Grundarfjörð
ásamt yngri dóttur sinni, Signýju
Maríu. Sú eldri, Sandra Björk, flyt-
ur ekki með enda er hún að stofna
sína eigin fjölskyldu og mun gera
Sigríði að ömmu innan tíðar. „Það
eru spennandi tímar framundan
og þetta leggst rosalega vel í mig,“
segir Sigríður Hjálmarsdóttir að
lokum, glöð í bragði.
kgk
Hlakkar mikið til að flytja í Grundarfjörð
Sigríður Hjálmarsdóttir ásamt dætrum sínum tveimur, Söndru Björk og Signýju Maríu. Ljósm. Kristinn Hjálmarsson.
„Þessar verbúðir sem verið er að grafa
upp núna eru frá 15. öld en byggð
hefur verið á Gufuskálum mikið leng-
ur, sennilega frá landnámi og alltaf
byggst á sjósókn,“ sagði Lilja Páls-
dóttir, fornleifafræðingur við Forn-
leifastofnun Íslands ses, þegar blaða-
mann Skessuhorns bar að garði. Hóp-
ur fornleifafræðinga á vegum Forn-
leifastofnunar Íslands ses vinnur nú
við uppgröft við Írskrabrunn, rétt
austan við Gufuskála, í samvinnu við
City University of New York og Stirl-
ing-háskólann í Skotlandi.
Lifðu við góðan kost
Að sögn Lilju hefur hópurinn þegar
fundið ýmislegt sem geti bent til þess
að fólk í verbúðum hafi hreint ekki
haft það jafn slæmt og almennt hef-
ur verið talið. Verbúðirnar voru einn-
ig að öllum líkindum staðir þar sem
fjöldi fólks kom saman, bæði karl-
ar, konur og börn, auk þess sem er-
lendir kaupmenn og farmenn komu
með skipum. „Miðað við til dæmis
þau dýrabein sem við höfum fundið
þá borðaði þetta fólk besta kjöt sem
völ var á, dýrustu bitana. Kindur sem
aðeins voru aldar fyrir kjötið,“ seg-
ir hún. „Hér hafa einnig fundist fjöl-
margir fallegir gripir. Bæði heima-
gerðir, úr beinum og tré, en einn-
ig innfluttir gripir, taflmenn og kop-
argripir. Nýlega fundum við kopar-
hring, alveg heilan sem hefur ver-
ið með steini og fleiri skrautmuni úr
kopar. Við túlkum það sem svo að hér
hafi líka búið konur, ekki aðeins karl-
ar,“ bætir hún við.
Lilja vill þó ekki ganga svo langt að
segja að hugmyndum okkar um ver-
búðalíf fyrr á öldum hafi verið koll-
varpað. „Þær upplýsingar sem við
fáum úr þessum uppgreftri hér eru
ekki nógu miklar til að hægt sé að
fullyrða eitthvað um það. En við höf-
um vissulega vísbendingar um að fólk
hafi kannski bara haft það fínt hérna,
jafnvel betra en gerðist almennt,“ seg-
ir hún.
„Hér hefur verið veiddur fiskur og
verkaður til útflutnings. Það má sjá á
fiskbeinunum sem fundist hafa hér.
Mest eru það hausabein, sem bendir
til þess að hausinn hafi verið skorinn
af, fiskurinn flattur og síðan þurrkað-
ur,“ segir Lilja og bætir því við að út-
flutningnum hafi líklega fylgt verslun
með aðrar vörur. Það útskýri ef til vill
þá haglegu gripi sem fundist hafa á
svæðinu og geti skýrt hvers vegna íbú-
ar hér hafi haft það jafn gott og upp-
götvanir þeirra gefi vísbendingar um.
Samfelld byggð á
Gufuskálum
Áður en hafist var handa við að grafa
upp verbúðina árið 2012 var þar að-
eins gróinn sandhóll en vegna land-
brots sást hleðslugrjót í rofsárunum.
Fleiri slíkir hólar eru á svæðinu, fimm
talsins og segir Lilja að undir þeim
leynist rústir mannvirkja og mann-
vistarleifar frá fyrri tíð. „Við höfum
grafið rannsóknarskurði í tvo þess-
ara hóla og það er víst að þarna und-
ir leynast rústir. Okkur grunar að hér
á Gufuskálum hafi verið ein samfelld
byggð,“ segir hún.
Þar sem gengið er í átt að stærsta
sandhólnum sér blaðamaður ekk-
ert annað en grjót á víð og dreif um
gróinn sandbakkann í fjörunni. Lilja,
verandi fornleifafræðingur, sér hins
vegar móta fyrir hlöðnum húsveggj-
um hvar sem fæti er drepið niður.
Þegar hún útskýrir málið fyrir blaða-
manni kemur hann auga á mynstur,
grjótið í fjörunni er ekki bara á víð
og dreif, því hefur verið komið fyrir.
„Hér hafa alls staðar verið bygging-
ar,“ segir Lilja.
„Tíminn er ekki
vinur okkar“
Þegar komið er að stærsta sandhóln-
um má sjá hvar grafinn hefur verið
könnunarskurður úr honum framan-
verðum. Þar komu að sögn Lilju í ljós
tvær byggingar. Önnur frá 15. öld og
hin frá þeirri 17. Þessar minjar, sem
og þær sem unnið er að því að grafa
upp núna, eiga á hættu að glatast því
sjó gengur stöðugt á land í vondum
veðrum og hrífur með sér allt sem á
vegi hans verður. „Við erum búin að
missa fimm metra framan af strand-
lengjunni síðan við byrjuðum að
fylgjast með landbrotinu 2008 og þar
af einn metra bara núna í vetur,“ seg-
ir Lilja enda var oft og tíðum mjög
hvasst svo sjó gekk langt upp í land.
„Ég hefði eiginlega ekki trúað því
að sjórinn næði alla leið hingað upp
fyrr en ég sá slóð af sandpokunum,
sem við notum til að hlífa minjunum,
ná alla leið niður í flæðarmál,“ segir
hún. En hvernig er útlit með áfram-
haldandi rannsóknir og uppgröft á
Gufuskálum? „Það er ómögulegt að
segja. Allt er þetta peningum háð.
Ef það fæst fjármagn verður hægt að
halda áfram. Þá þarf bara að ákveða
hverju á að bjarga, grafa það upp, skrá
allt saman og mögulega endurbyggja
annars staðar, því ef fer sem horfir
missum við þetta allt saman í hafið á
næstu árum,“ segir Lilja. „Tíminn er
ekki vinur okkar.“ kgk
Fletta hulunni af fjölbreyttu verbúðalífi forfeðra okkar
Lilja Pálsdóttir fornleifafræðingur.
Hnífsskaft með útskornu dýrshöfði sem fannst við uppgröftinn.
Fjölmargir koparmunir hafa fundist við uppgröftinn.
Lilja segir hópinn túlka það sem svo að í verbúðinni hafi
einnig búið konur, ekki aðeins karlar.
Fjölmargir munir sem fundist hafa á
Gufuskálum bera vitni um atvinnu-
starfsemi fyrri alda. Meðal þeirra er
þessi nál sem notuð hefur verið til
viðgerða á veiðarfærum.
Íbúar fyrri tíðar hafa stytt sér stundirnar með því að
skera út í bein. Þessi liður minnir helst á mann sem setur
í brýrnar.