Skessuhorn - 19.08.2015, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201512
Slæmar horfur eru með vatnsbúskap
í stærstu miðlunarlónum virkjana
Landsvirkjunar. Veðurfari er um að
kenna og nú krossa Landsvirkjunar-
menn fingur og vona að veðráttan í
ágúst og september verði hagstæð á
hálendinu svo koma megi í veg fyrir
skömmtun til stórnotenda í vetur.
Í frétt frá fyrirtækinu segir að maí
og júní hafi reynst kaldir mánuðir á
Austurlandi. Í lok júní var búist við
að staðan gæti breyst hratt, með
hækkandi hita færi bráðnun í gang
og rennsli ykist. Veðurfar í júlí ein-
kenndist hinsvegar af ríkjandi norða-
nátt með kuldum og skýjuðu veðri.
Afrennsli af jöklinum jókst einungis
lítillega en hiti og sólgeislun á neðri
hluta Brúarjökuls hafa ekki áður
mælst jafn lág í júlí. Rennsli Jökulsár
á Dal hefur verið mælt allt frá árinu
1963. Meðalrennsli fyrir síðastliðinn
júlímánuð var um 180 m3/s en það er
lægsta rennsli miðað við sama mán-
uð allt frá upphafi mælinga og að-
eins tæpur helmingur meðalrennsl-
is. Leita þarf aftur til ársins 1993 til
að finna viðlíka meðalrennsli í júlí í
Jökulsá á Dal en þá mældist rennsl-
ið 210 m3/s. Sá mánuður var kaldur
á Austurlandi og var meðalhiti á Eg-
ilsstöðum 7,5°C en í ár mældist hann
svipaður eða 7,6°C. Meðalhiti í júlí
á Egilsstöðum frá 1963 er 10,6°C.
Nokkuð svipaða sögu er að segja
af Blöndusvæði. Hiti á Hveravöll-
um hefur ekki mælst jafn lágur síð-
an í júlí 1993, líkt og á Austurlandi.
Innrennsli Blöndulóns var í takt við
veðráttuna en meðal innrennsli í júlí
var 49 m3/s sem er lægsta innrennsli
í júlí síðastliðinn áratug. Aðstæður
á Þjórsársvæði í maí voru keimlík-
ar aðstæðum fyrir norðan og austan,
kalt og lítið rennsli. Sá mikli snjór
sem safnast hafði á svæðinu hélst því
nokkuð stöðugur allt fram í júní þeg-
ar lofthiti fór að stíga. Rennsli Þjórs-
ár og Tungnaár hefur verið mælt frá
árunum 1988 og voru mánuðirn-
ir júní og júlí nokkuð svipaðir og í
meðalári. Kalt hefur verið á Þjórs-
ár-Tungnaársvæðinu í júní og júlí en
þar hefur hinn mikli snjór sem safn-
aðist fyrir síðastliðinn vetur hjálp-
að til við fyllingu lóna. Nú hefur all-
an snjó tekið upp og rennsli síðsum-
ars mun stjórnast af úrkomu og jök-
ulbráð.
Þessi niðurstaða fyrir júlímánuð
hefur gerbreytt horfum fyrir fyllingu
miðlunarlóna Landsvirkjunar eins
og þær voru settar fram í upphafi
júlí. Skortur á jökulbráð hefur vald-
ið því að Hálslón hefur aðeins hækk-
að um tæpa 10 m í júlí og stendur
nú í 593 m y.s. eða 37% fylling. Það
vantar því yfir 30m að það fyllist í
haust og nú eru innan við helmings-
líkur að það gerist. Svipaða sögu er
að segja með Blöndulón, fylling þar
hefur nánast stöðvast seinni hluta júlí
og er nú um 55%. Besta staðan er á
Þjórsársvæðinu. Þórisvatn og Há-
göngulón eru aðeins yfir væntingum
frá í byrjun júlí og fyllingin er nú um
78%. Í ljósi þessarar breyttu stöðu
hefur Landsvirkjun hagað vinnslu
kerfisins með það að markmiði að
auka sem mest líkur á að staða Háls-
lóns verði viðunandi í haust. Hag-
stætt veðurfar í ágúst og september
getur breytt talsverðu um vatnsstöðu
Landsvirkjunar. Ef innrennsli heldur
áfram að vera nálægt lægstu mörk-
um fram eftir hausti gæti þurft að
minnka afhendingu á raforku í upp-
hafi vetrar. mm
Vaxandi líkur á að skammta þurfi
rafmagn í haust til stórnotenda
Sumarhátíðin Hvalfjarðardag-
ar verða haldnir síðustu helgina í
ágúst, dagana 28.-30. ágúst, og er
þetta annað árið sem hátíðin spann-
ar heila helgi. Upphaf Hvalfjarða-
daga má rekja til töðugjalda og sum-
arlokahátíðar sem fyrst var hald-
in fyrir átta árum. Hvalfjarðardag-
urinn var svo haldinn í fyrsta skipti
fyrir fjórum árum og þá af frum-
kvæði aðila í ferðaþjónustu í sveit-
inni. Menningar- og atvinnuþróun-
arnefnd sveitafélagsins hefur einn-
ig komið að skipulagi hátíðarinnar
síðustu ár. Heiður Hallfreðsdóttir
frá Kambshóli sér um hátíðina fyr-
ir hönd undirbúningshóps Hval-
fjarðardaga. Í spjalli blaðamanns við
Heiði kom eftirfarandi fram:
Áhersla er lögð á fjölbreytta dag-
skrá um alla sveit og ættu allir að
geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Hátíðin hefst á föstudeginum með
erindi frá Safnahúsi Borgarfjarðar
að Hlöðum. Fjallað verður um sér-
stöðu sýningarinnar Gleym þeim ey.
