Skessuhorn


Skessuhorn - 29.07.2015, Síða 31

Skessuhorn - 29.07.2015, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚLÍ 2015 31 Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is eBOX er ný, þægileg og einföld lausn til að flytja minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Á ebox.is er reiknivél sem segir þér á augabragði hver flutningskostnaðurinn er. Traust og áreiðanlegt leiðakerfi Eimskips á Norður-Atlantshafi tryggir að sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. auðveldar smásendingar Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR ������� ��������� � e���.�� F ÍT O N / S ÍA Íslandsmótið í golfi fór fram á Garða- velli á Akranesi dagana 23.-26. júlí síð- astliðna. Umgjörð mótsins var öll hin glæsilegasta. Völlurinn var hinn glæsi- legasti og fjölmargir gestir lögðu leið sína á Garðavöll til að fylgjast með bestu kylfingum landsins etja kappi. En þrátt fyrir að margir kylfingar hafi sýnt góða takta og leikið frábært golf gat aðeins einn staðið uppi sem Ís- landsmeistari í hvorum flokki. Spennan var mikil á lokahringnum í kvennaflokki en að lokum fór svo að Signý Arnórsdóttir úr Keili stóð uppi sem sigurvegari, en Skagakonan Val- dís Þóra Jónsdóttir úr Leyni hafnaði í öðru sæti, aðeins einu höggi á eftir Signýju. Í karlaflokki fagnaði Þórður Rafn Gissurarson Íslandsmeistaratitlinum á nýju mótsmeti, tólf höggum und- ir pari. Er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill bæði Signýjar og Þórðar. Lokastaðan hjá efstu kylfingum kvennaflokks: 1. Signý Arnórsdóttir, GK 289 högg (71-76-73-69) + 1 2. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 290 högg (73-74-76-67) +2 3. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 291 (74-75-73-69) +3 Lokastaðan hjá efstu kylfingum karlaflokks: 1. Þórður Rafn Gissurarson, GR 276 högg (67-73-66-70) -12 2. Axel Bóasson, GK 281 högg (69-69-71-72) -7 3. Ólafur Björn Loftsson, GKG 286 högg (72-71-70-73) -2 kgk/ Ljósm. seþ og kgk. Signý og Þórður eru Íslandsmeistarar í golfi Signý Arnórsdóttir og Þórður Rafn Gissurarson hömpuðu bæði sínum fyrsta Ís- landsmeistaratitli á Íslandsmótinu í golfi sem fram fór á Akranesi um helgina. Heimamaðurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni hafnaði í öðru sæti Íslands- mótsins í ár, aðeins einu höggi á eftir Signýju Arnórsdóttur. Stúlknalið Íslands í körfuknattleik Evrópu- meistari í C-deild kvenna 16 ára og yngri á Evrópumótinu í Andorra sem lauk laugardag- inn 25. júlí síðastliðinn. Vestlendingar eiga sinn fulltrúa í liðinu, en það er hún Anna Soffía Lárusdóttir sem leikur með Snæfelli í Stykkishólmi. Liðið vann alla leiki sína á mótinu með nokkrum yfirburðum og þar með talinn sjálf- an úrslitaleikinn gegn Armeníu. Þó var nokk- uð jafnt á með liðunum framan af og staðan í hálfleik 33-24 fyrir Íslandi í hálfleik. Stúlk- urnar gerðu aftur á móti út um leikinni með því að skora 19 stig í röð í þriðja leikhluta og fögnuðu að lokum öruggum sigri, 76-39 og Evrópumeistaratitlinum. kgk Evrópumeistarar í körfuknattleik Lið Íslands sem tók þátt í Evrópu- mótinu í Andorra. Anna Soffía Lárus- dóttir úr Snæfelli er lengst til hægri í aftari röð leikmanna liðsins. Ljósm. fengin af facebook-síðu KKÍ. ÍA heimsótti HK/Víking 1. deild kvenna í knattspyrnu miðvikudaginn 22. júlí sl. Fyrir leikinn var HK/Víkingur langefst í A riðli, með 19 stig og án taps. Skagastúlkur voru hins vegar í því fjórða með 9 stig eftir sex leiki. Viðureign þessara liða á Akranesvelli fyrr í sumar lauk með markalausu jafntefli og sú varð einnig raunin á Víkingsvelli. Heimamenn í HK/Víkingi voru sterkari framan af leik en vörn ÍA var þétt og gaf fá færi á sér. Skagastúlkur náðu að skapa sér nokkur færi í fyrri hálfleik en tókst ekki að nýta þau. Í síðari hálfleik var áfram jafnt á með lið- unum. Enn sköpuðu