Skessuhorn - 19.08.2015, Síða 37
MIÐVIKUDAGUR 19. ÁGÚST 2015 37
Óska eftir Daihatsu Feroza
Óska eftir að kaupa Daihatsu
Feroza. Verður að vera í lagi og
óryðgaður. Upplýsingar í síma:
696-2334.
Glæsilegur antik sófi til sölu
Er með glæsilegan antik sófa
til sölu. Hann er þriggja sæta
með útskornum örmum. Verð
75.000 krónur. Upplýsingar í síma
696-2334 eða í tölvupósti is-
postur@yahoo.com.
Fallegur antik skenkur til sölu
Mjög fallegur antik skenkur til
sölu, mjög góð hirsla. Skápurinn er
61x95x136 sm. Verð 95.000 krónur.
Upplýsingar í síma 696-2334 eða í
tölvupósti, ispostur@yahoo.com.
Húsnæði í Borgarnesi óskast
Par með barn á fyrsta ári óskar
eftir húsnæði til leigu í Borgarnesi.
Við erum reglusöm, reyklaus og
getum fengið meðmæli. Við erum
með eina ljúfa Labrador tík. Upp-
lýsingar í síma 846-1303.
Vönduð leðurskjalataska til sölu
Er með vandaða svarta leður-
skjalatösku til sölu. Taskan var
keypt í Tösku- og Hanskabúðinni.
Hún rúmar t.d. ferðatölvu og
fleira. Verð 20.000 krónur. Taskan
er á Akranesi. Upplýsingar í síma
431-5646.
Götuskráð tveggja manna fjór-
hjól til sölu
Til sölu Kymco 700 EFI. Götuskráð
tveggja manna fjórhjól. Spil,
dráttarkúla, driflæsing, Big Horn
dekk,sjálfstæð fjöðrun o.fl. ATH:
nýtt hjól, ekkert ekið. Nánari upp-
lýsingar í síma 893-7917.
Stálgrindamastur/ljósamastur
Til sölu stálgrindamastur/ljósa-
mastur, rúmlega 13 metrar. Ný-
yfirfarið. Verðtilboð. Upplýsingar í
síma 897-9251.
Borgarbyggð –
laugardagur 22. ágúst
Þriðji sveitamarkaður sumarsins
verður haldin í gömlu hlöðunni
í Nesi frá kl. 13-17. Þeir sem hafa
áhuga á að leigja söluborð sendi
skilaboð á netfangið kgum@sim-
net.is.
Akranes –
laugardagur 22. ágúst
Púkanámskeið verður í Akrabraut
fyrir aldurinn 5-11 ára í ágúst ef
næg þátttaka næst. Um er að ræða
fjóra laugardaga, þann 8., 15., 22., og
29. ágúst kl. 11-12. Kennarar verða
þrautreyndir hjólarar VÍFA. Pylsup-
artý og leikir í lok námskeiðs. Skrán-
ing á Facebook hóp VIFA.
Akranes – laugardagur 22. ágúst
ÍA mætir Keflavík í 1. deild kvenna
þann 22. ágúst kl. 14 á Akranesvelli.
Akranes – laugardagur 22. ágúst
Kolaportstemning verður í Garða-
kaffi helgina 22. til 23. ágúst frá kl.
12-17. Hönnun, handverk, föt og
kompudót. Hægt er að panta bás
í gegn um netfangið gardakaffi@
gmail.com. Verð fyrir básinn er
3.500 kr. með kaffi, fyrir báða dag-
ana. Hlökkum til að sjá ykkur.
Snæfellsnes –
laugardagur 22. ágúst
Til stendur að vinna að fornleifa-
rannsókn á Sönghelli við Arnar-
stapa nú í sumar. Verkið mun taka
eina viku og verður hellirinn lokað-
ur ferðamönnum á meðan rann-
sókninni stendur. Tímabilið sem
um ræðir er 22.-30. ágúst. Við vilj-
um biðjast afsökunar á því raski
sem þetta mögulega getur valdið
ferðaþjónustuaðilum en lokun er
því miður nauðsynleg þar sem hell-
irinn rúmar ekki bæði búnað, vís-
indamenn og ferðamenn.
Dalabyggð –
sunnudagur 23. ágúst
Næstu þrjá sunnudaga kl. 16 verða
endurteknar þrjár sögustundir
frá því í vetur á Byggðasafni Dala-
manna. Aðgangseyrir er 1.000 kr.
og hægt er að koma fyrr og skoða
safnið í leiðinni. Frítt fyrir þá sem
komu í vetur og eru að mæta í ann-
að sinn á viðkomandi sögustund.
Kínaferð Árna Geitasekk verður
sunnudaginn 23. ágúst. Upplýs-
ingar má finna á vefsíðunni http://
www.dalir.is/frettir/nr/197108/.
Akranes –
mánudagur 24. ágúst
ÍA mætir Fjölni í Pepsi deild karla í
knattspyrnu mánudaginn 24. ágúst
kl. 18 á Akranesvelli. Athugið að
leikdagur var færður aftur um einn
frá upphaflegri áætlun KSÍ.
