Skessuhorn


Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 36

Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 36
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 201536 Vörur og þjónusta R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 Hilmir B ehf Alhliða pípulagningaþjónusta hilmirb@simnet.is facebook.com/hilmirbehf Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is Vélabær ehf. Bæ í Bæjarsveit Alhliða viðgerðarþjónusta á bílum, dráttarvélum og vélum tengdum landbúnaði Smur og hjólbarðaþjónusta velabaer@vesturland.is S K E S S U H O R N 2 01 3 Undanfarnar vikur hafa fjársvikar- ar í ýmsum löndum haldið áfram að hringja í fólk hér á landi og freistað þess að símhringingum verði svar- að með að hringt sé til baka í við- komandi símanúmer. Slíkt er hins vegar afar varasamt þar sem viðbú- ið er að dregnar verði háar fjárhæð- ir af símreikningi viðkomandi. Nú gengur yfir bylgja símhringinga úr bresku farsímanúmeri. Til fulltrúa á ritstjórn Skessuhorns var ítrekað hringt í síðustu viku úr símanúm- erinu +44 7778 640086. Samkvæmt heimildum blaðsins dragast allt að 20 þúsund krónur af símreikningi viðkomandi fórnarlambs svindlar- anna, sé hringt til baka. Hér er um nokkuð augljósan galla að ræða í þjónustu símafyrirtækja og vand- séð hvernig koma megi í veg fyrir að svindlararnir hafi erindi sem erf- iði við iðju sína meðan stjórnvöld viðkomandi landa bregðast ekki við. Þá bera símafyrirtækin sína sök einnig þar sem þau bjóða upp á þessa þjónustu án þess að eftirlit með viðskiptavinunum sé til staðar. Þangað til þessi mál komast í lag er óhætt að vara fólk við að hringja til baka í erlend símanúmer sem fólk þekkir ekki. mm Forsvarsmenn Landsbankans hafa gefið það út að líklega verði fyrir- hugaðri byggingu á höfuðstöðv- um slegið á frest. Ástæðan er sú að margir hafa tjáð sig um málið og gagnrýnt fyrirhugaða byggingu. Það er vel að forsvarsmenn Lands- bankans séu að draga í land en er nóg að fresta málinu? Það þarf að breyta um grunnstefnu Það er ekki nóg að stjórnendur Landsbankans hafa hrakist undan varðandi byggingar á nýjum höf- uðstöðvum. Í framhaldinu þarf að boða til hluthafafundar þar sem þessi áform eru endanlega slegin út af borðinu og lóðin margrædda verði síðan seld hæstbjóðanda. Í framhaldinu ætti banki „allra“ landsmanna að setja af stað vinnu sem miðar að því að endurskipu- leggja starfsemi bankans með það að leiðarljósi að nýta á sem hagkvæm- astan hátt þær fjölmörgu byggingar sem bankinn á víðsvegar um land- ið. Ég er sannfærður um að ítar- leg skoðun á þessari blönduðu leið myndi sýna fram á hagkvæmni sam- anborið við að byggja risastórar höf- uðstöðvar á dýrustu lóð landsins. Það þarf líka að taka almenna upplýsta umræðu um það í sam- félaginu af hverju Landsbankinn ákvað að velja margumrædda leið í stað þess að veita hagstæðari kjör til almennings. Rekstur útibús í 100-150 ár Á undanförnum árum höfum við fylgst með því hvernig Landsbank- inn hefur jafnt og þétt verið að fækka útibúum einmitt í nafni hagræðing- ar. Á árinu 2012 var t.d. með einni aðgerð ákveðið að loka nokkrum útibúum og áætlaður meðalsparnað- ur samkvæmt fréttum frá bankanum var 50 milljónir á hvert útibú. Ef Landsbankinn færi hagkvæm- ari leið varðandi nýjar höfuðstöðv- ar þá hefði verið hægt að halda opnu einhverju af þeim fjölmörgu útibú- um sem bankinn lokaði í nafni hag- ræðingar í 100-150 ár. Var verið að skerða þjónustu vítt og breitt um landið til að safna fyrir útborgun í nýjar höfuðstöðvar á dýrustu lóð landsins? Er nema von að margir spyrji sig hvort menn séu algerlega úr sambandi við raunveruleikann? Störf án staðsetningar – Kröfuhafar standa sig betur en Landsbankinn Landsbanki, banki allra lands- manna, ætti að hafa forystu í því að nýta ljósleiðaravæðingu landsins í stað þess að þjappa öllu á eina dýra lóð í 101 Reykjavík. Það á að skoða hagkvæmni þess að efla þær starfs- stöðvar sem bankinn á í einhverj- um glæsilegustu byggingum hvers byggðarlags. Landsbankinn breytir útibúum í orlofsíbúðir fyrir starfsfólk líkt og gert var rétt fyrir hrun á Ísafirði. Ætli það hefði ekki verið mögu- legt að halda úti starfsemi á Ísa- firði í stað þess að breyta útibúinu