Sagt verður frá Helgu Pétursdóttur
frá Draghálsi og verður það Þóra
Elfa Björnsson, barnabarn Helgu
Pétursdóttur, og Guðrún Jónsdótt-
ir forstöðumaður Safnahússins sem
koma og segja frá. Á föstudagskvöld-
inu verður sveitagrill í Fannahlíð en
þar koma sveitungar og aðrir gestir
saman og grilla. Þessi liður hátíðar-
innar var nýr á síðasta ári og stimpl-
aði sig vel inn í hátíðina svo ákveðið
var að halda þessu áfram í ár.
Eitthvað fyrir alla á
laugardeginum
Fjölbreytt dagskrá verður á laug-
ardeginum en þá verður Hval-
fjarðarhlaupið haldið í fyrsta sinn
en það er skipulagt af ungmenna-
og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveit-
ar. Hægt verður að velja um þrjár
vegalengdir til að hlaupa; 5, 7 og
14 km með tímatöku. Veitt verða
verðlaun fyrir fyrsta sæti karla og
kvenna í þremur aldursflokkum.
Skráning í hlaupið er á www.hlaup.
is. Sjóbaðsfélag Akraness stendur
fyrir Helgusundi. Synt verður úr
Geirshólma yfir í land við Helguvík
og er leiðin um 1.600 metra löng.
Björgunarfélag Akraness verður
sundfólki innan handar á leiðinni.
Áhugasamir geta skráð sig á hval-
fjardardagar@hvalfjardarsveit.is.
Stóri sveitamarkaðurinn verð-
ur á sínum stað á Þórisstöðum og
hefur hann aldrei verið stærri en í
ár. Partýljón Ískra daga mun halda
uppi stemningunni, spákona verð-
ur á svæðinu, boðið verður upp á
fjölskyldujóga og teymt verður
undir börnum. Á Bjarteyjarsandi
verður fjölbreytt dagskrá. Morg-
unstund með dýrum og súputón-
leikar í hlöðunni. María Jónsdótt-
ir söngkona og Óskar Magnússon
gítarleikari ætla að flytja ástarljóð
ýmissa tónskálda frá liðnum tím-
um og til okkar daga og ljúffeng
uppskerusúpa úr fersku hráefni og
heimabakað brauð verður á boð-
stólnum. Ferstikluskáli mun bjóða
upp á ís og pylsur fyrir gesti. Her-
námssetrið verður opið og verður
tveir fyrir einn á safnið og glaðn-
ingar fyrir börnin. Á laugardags-
kvöldinu verður pubquiz trúbador-
stemning á Kaffi Koti á Þórisstöð-
um.
Glæsileg sýning í
Hallgrímskirkju
Á sunnudeginum verður opið í
Vatnaskógi og boðið verður upp
á bátalán, gönguferðir og hoppu-
kastala. Sýnd verður stuttmyndin
„Áfram að markinu“ sem gerð var
í tilefni 90 ára afmæli Vatnaskógar.
Dagskránni lýkur svo með glæsi-
legri sýningu í Hallgrímskirkju í
Saurbæ með sýningu á örlagasögu
Hallgríms Péturssonar og Guð-
ríðar Símonardóttur. Steinunn Jó-
hannesdóttir rithöfundur og leik-
kona mun sýna verkið.
Það er tilvalið að taka bíltúr í
Hvalfjörðinn þessa helgi og skoða
það sem sveitin hefur uppá að
bjóða. Nánari dagskrá kemur í
næsta blaði Skessuhorns.
arg
Hvalfjarðardagar verða haldnir í lok ágúst
Svipmynd frá Hvalfjarðardögum í fyrra.