Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2015, Qupperneq 13

Skessuhorn - 19.08.2015, Qupperneq 13
FJARNÁM Skráning á önn fer fram . . á slóðinni www.fa.is/fjarnam Skólablað Skessuhorns Varúðar þörf þegar nýir vegfarendur bætast í umferðina Skólar eru nú að hefja vetrarstarf sitt hver af öðrum með tilheyrandi um- ferð barna og foreldra, gangandi eða akandi. Gert er ráð fyrir að um fjögur þúsund og fimm hundruð börn séu að fara í fyrsta skipti út í umferðina á leið til skóla í haust og því er brýn ástæða til að hvetja ökumenn til að hafa gætni að leiðarljósi í umferðinni á næstunni. Fjöldi barna á grunnskólaaldri er yfir 40 þúsund í landinu. Vegna þeirrar hættu sem börnunum getur stafað af umferðinni biður Samgöngustofa að vakin sé athygli á eftirfarandi atriðum. Þetta eru atriði sem brýnt er að for- eldrar og börnin sjálf hafi í huga. At- riði sem geta skipt sköpum varðandi öryggi barnanna. Út í umferðina Barn sem er að byrja í skóla hefur ekki þroska eða reynslu til að átta sig á því sem gefa þarf gaum í umferð- inni. Brýnum fyrir börnum að þó að þau sjái bíl þá sé ekki öruggt að bíl- stjórinn sjái þau. Höfum í huga að við erum fyrirmyndir barnanna. Hvern- ig hegðum við okkur í umferðinni? Börn læra meira af því sem við ger- um en því sem við segjum. Munum því að ganga aldrei á móti rauðu ljósi, nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað, t.d. öryggisbelti, hjólreiðahjálma og endurskinsmerki. Notum virkan ferðamáta Hvetjum börn og foreldra til að ganga eða hjóla í skólann. Það hef- ur góð áhrif á líkama og sál, er gott fyrir umhverfið og minnkar umferð í kringum skólana. Stysta leiðin í skólann er ekki alltaf sú öruggasta, miklu frekar leiðin þar sem sjaldnast þarf að ganga yfir götu. Þó aðstæð- ur séu þannig að barnið geti geng- ið eitt í skólann er samt nauðsynlegt að fylgja því fyrstu dagana og fara vel yfir allar umferðarreglur. Kenn- ið börnum einfaldar og fáar reglur til að fara eftir. Sjálfir þurfa foreldrar að fara eftir þessu reglum, ekki síst til að sýna gott og skilmerkilegt fordæmi. Ekið í skólann Ef ekið er í skóla er nauðsynlegt að gæta vel að því hvar barnið fer úr bílnum og stoppa ekki þar sem hætta getur skapast. Því skal alltaf hleypa börnum út þeim megin sem gang- stéttin er, aldrei út á akbraut. Tíu góð ráð Hér eru tíu góð ráð sem mikilvægt er að foreldrar hafi í huga og fræði börn sín um. 1. Æfum leiðina í og úr skóla með barninu. 2. Veljum öruggustu leiðina í skól- ann – ekki endilega stystu. 3. Leggjum tímanlega af stað (flýt- um okkur ekki). 4. Setjum einfaldar og fáar reglur sem barnið á að fara eftir. 5. Kennum barninu að fara yfir götu, með og án ljósastýringar. 6. Verum sýnileg, notum endur- skinsmerki. 7. Notum hjólreiðahjálm, bæði börn og fullorðnir. 8. Notum viðeigandi öryggisbúnað í bifreið, bæði börn og fullorðnir. 9. Tökum tillit til annarra vegfar- enda, sérstaklega í nánd við skóla. 10. Förum eftir leiðbeiningum skólans um umferð á skólasvæðinu. mm

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.