Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 11
arstjórnar og viðurkenndi fúslega
að henni væri mikið niðri fyrir.
Sér fyndist troðið alvarlega á hags-
munum sínum. Uppskar hún mik-
ið lófaklapp. Rósa Marinósdóttir
íbúi á Hvanneyri var einnig harð-
orð í garð sveitarstjórnar. Sagði
m.a. að engu líkara væri en verið
væri að leggja Hvanneyri í einelti.
Fyrst af hálfu ríkisins fyrir tveimur
árum og nú af hálfu sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar. „Segið af ykk-
ur ef þið teljið ykkur ekki fært að
reka grunnskólana,“ sagði Rósa og
beindi orðum sínum að framsókn-
ar- og sjálfstæðismönnum í sveit-
arstjórn.
„Stendur ekki eða fell-
ur með grunnskóla“
Guðveig Anna Eyglóardóttir for-
maður fræðslunefndar Borgar-
byggðar og oddviti framsóknar-
manna sagði í ávarpi sínu og svör-
um við fyrirspurnum að það væri
hennar trú að tækifæri barna á
Hvanneyri og nágrenni til að fá
góða kennslu yrðu ekki skert með
þessum breytingum sem sveitar-
stjórn hefði ákveðið. Vísaði hún til
föðurhúsanna ávirðingum um að
hún og aðrir í sveitarstjórn væru að
leggja Hvanneyri í einelti. „Hvann-
eyrarstaður stendur ekki eða fellur
með því hvort þar verður grunn-
skóli eða ekki,“ sagði hún.
Orkan fer í vörn
Ragnar Frank Kristjánsson fulltrúi
VG í sveitarstjórn var eini sveit-
arstjórnarfulltrúinn sem kveðst
ósammála þeirri stefnu sveit-
arstjórnar að loka skólanum á
Hvanneyri. Skoraði hann á nú-
verandi meirihluta sveitarstjórnar
að ná sáttum við íbúa, sú ólga sem
búið væri að mynda væri að skaða
samfélagið meira en flest ann-
að. „Orkan fer í vörn, en ekki í þá
sókn sem ætti að vera. Hér þarf að
byggja að nýju upp jákvæðan orð-
stýr,“ sagði Ragnar Frank.
Erfið fjárhagsstaða
engin nýlunda
Geirlaug Jóhannsdóttir fulltrúi
Samfylkingar í sveitarstjórn harm-
aði að lítið hafi verið gert úr varn-
aðarorðum síns flokks fyrir síð-
ustu kosiningar um alvarlega fjár-
hagsstöðu sveitarsjóðs. Samfylk-
ing hefði þá bent á að selja mætti
eignarhluta í Faxaflóahöfnum og
OR og væri flokkurinn enn þeirr-
ar skoðunar að það væri farsælast
til að greiða niður skuldir sveitar-
sjóðs. Hvatti hún til að skipuð yrði
sáttanefnd íbúa og sveitarstjórn-
ar því við núverandi trúnaðarbrest
væri ekki hægt að una.
Viðruðu sameiningu
við Skorradal
Á fundinum komu fram ábend-
ingar um að e.t.v. gæti reynst hag-
fellt fyrir íbúa á Hvanneyri og ná-
grenni að skoðað yrði hvort raun-
hægt væri að óska eftir sameiningu
við Skorradalshrepp. Eiríkur Blön-
dal benti á að þannig yrðu hreppa-
mörk Skorradalshrepps færð nið-
ur um Andakíl að Borgarfirði.
Engin formlega tillaga barst um
þessa hugmynd en málið var reif-
að. Kom fram að Skorradalur og
Hvanneyri hafa átt og eiga margt
sameiginlegt.
Ályktanir samþykktar
Í lok fundar, eftir að fjórir og hálf-
ur tími voru liðnir frá setningu
hans, voru lagðar fram ályktan-
ir til sveitarstjórnar. Sú fyrri gekk
efnislega út á að skora á sveitar-
stjórn að fresta boðuðum breyt-
ingum í skólamálum í héraðinu
þar til skólastefna sveitarfélagsins
lægi fyrir. Var sú tillaga samþykkt
samhljóða. Síðari ályktun fundar-
ins gekk öllu lengra en þar var lýst
vantrausti á störf meirihluta sveit-
arstjórnar og tíunduð ýmis verk
hennar sem þóttu ekki hafa leitt til
góðs. Var meirihluti sveitarstjórn-
ar, Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks, hvattur til að segja af sér
í ljósi þess að algjör trúnaðarbrest-
ur væri kominn upp milli sveit-
arstjórnar og íbúa. Sú tillaga var
samþykkt, en þó með mun færri
atkvæðum en sú sem skemmra
gekk. Þegar þarna var komið sögu
var komið fram yfir miðnætti og
farið að fækka á fundinum.