Akranes –
þriðjudagur 25. ágúst
Bæjarstjórn fundar tvisvar í hverj-
um mánuði, annan og fjórða þriðju-
dag hvers mánaðar í fundasal bæj-
arstjórnar kl. 17. Fundir bæjarstjórn-
ar eru opnir en heimilt er að ákveða
að einstök mál skuli rædd fyrir lukt-
um dyrum þegar það telst nauðsyn-
legt vegna eðli máls. Bæjarstjórnar-
fundir eru sendir út á FM 95,0.
Ólafsvík -
þriðjudagur 25. ágúst
Nú hefur verið staðfest að riðill í Evr-
ópukeppninni í Futsal verður hald-
in á Íslandi, nánar tiltekið í Ólafsvík
á heimavelli Íslandsmeistaranna
í íþróttinni, Víkinga. Verður það í
annað sinn sem slíkur riðill verur
í Snæfellsbæ og mikil ánægja var
með framkvæmd mótsins haustið
2013. Önnur slík hátíð verður vik-
una 25.-31. ágúst. Dregið verður í
riðlana nú í næstu viku.
Á döfinni
Markaðstorg Vesturlands
BÍLAR / VAGNAR / KERRUR
Nýfæddir Vestlendingar
1217. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í
bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 25. ágúst
kl. 17:00.Fundirnir eru öllum opnir og eru bæjarbúar hvattir til
að mæta og kynna sér bæjarmálin. Vakin er athygli á því að hægt
er að hlusta ábeina útsendingu frá fundinum á FM 95,0.
Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir:
Sjálfstæðisfl• okkurinn í Gamla Kaupfélaginu, laugardaginn
22. ágúst kl. 10.30.
Frjálsir með• Framsókn í Haraldarhúsi, Vesturgötu 32, kjallara,
gengið inn frá palli, mánudaginn 24. ágúst kl. 20.00.
Björt fra• mtíð í Vitakaffi Stillholti 16-18, mánudaginn 24. ágúst
kl. 20.00.
Samfylki• ngin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18,
sunnudaginn 23. ágúst kl. 10.30.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Bæjarstjórnarfundur
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
13. ágúst. Drengur. Þyngd 4.245
gr. Lengd 54 sm. Foreldrar: Aníta
Rún Guðnýjardóttir og Daníel
Þór Hafsteinsson, Hafnarfirði.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
14. ágúst. Drengur. Þyngd 2.765
gr. Lengd 49 sm. Foreldrar:
María Júlía Guðmundsdóttir og
Ingi Rafn Svansson, Akranesi.
Ljósmóðir: Valgerður Ólafsdóttir.
11. ágúst. Stúlka. Þyngd 3.810 gr.
Lengd 52 sm. Foreldrar: Jóhanna
G. Rósmundsdóttir og Sigurður
Á. Vilhjálmsson, Hólmavík.
Ljósmóðir: Elísabet Harles.
16. ágúst. Drengur. Þyngd 2.920
gr. Lengd 48 sm. Foreldrar:
Sylvía Björk Aðalsteinsdóttir og
Guðmundur Karl Sigríðarson,
Borgarnesi. Ljósmóðir: Lára Dóra
Oddsdóttir.
17. ágúst: Drengur. Þyngd 4.094
gr. Lengd 53 sm. Foreldrar:
Guðný Ósk Þórsdóttir og Jón
Þór Guðbjörnsson, Reykjanesbæ.
Ljósmóðir: Ásthildur Gestsdóttir.
14. ágúst. Stúlka. Þyngd 3.830
gr. Lengd 50 sm. Foreldrar: Íris
Elfa Aðalgeirsdóttir og Lárus Páll
Erlingsson, Grindavík. Ljósmóðir:
Lára Dóra Oddsdóttir.
TIL SÖLU
HÚSBÚNAÐUR/HEIMILISTÆI
LEIGUMARKAÐUR
Bændasamtökin hagnast um 46 milljónir á rekstri Sögu
Bændasamtök Íslands ákváðu fyrr
á þessu ári að ganga ekki til við-
ræðna um sölu á Hótel Sögu á
grundvelli fyrirliggjandi tilboða
sem fram höfðu komið í söluferli.
Það var mat stjórnar Bændasam-
takanna þá að hagstæðara væri að
halda áfram rekstri hótelsins frem-
ur en að ganga að fyrirliggjandi
tilboðum. Sú afstaða bænda hefur
ekki breyst. Hótelið er í eigu Hót-
els Sögu ehf. sem er 50 ára gam-
alt fyrirtæki í eigu Bændasamtaka
Íslands. Á hótelinu eru 209 her-
bergi, tíu funda- og veislusalir og
tveir veitingastaðir. Þar starfa um
100 manns. Fasteign Hótel Sögu
ehf. við Hagatorg er um 19.000
fermetrar að stærð og hýsir hót-
elstarfsemi, veitingastaði, banka,
hárgreiðslustofu, líkamsræktar-
stöð og fleira. Þá eru skrifstofur
Bændasamtaka Íslands á þriðju
hæð hússins.
Ingibjörg Ólafsdóttir hótel-
stjóri á Sögu sendi í síðustu viku út
fréttatilkynningu um afkomu Hót-
el Sögu á síðasta ári. Þar kemur
fram að hótelið hafi velt 1,5 millj-
örðum króna á síðasta ári. Hreinn
rekstrarhagnaður var 46 milljón-
ir sem jafngildir um 3% hagnaði
af veltu. EBITDA var hins vegar
268 milljónir króna sem er tæplega
18% af veltu.
mm