Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 14

Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201514 MEIRA EN 2000 VÖRUTEGUNDIR MEÐ ÓTRÚLEGUM AFSLÆTTI ALLT AÐ 75% AFSLÁTTURHÁFAR BÍLTÆKI HEYRNARTÓL DVD SPILARAR MP3 SPILARAR MAGNARARHLJÓMBORÐ ÚTVÖRP BÍLMAGNARAR BÍLHÁTALARARHÁTALARAR FERÐATÆKI REIKNIVÉLAR ÞRÁÐLAUSIR SÍMAR KAFFIVÉLAR STRAUJÁRN ELDAVÉLAR UPPÞVOTTAVÉLARHRÆRIVÉLAR ÖRBYLGJUOFNAR ÞVOTTAVÉLARFRYSTIKISTUR ÞURRKARAR HELLUBORÐ OFNAR MYNDAVÉLAR SJÓNVÖRP SAMLOKUGRILL BLANDARAR ÍSSKÁPAR RYKSUGUR VÖFFLUJÁRN RAKVÉLAR TAKMARKAÐ MAGN Fyrstur kemur – fyrstur fær! Sjá allt úrvalið á ht.is ÞJÓÐBRAUT 1 • AKRANESI • SÍMI 431 3333 Nýtt skólaár hófst í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi í gær, þriðju- daginn 18. ágúst, þegar skólinn var settur og tekið var á móti nýnemum á sal skólans. Kennsla hófst svo sam- kvæmt stundatöflu núna í morgun. Á föstudaginn næstkomandi verður svo haldinn kynningarfundur fyrir þá sem eru að hefja nám með vinnu. „Aðsókn í skólann fyrir þennan vet- ur hefur verið mjög góð. Um 150 nýnemar eru að hefja nám við skól- ann nú í haust. Þó er enn verið að skrá nýja nemendur svo sú tala gæti hækkað. Alls eru um 550 nemend- ur skráðir í skólann fyrir þetta skóla- ár. Um 80% nemenda við skólann eru frá Akranesi, um 15% frá öðr- um stöðum af Vesturlandi og um 5% koma frá öðrum landshlutum. Stærsti hluti nýnema eru að koma beint úr 10. bekk, eða um 82% og um 10% nýnema eru eldri en 25 ára, sem er svipað hlutfall og verið hef- ur síðustu ár,“ segir Ágústa Elín Ing- þórsdóttir, skólameistari FVA. Aðsókn í verknám hefur heldur aukist Í FVA er fjölbreytt úrval námsbrauta sem nemendur geta valið um, bæði bóknámsbrautir og verknámsbraut- ir. Að sögn Ágústu er meira um að ungt fólk og nýnemar sæki í bók- námsbrautirnar og lítið er um eldri nemendur þar. Eldri nemendur sækja meira í verknámsbrautirnar. „Aðsókn á verknámsbrautirnar hef- ur heldur aukist og þá sérstaklega í rafiðngreinum hjá ungu fólki,“ seg- ir Ágústa. Afreksíþróttasvið á bóknámsbraut Aðspurð hvort gera megi ráð fyr- ir einhverjum nýjungum í nám- inu fyrir næsta skólaár segir Ágústa svo vera. „Bóknámsbrautir til stúd- entsprófs eru nú þrjár; félagsfræða- braut, náttúrufræðabraut og opin stúdentsbraut. Innan opinnar stúd- entsbrautar eru fjögur svið sem nemendur geta valið um. Það eru listnámssvið sem byggir á samþætt- ingu við tónlistarnám, viðskipta- og hagfræðisvið, tungumálasvið og opið svið sem gefur mikla mögu- leika á vali nemenda. Nemendur á bóknámsbraut geta einnig valið afreksíþróttasvið. Sviðið er hugs- að fyrir nemendur sem hafa stund- að afreksíþróttir í töluverðan tíma og vilja hafa aukið svigrúm til að stunda íþrótt sína. Almennt verða æfingarnar á skólatíma þrisvar sinnum í viku auk annarrar fræðslu er tengist íþróttaiðkun. Um 50 nemendur hafa skráð sig á það svið í knattspyrnu, körfubolta, keilu, fimleikum og sundi. Kynjahlutfall á afreksíþróttasviði er mjög jafnt sem er ánægjuefni,“ segir Ágústa. „Bóknám til stúdentsprófs er nú þrjú ár eins og í flestum öðrum framhaldsskólum á landinu. Það nám sem skarast hefur við náms- efni grunnskóla hefur verið lagt af. Þó eiga nemendur enn kost á að fara í svokallaða brautabrú. Brauta- brú er fyrir nemendur sem lokið hafa grunnskólaprófi en uppfylla ekki skilyrði til inngöngu á aðrar námsbrautir framhaldsskóla. Meg- inmarkið brautarinnar er að veita góða undirstöðu í kjarnagreinum, þá einkum íslensku og stærðfræði, og jafnframt að gefa nemendum tækifæri til að glíma við fjölbreyti- leg viðfangsefni. Lögð er áhersla á að auka færni nemenda í samskipt- um og sjálfstæðum vinnubrögð- um,“ bætir Ágústa við. Nám fyrir fullorðna og Stóriðjuskólinn Fyrir þá sem vilja stunda nám sam- hliða vinnu er boðið upp á húsa- smíðanám, vélvirkjanám og sjúkra- liðanám í FVA. Þeir sem skrá sig í nám fyrir fullorðna samhliða vinnu þurfa helst að hafa náð 23 ára aldri og hafa tveggja ára starfsreynslu sem metin er til eininga. „Einnig hefur skólinn tekið þátt í að kenna í Stóriðjuskóla Norðuráls, en Sí- menntunarmiðstöð Vesturlands og Fjölbrautaskóli Vesturlands hafa gert með sér samstarfssamn- ing um kennsluna. Kennt er sam- kvæmt stundaskrá Stóriðjuskólans og kennslan fer fram í húsakynn- um Norðuráls á Grundartanga,“ segir Ágústa Elín Ingþórsdótt- ir skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. arg Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi Þriggja ára nám til stúdentsprófs Ágústa Elín Ingþórsdóttir, skólameis- tari FVA. Svipmynd úr skólastarfi FVA. SKÓLABLAÐ SKESSUHORNS

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.