Ályktanir lagðar fram í
sveitarstjórn
Allir sveitarstjórnarfulltrúar voru
mættir á fundinn og tóku flestir
þeirra til máls. Svöruðu spurning-
um sem ýmist var beint til þeirra
persónulega eða sveitarstjórnar-
innar allrar. Í lok fundar upplýsti
Björn Bjarki Þorsteinsson odd-
viti sjálstæðismanna í sveitarstjórn
að ályktanir fundarins yrðu rædd-
ar á fundi sveitarstjórnar í þessari
viku. Hvorki hann né aðrir fulltrú-
ar úr sveitarstjórn gáfu til kynna
að ákvörðun um lokun Hvanneyr-
ardeildar GBF yrði endurskoðuð.
Hins vegar kveðst sveitarstjórn til-
búin að skoða þann kost að færa
kennslu tveggja fyrstu árganga
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
– Ert þú utan höfuðborgarsvæðisins?
– Langar þig að ná fastari tökum á heilsunni með hjálp fagfólks?
– Getur þú æft sjálfstætt en vantar stuðning til að komast af stað?
– Viltu laga til í mataræðinu?
- Þín brú til betri heilsu
www.heilsuborg.is
Nánari upplýsingar í síma 5601010
Fjarnám
Jarðir til leigu
Til leigu spildur úr ríkis- og eyðijörðunum
Sarpi og Bakkakoti, 311 Skorradalshreppi,
til varðveislu og viðhalds menningarminja
sem á þeim eru.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins
5. október 2015.
Frekari upplýsingar á skogur.is.
Skógrækt ríkisins
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
grunnskólans inn í leikskólann An-
dabæ á Hvanneyri. Af þeim sökum
var frestað ákvörðun um ráðningu
í laust starf leikskólastjóra þar í
sumar.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt samhljóða:
„Fundarmenn leggja til að sveit-
arstjórn dragi ákvörðun sína um
lokun grunnskóladeildar GBF á
Hvanneyri til baka. Ákvörðunin
byggir á úreltum og röngum gögn-
um og hefur sveitarstjórn ekki tek-
ist að sanna með óyggjandi hætti
að aðgerðin sé nauðsynleg. Að auki
er ákvörðunin tekin án samráðs og
í andstöðu við íbúa. Fundarmenn
krefjast þess að sveitarstjórn vinni
eftir aðalskipulagi Borgarbyggðar
2010 – 2021 og að skólastefna verði
mótuð áðun en ráðist verði í svo
íþyngjandi niðurskurð.“
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt með meirihluta greiddra at-
kvæða:
„Fundarmenn lýsa yfir algjöru van-
trausti á meirihluta sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar. Það hefur sýnt
sig það sem af er kjörtímabili að
meirihlutinn ber ekki hag heildar-
innar fyrir brjósti og er ekki starfi
sínu vaxinn. Röð illa ígrundaðra
ákvarðana af hans hálfu hafa kost-
að sveitarfélagið mikla fjármuni,
mannauð, skapað úlfúð og alvar-
legan trúnaðarbrest. Sem dæmi má
nefna mannabreytingar í ráðhús-
inu, ákvörðunina um lokun grunn-
skóladeildar GBF á Hvanneyri og
ákvörðun um að draga til baka aug-
lýsingu um leikskólastjórastöðu
leikskólans Andabæjar. Fundar-
menn fara fram á að meirihluti víki
úr sveitarstjórn og hleypi fólki að
sem er tilbúið til að vinna af heil-
indum fyrir íbúa Borgarbyggðar.“
mm
Björn Bjarki Þorsteinsson í ræðustól. Sitjandi frá vinstri: Ólöf Ósk Guðjónsdóttir fundarritari, Kolfinna Jóhannesdóttir sveitar-
stjóri, Kristján Gíslason fundarritari og Flemming Jessen fundarstjóri.