í orlofshúsnæði fyrir starfsfólk úr Reykjavík? Af hverju horfir Landsbank- inn ekki til þess sem áunnist hef- ur í fjarvinnslu. Ég hygg að Arion banki, banki kröfuhafanna væri ekki að notfæra sér fjarvinnslu á Siglu- firði nema af því væri hagkvæmni. Sú starfsemi hófst árið 2000 og hef- ur reynslan verið mjög jákvæð allar götur síðan. Meðan Landsbankinn er eign al- mennings þá á almenningur allt í kringum landið fullan rétt á því að bankinn leitist við að uppfylla sitt gamla slagorð „banki allra lands- manna“. Ásmundur Einar Daðason Höf er alþingismaður Framsóknarflokksins. Fjárhagsleg staða Borgarbyggð- ar er með þeim hætti að nauðsyn- legt er að gera róttækar breyting- ar í fræðslumálum sem gera okk- ur kleift að nýta fjármuni betur. En það þarf meira að koma til, hag- ræða þarf í öllum málaflokkum, selja eignir og greiða niður skuld- ir. Þetta hefðu valdhafar í Borg- arbyggð átt að sjá fyrir en ann- að hvort höfðu þeir ekki skilning á stöðunni eða vildu ekki horfast í augu við hana. Ég veit ekki hvort er verra. Á síðasta kjörtímabili og sérstaklega í aðdraganda kosninga voru fulltrúar Samfylkingarinn- ar þeir einu sem gagnrýndu slæma fjárhagsstöðu og bentu á leiðir til þess að bæta hana t.d. með sölu á eignahluta í Orkuveitu Reykjavík- ur. Nú er þó allavega búið að viður- kenna stöðuna og unnið að lausn. Á fundi sveitarstjórnar Borgar- byggðar þann 11. júní síðastlið- inn var samþykkt tillaga um rekst- ur og skipulag fræðslumála. Ég var erlendis og gat því ekki setið fund- inn en fulltrúar minnhlutans sátu hjá, það hefði ég líka gert. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að margt í þessum tillögum er í raun ágætt, sumt illnauðsynlegt en annað gagn- rýnivert. Ég er til að mynda mjög ánægður með að ákveðið hefur ver- ið að ljúka við gerð skólastefnu. Jafnframt ber að fagna því að sér- fræðiþjónusta verði aukin, hagræða eigi í rekstri mötuneyta og að auk- in áhersla verði lögð á fræðslu og mannauðsmál í stjórnsýslunni. Allt mál sem rýma vel við stefnu Sam- fylkingarinnar. Það er hinsvegar gagnrýnivert hvernig samráði við íbúa, fræðslu- nefnd og stjórnendur fræðslustofn- ana hefur verið háttað og á köfl- um hefur skort á faglega vinnu við undirbúning og úrvinnslu á þeim fundum sem haldnir hafa verið. Boða hefði þurft íbúafundi með meiri fyrirvara, kynna þá vel sem og fundarformið, hvaða gögn muni liggja fyrir og hvernig unnið yrði úr fundunum og niðurstöður túlkaðar. Hér hefði skýr og vönduð upplýs- inga- eða lýðræðisstefna sveitar- félagsins komið að góðu gagni en hún er ekki til í Borgarbyggð. Lokun starfsstöðva Afstaða fulltrúa Samfylkingarinnar til þess að starfsstöðinni á Hvann- eyri verði lokað hefur frá upphafi verið sú að sameina ætti leik- og grunnskóla upp í 4. bekk. Þann- ig gætu börn á Hvanneyri stund- að skóla á staðnum til 10 ára aldurs. Töluvert hagræði gæti jafnframt orðið af þessu en Samfylkingin var eini flokkurinn sem hafði þetta beinlínis á stefnuskrá fyrir kosning- ar. Um þessa leið hefði mögulega verið hægt að ná meiri sátt í samfé- laginu á Hvanneyri. Í tillögunum sveitarstjórnar er einungis lagt til að kanna hug for- eldra til þess að hafa 1. og 2. bekk í leikskólanum. Þarna er að mínu mati ekki nógu langt gengið þó svo að um ákveðna málamiðlun sé að ræða. Það hefði þurft að kanna mun betur möguleikann á að kenna upp í 4. bekk á Hvanneyri. Frekari sameining starfsstöðva í dreifbýli er boðuð en lítil umræða um það hefur farið fram í sveitar- stjórn en sem betur fer stendur til að fara í frekari greiningu áður en ákvörðun verður tekin. Nauðsyn- legt er að sú vinna verði fagleg og að bætt verði úr samráðsferli fyrir næstu skref. Í því ferli er mikilvægt að gefa svigrúm til að hægt verði að móta sameiginleg markmið um þann árangur sem á að nást í skóla- starfi í sveitarfélaginu, bæði fjár- hagslegan og faglegan. Magnús Smári Snorrason Höf. er fulltrúi Samfylkingarinnar í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Pennagrein Fræðslumál í Borgarbyggð www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Landsbankinn allra landsmanna? Pennagrein Fjársvikamenn halda sig á sömu braut

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.