Skessuhorn - 29.07.2015, Side 26
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 201526
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilis-
fang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56,
300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síð-
asta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum inn-
sendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá
Skessuhorni.
Fjölmargar lausnir bárust við krossgátu í blaðinu
í síðustu viku. Lausnin var: „Spurn fræðir spakan“.
Vinningshafi er: Laufey Valsteinsdóttir, Kvíum 2, 311
Borgarnesi. mm
Gufu
Fljót
Lát-
laus
Þekkt
Púkar
Kúgun
Kona
Fædd
Árnar
Þófi
Skop-
leikarar
Enni
Þrýsta
Ötul
Eysill
Læti
Sk.st.
Heiti
4
Innyfli
Fiskur
Ætla
Ásýnd
6
Eykst
Utan
Start-
ari
Sk.st.
Óstand
Snemma
Skemmd
Tónn
Gneypar
Líka
Orka
Mjög
Eftirsjá
1
Vekja
Demban
Áhald
Reykur
Fæði
Hófdýr
Fámáll
Vær
Dýpi
Frjáls
Málmur
Hægur
Gæði
Umrót
Röð
2 Heil-
brigð-
ur
Tertu
Sér-
hljóðar
Óleyfi
Brall
Agnúi
Tónn
Kven-
dýr
Til-
hlaupi
Korn
Tvenna
Mjöður
Kvað
Dót
Röð
Næði
Tölur
5 Röskar
Tölur
Sál
Dvelur
Sætta
sig við
Sér-
hljóðar
Þröng
Kvað
Tóku
Frískur
Röð
Sár
Mæli-
eining
3 Puða
Samhlj.
7
Öf.tvíhl
Leðja
Lögun
Risar
Eink.st.
Skokk
Útlimur
1 2 3 4 5 6 7
Nafn: Elmar Snorrason.
Fjölskylduhagir/búseta: Bý í
Hvalfjarðarsveit ásamt eigin-
konu minni og þremur börnum.
Starfsheiti/fyrirtæki: Starfs-
maður í kerskála hjá Norðuráli
Áhugamál: Bílaviðgerðir og
smíði úr járni og tré.
Fimmtudagurinn 23. júlí
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan 8.
Hvað borðaðirðu í morg-
unmat? Ristaða samloku með
smjöri, osti og skinku.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Fór ekki til vinnu því
ég er í sumarfríi.
Fyrstu verk dagsins: Koma
drengnum mínum á fótboltaæf-
ingu.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá sótti ég drenginn minn á
fótboltaæfingu.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Þá
var ég að brasa í skúrnum með
börnunum mínum.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Enn að brasa í skúrnum.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Fór
ekki í vinnu en það síðasta sem
ég gerði í skúrnum var að ganga
frá eftir mig þar og fór heim
með börnin um kl. 18.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Eftir að ég kom heim gaf ég
börnunum mínum kvöldmat,
baðaði börnin mín og kom þeim
upp í rúm.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Kjúklingasúpa sem
konan mín eldaði.
Hvernig var kvöldið? Ég fór
með konunni minni í pottinn
svo kvöldið var mjög gott.
Hvenær fórstu að sofa? Um
miðnætti.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Fór í pottinn.
Hvað stendur uppúr eftir
daginn? Að hafa fengið að eyða
deginum með öllum börnunum
mínum í skúrnum.
Eitthvað að lokum? Áfram
Liverpool.
Dag ur í lífi...
Kerskálastarfsmanns
Kindur og bleikur litur voru þema
brúðkaups Herdísar Leifsdóttur og
Emils Freys Emilssonar, en þau létu
pússa sig saman í blíðskapaveðri á
bænum Mávahlíð á Snæfellsnesi
þann 27. júní. Blaðamaður rakst á
bloggsíðu Herdísar, www.123.is/
isak, þar sem hún sagði frá brúð-
kaupsdeginum í texta og myndum.
Það vakti athygli að brúðkaupið
var ólíkt hefðbundnu hvítu brúð-
kaupi en engu að síður gullfallegt,
skemmtilegt og öðruvísi. „Það hef-
ur alltaf verið draumur að gifta sig
hér í sveitinni en ég er fædd og
uppalin hér í Mávahlíð. Við vorum
þó undir það búin að veðrið myndi
ekki vera með okkur svo við vor-
um með plan B að gifta okkur í lít-
illi sveitakirkju hér á Brimsvöllum,“
segir Herdís þegar Skessuhorn
hafði samband við hana. Allt gekk
upp og dagurinn þeirra Herdísar
og Emils var nákvæmlega eins og
hann átti að vera. Veislan var haldin
í Ólafsvík þar sem bleiki liturinn og
kindurnar voru einnig allsráðandi.
arg/ Ljósm. Gunnar Ó.
Sigmarsson
Bleikur litur og kindur þema í brúðkaupi
Brúðurin mætti á bleikklæddum hesti.
Herdís og Emil með börnin sín þrjú, Benóný Ísak, Emblu Marínu og Freyju Naómí.
Lionsklúbbur Grundarfjarðar notaði
tækifærið á súpusölu félagsins á bæj-
arhátíðinni „Á góðri stund“ á laug-
ardaginn og veitti björgunarsveitinni
Klakki veglega peningagjöf. Einnig
færði klúbburinn sjúkrabíl Grundar-
fjarðar nýja ipad-spjaldtölvu til notk-
unar í bílnum. Það voru sjúkraflutn-
ingamenn staðarins sem veittu spjald-
tölvunni viðtöku. Þorbjörg Guð-
mundsdóttir tók hins vegar, fyrir hönd
björgunarsveitarinnar, við gjafabréfi
að upphæð tvöhundruð og fimmtíu
þúsund frá þeim Móses Geirmunds-
syni og Salbjörgu Nóadóttur. tfk
Lionsklúbbur Grundarfjarðar kom færandi hendi um helgina
Sjúkraflutingamenn með þeim Móses og Salbjörgu. Móses og Salbjörg ásamt Þorbjörgu Guðmundsdóttur.