ÍA-stúlkur sér færi sem fóru forgörðum. Heimamenn ógnuðu en vörn ÍA var sterk og hafði svör við öllum sóknarað- gerðum HK/Víkings. Niðurstaðan þegar flautað var til leiks- loka, eins og áður sagði, markalaust jafnt- efli og fjórða jafntefli ÍA í sumar. Athygli vek- ur að einu stigin sem HK/Víkingur hefur tap- að það sem af er sumri eru jafnteflisleikirnir tveir gegn Skagastúlkum. Úrslitin þýða að Skagastúlkur eru sem fyrr í fjórða sæti riðilsins, nú með 10 stig eftir sjö leiki. Næsti leikur liðsins er gegn Haukum á Akranesvelli laugardaginn 8. ágúst. kgk Jafntefli gegn toppliði HK/ Víkings ÍA mætti Leikni í 13. umferð Ís- landsmóts karla í knattspyrnu á Akranesvelli á sunnudag. Fyrir leik- inn voru Skagamenn í níunda sæti deildarinnar með 13 stig en Leikn- ir í því ellefta með 10. Fyrri viður- eign liðanna í sumar lauk með 0-1 sigri ÍA. Liðin voru nokkuð jöfn framan af leik. Leiknismenn voru heldur yfirvegaðri í samleik sínum en ekki nógu beinskeyttir fram á við. Skaga- menn vörðust prýðilega og sóknar- aðgerðir þeirra voru markvissari. Á 22. mínútu átti Darren Lough frá- bæra fyrirgjöf frá vinstri sem Hall- ur Flosason rétt missti af. Bolt- inn barst á Eggert Kára Karlsson. Hann fór framhjá varnarmanni, lagði hann á Jón Vilhelm Ákason sem skaut að marki en Leiknis- menn björguðu á línu. Á 38. mínútu náðu Skagamenn forystunni. Eftir aukaspyrnu frá hægri barst boltinn til Ásgeirs Mar- teins sem náði að snúa og skjóta að marki úr erfiðri stöðu. Eyjólf- ur Tómasson í marki Leiknis náði ekki að halda boltanum. Egg- ert Kári náði frákastinu og skor- aði auðveldlega úr markteignum en Eyjólfur hefði ef til vill átt að gera betur. Staðan í hálfleik 1-0. Í síðari hálfleik var áfram nokkuð jafnt á með liðunum. Garðar Gunn- laugsson hefði getað komið ÍA í 2-0 eftir að hann vann boltann af varn- armanni Leiknis en skot hans hár- fínt framhjá. Stuttu síðar átti Kol- beinn Kárason skalla í þverslánna og skömmu seinna þrumaði Hall- dór Kristinn Halldórsson boltan- um yfir af markteig Skagamanna. Leiknismenn virtust ná meiri og betri tökum á leiknum eftir því sem leið á. Nokkrum sinnum reyndi á vörn Skagamanna eftir kantspil Leiknismanna. Þeir skoruðu síð- an á 78. mínútu en það var dæmt af vegna rangstöðu við kröftug mót- mæli gestanna, bæði innan vallar sem utan. Skagamenn gerðu tvöfalda skipt- ingu á 82. mínútu og aðeins tveim- ur mínútum síðar skoraði varamað- urinn Marko Andelkovic. Skaga- menn voru í skyndisókn þegar bolt- inn barst til Þórðar Þorsteins Þórð- arsonar í utanáhlaupi á hægri kanti. Sendingin var ekki alveg nógu góð og sóknin virtist vera að renna út í sandinn. Þórður náði hins veg- ar að koma boltanum fyrir þar sem Marko tók á móti honum, fór framhjá einum varnarmanni, lagði boltann í fjærhornið og kom Skaga- mönnum í 2-0. Undir lok venjulegs leiktíma fékk Ásgeir Marteinsson dauðafæri eft- ir frábæra stungusendingu en Eyj- ólfur í marki Leiknis gerði vel og varði skot hans og Leiknismenn eygðu enn veika von. Þeir minnk- uðu muninn á 94. mínútu með undarlegu marki. Boltanum var þá lyft inn á teig Skagamanna, djúpt af hægri kanti. Danny Schreurs tókst að pota honum framhjá Árna Snæ í markinu og í stöngina. Þar kom Halldór Kristinn Halldórsson og lagði boltann í netið. Skagamenn heimtuðu rangstöðu en dómarinn sýndi því lítinn áhuga og markið stóð. Fleiri mörk voru hins vegar ekki skoruð og lokatölur á Akranesvelli 2-1, Skagamönnum í vil. Úrslitin gera það að verkum að ÍA lyftir sér upp um eitt sæti í deild- inni, situr nú í því áttunda með 16 stig eftir 13 leiki og er búið að slíta sig aðeins frá liðunum í botnbarátt- unni. Næsti leikur Skagamanna er úti- leikur gegn Víkingi R. miðvikudag- inn 5. ágúst næstkomandi. kgk/ Ljósm. Guðmundur Bjarki Halldórsson. Skagamenn slíta sig frá botnbaráttunni með sigri á Leikni Marko Andelkovic skoraði síðara mark Skagamanna í 2-1 sigri liðsins gegn Leikni síðastliðinn sunnudag. Leikmenn Vík- ings Ó. tóku á móti Gróttu í 13. umferð fyrstu deild- ar karla í knatt- spyrnu á Ólafs- víkurvelli föstu- daginn 24. júlí síðastliðinn. Leikurinn fór heldur rólega af stað og fátt markvert gerð- ist á vellinum þar til Víking- um tókst að brjóta ísinn á 28. mínútu. Ingólfur Sigurðsson gaf þá fasta lága fyrirgjöf frá vinstri fyrir mark gest- anna. Boltinn hrökk út í teiginn og fyrir fætur Björns Pálssonar sem lagði hann snyrtilega í vinstra hornið. