Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 13
FJARNÁM
Skráning á önn fer fram . .
á slóðinni www.fa.is/fjarnam
Skólablað
Skessuhorns
Varúðar þörf þegar nýir vegfarendur bætast í umferðina
Skólar eru nú að hefja vetrarstarf sitt
hver af öðrum með tilheyrandi um-
ferð barna og foreldra, gangandi eða
akandi. Gert er ráð fyrir að um fjögur
þúsund og fimm hundruð börn séu að
fara í fyrsta skipti út í umferðina á leið
til skóla í haust og því er brýn ástæða
til að hvetja ökumenn til að hafa gætni
að leiðarljósi í umferðinni á næstunni.
Fjöldi barna á grunnskólaaldri er yfir
40 þúsund í landinu. Vegna þeirrar
hættu sem börnunum getur stafað af
umferðinni biður Samgöngustofa að
vakin sé athygli á eftirfarandi atriðum.
Þetta eru atriði sem brýnt er að for-
eldrar og börnin sjálf hafi í huga. At-
riði sem geta skipt sköpum varðandi
öryggi barnanna.
Út í umferðina
Barn sem er að byrja í skóla hefur
ekki þroska eða reynslu til að átta sig
á því sem gefa þarf gaum í umferð-
inni. Brýnum fyrir börnum að þó að
þau sjái bíl þá sé ekki öruggt að bíl-
stjórinn sjái þau. Höfum í huga að við
erum fyrirmyndir barnanna. Hvern-
ig hegðum við okkur í umferðinni?
Börn læra meira af því sem við ger-
um en því sem við segjum. Munum
því að ganga aldrei á móti rauðu ljósi,
nota alltaf viðeigandi öryggisbúnað,
t.d. öryggisbelti, hjólreiðahjálma og
endurskinsmerki.
Notum virkan ferðamáta
Hvetjum börn og foreldra til að
ganga eða hjóla í skólann. Það hef-
ur góð áhrif á líkama og sál, er gott
fyrir umhverfið og minnkar umferð
í kringum skólana. Stysta leiðin í
skólann er ekki alltaf sú öruggasta,
miklu frekar leiðin þar sem sjaldnast
þarf að ganga yfir götu. Þó aðstæð-
ur séu þannig að barnið geti geng-
ið eitt í skólann er samt nauðsynlegt
að fylgja því fyrstu dagana og fara
vel yfir allar umferðarreglur. Kenn-
ið börnum einfaldar og fáar reglur til
að fara eftir. Sjálfir þurfa foreldrar að
fara eftir þessu reglum, ekki síst til að
sýna gott og skilmerkilegt fordæmi.
Ekið í skólann
Ef ekið er í skóla er nauðsynlegt að
gæta vel að því hvar barnið fer úr
bílnum og stoppa ekki þar sem hætta
getur skapast. Því skal alltaf hleypa
börnum út þeim megin sem gang-
stéttin er, aldrei út á akbraut.
Tíu góð ráð
Hér eru tíu góð ráð sem mikilvægt
er að foreldrar hafi í huga og fræði
börn sín um.
1. Æfum leiðina í og úr skóla með
barninu.
2. Veljum öruggustu leiðina í skól-
ann – ekki endilega stystu.
3. Leggjum tímanlega af stað (flýt-
um okkur ekki).
4. Setjum einfaldar og fáar reglur
sem barnið á að fara eftir.
5. Kennum barninu að fara yfir
götu, með og án ljósastýringar.
6. Verum sýnileg, notum endur-
skinsmerki.
7. Notum hjólreiðahjálm, bæði
börn og fullorðnir.
8. Notum viðeigandi öryggisbúnað
í bifreið, bæði börn og fullorðnir.
9. Tökum tillit til annarra vegfar-
enda, sérstaklega í nánd við skóla.
10. Förum eftir leiðbeiningum
skólans um umferð á skólasvæðinu.
mm