Skessuhorn - 19.08.2015, Blaðsíða 33
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2015 33
Glæsibær, Vesturhús, 2. hæð • Álfheimar 74 • 104 Reykjavík
Sími 414 7000 • ritari@augljos.is • www.augljos.is
Fjölmiðlakonan Guðríður Har-
aldsdóttir á Akranesi hélt upp á 57
ára afmæli sitt síðastliðinn mið-
vikudag með glæsibrag. Gurrí
heldur heljarinnar veislu á sjálf-
an afmælisdaginn á hverju ári,
þar sem hún býður fjölda manns
heim. Í ár mættu yfir sextíu manns
í veisluna, þrátt fyrir slæma veð-
urspá þann daginn. Íbúð Gurrí-
ar var því þétt setin og myndaðist
biðröð inn í eldhúsið enda var vel
veitt af gómsætum veitingum. Allt
var vel heppnað, fyrir utan að fata-
hengið hrundi þegar á fimmta tug
gesta voru mættir. Svona er að eiga
afmæli í fyrstu haustlægðinni, þeg-
ar flestir mæta í yfirhöfn.
grþ
Biðröð myndaðist
í afmælinu
Afmælisbarnið ásamt nokkrum gestanna. F.v.: Nanna Rögnvaldardóttir, Gurrí
Haralds, Regína Ásvaldsdóttir og Birgir Pálsson.
Röð myndaðist inn í eldhúsið, þar sem borðin svignuðu undan kökum og öðrum
kræsingum.
Hluti af tertunum. Afmæliskakan frá
bakaranum í Bernhöftsbakaríi var með
áletruninni „Götugrill Kirkjuvalla 9.
ágúst 2015“. Þann dag var lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu með mikinn
viðbúnað við Kirkjuvelli í Hafnarfirði og
sérsveitin kölluð til. Líkt og undanfarin
ár sagðist Gurrí hafa fengið kökuna
ódýrt.
Félagarnir Ragnar Jakob Kristins-
son og Sigurður Hólmar Karlsson
tóku við Munaðarnes veitingum í
sumar með skömmum fyrirvara.
Reksturinn hefur að sögn þeirra
félaga gengið vel og nú hyggj-
ast þeir hafa opið áfram í Mun-
aðarnesi. „Stefnan hjá okkur er að
hafa opið til áramóta og erum við
að bóka núna fyrir hópa í hvata-
ferðir, námskeið, afmæli og fleira.
Nú hefur verið opnuð nuddstofa
í kjallara þjónustumiðstöðvarinn-
ar og hægt að sjá hana á Facebook
undir „Nuddstofan Munaðarnes.“
Þar er hægt að fá tíma í 60 eða 90
mínútna slökunarnudd og er það
góð viðbót við það sem staðurinn
hefur upp á að bjóða,“ segja þeir
Sigurður og Ragnar. Þeir segjast
þakklátir fyrir móttökurnar sem
þeir hafa fengið sem hafa á allan
hátt verið góðar og vinsamlegar.
mm
Ætla að hafa opið áfram í veitingasölu Munaðarness
Sigurður í brauðbakstrinum en þeir félagar baka allt sem selt er með kaffinu.
Ragnar Jakob með ljúffenga hnallþóru. Fosshótel Reykholt
auglýsir eftir starfskrafti til starfa í móttöku hótelsins
Hæfniskröfur
- Góð tungumálakunnátta
- Hæfni til að vinna undir álagi
- Sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af sambærilegum störfum kostur
Við hvetjum alla einstaklinga yfir 18 ára aldri sem hafa áhuga á að
vinna í skemmtilegu, krefjandi og vinalegu umhverfi til að sækja um.
Einstaklingar þurfa að geta hafið störf í ágúst. Um er að ræða
framtíðarstarf.
Ferilskrá og meðmæli sendist á addi@fosshotel.is