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik og heimamenn í Víkingi leiddu með einu marki gegn engu í leikhléi. Gróttumenn mættu ákveðnir til síðari hálfleiks, staðráðnir í að jafna metin. Heimamenn kæfðu þær hug- myndir gestanna hins vegar í fæð- ingu og juku forystu sína þegar síðari hálfleikur var fimm mínútna gamall. Víkingar fengu aukaspyrnu af 30m færi sem Ingólfur tók. Hann lét vaða á markið en Árni Freyr Ásgeirsson varði í marki Gróttu. Boltinn féll fyr- ir Guðmund Reyni Gunnarsson sem skaut að marki, aftur varði Árni en þetta sinn- ið beint fyr- ir fætur Al- freðs Más H j a l t a l í n sem lagði hann í mark- ið. G r ó t t u - menn höfðu rétt tek- ið miðj- una því að- eins þrem- ur mínútum síðar skor- uðu heimamenn þriðja mark leiksins. Emir Dokara tók innkast frá hægri sem tveir leikmenn misstu af. Boltinn skoppaði einu sinni í vítateignum í átt að Alfreð sem skallaði hann örugg- lega í markið. Leikurinn róaðist verulega eftir þetta og fátt markvert gerðist þar til á 77. mínútu. Emir átti þá góðan sprett upp völlinn, lagði boltann fyrir fætur Ingólfs sem skoraði með föstu skoti í markhornið. Fleiri mörk voru ekki skoruð á Ólafsvíkurvelli og leiknum lauk því með 4-0 stórsigri Víkinga. Lið Víkings er eftir leikinn í öðru sæti deildarinnar með 29 stig eftir 13 leiki, aðeins einu stigi á eftir topp- liði Þróttar. Næst mæta Víkingar liði Selfoss á útivelli. Sá leikur fer fram í kvöld, miðvikudaginn 29. júlí. kgk Stórsigur Víkings á Gróttu Alfreð Már Hjaltalín skallar hér boltann í netið í 4-0 sigri Víkings Ó. á Gróttu síðastliðinn föstudag. Ljósm. af. Leikmenn Víkings Ó. tóku á móti Álftanesi í 10 umferð 1. deildar kvenna í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli fimmtudaginn 23. júlí sl. Fyrri viður- eign liðanna í sumar lauk með 2-2 jafntefli og fyrir leikinn hafði Víking- ur sex stiga forskot á gestina frá Álfta- nesi. Farið er að síga á seinni hlutann á riðlakeppninni og með sigri gátu Víkingskonur gert harða atlögu að sæti í úrslitakeppninni um laust sæti í úrvalsdeild að ári. Þær lentu hins vegar undir eftir 18 mínútna leik þegar Guðrún Ingi- gerður Jónsdóttir skoraði fyrir Álft- nesinga. Staðan í hálfleik 0-1, gestun- um í vil. Erna Birgisdóttir bætti öðru marki við fyrir Álftnesinga á 71. mínútu en Samira Suleman minnkaði muninn úr víti aðeins tveimur mínútum síð- ar. Leikmönnum Víkings tókst hins vegar ekki að bæta við marki heldur voru það gestirnir sem skoruðu sitt þriðja mark þegar komið var vel fram í uppbótartíma. Lokatölur á Víkings- velli 1-3, Álftnesingum í vil og fyrsta tap Víkings á heimavelli í sumar stað- reynd. Eftir tapið í gærkvöldi situr liðið í fjórða sæti B riðils með 14 stig eftir níu leiki. Þrír leikir eru eftir og Vík- ingur á enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina, þrátt fyrir úrslit gær- dagsins. Liðið mætir FH og Grinda- vík í síðustu tveimur leikjum sumars- ins en þau lið skipa fyrsta og annað sæti riðilsins, fjórum og sex stigum á undan Víkingi. Næsti leikur liðsins verður hins vegar gegn Fjölni í Grafarvoginum föstudaginn 7. ágúst næstkomandi. kgk Fyrsta tap Víkings Ó. á heimavelli Samira Suleman skoraði eina mark Víkings í leiknum.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.