Skessuhorn - 09.09.2015, Síða 35
MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2015 35
eða með því að styðja það með öðr-
um hætti. Ef ekki næst að safna upp
í ákveðna upphæð á þeim tíma sem
söfnunin stendur yfir, þá verður ekk-
ert úr söfnuninni. „Það er vegna þess
að styrkþegar þurfa að geta staðið
við loforð sín. Ef viðkomandi ætlar
til dæmis að gefa út bók og vantar
milljón til að láta prenta hana. Svo
er einhver sem styrkir verkefnið um
fimmþúsund krónur og á að fá bók-
ina í staðinn. En svo setur kannski
enginn annar pening í verkefnið.
Þá er ekki hægt að prenta út bókina
og viðkomandi getur því ekki stað-
ið við loforðið sem hann hefur gefið
þessum einstaklingi,“ útskýrir Ingi
Rafn. Hann segir að það skapi einn-
ig ákveðna pressu að vita að ekkert
verði af verkefninu, náist ekki að
safna fyrir því. „Langmest af pen-
ingunum kemur inn út af því að fólk
þarf að gera það upp við sig hvort
það vill styrkja verkefni sem það hef-
ur áhuga fyrir eða ekki. Oftar en ekki
kemur stór hluti af heildarupphæð-
inni á síðustu dögunum. Þá er fólk
búið að gera það upp við sig hvort
það vill styrkja og þarna sér fólk að
það skiptir miklu máli hvort það
komi að verkefninu eða ekki.“
Bankar ekki
nauðsynlegir
Ingi Rafn segir Karolina Fund hafa
virkað vel frá fyrsta degi. Í dag er
vefurinn með heimsmet í árangurs-
hlutfalli í hópfjármögnun. Síðan er
alþjóðleg og verðmiðinn er settur í
evrum. „Það var aldrei hugmynd-
in að einskorða okkur við Ísland.
En gjaldeyrishöftin gera þetta flók-
ið fyrir okkur en þó ekki ómögu-
legt. Við værum þó töluvert betur
sett án haftanna og fyrirtækið væri
stærra og öflugra ef ekki væri fyrir
þessi höft.“ Hann segir að stefnan sé
sú að verða fjármálafyrirtæki fram-
tíðarinnar. „Eftir hrunið fannst mér
bankakerfið einhvern veginn vera
barn síns tíma. Við teljum í alvöru
að bankar séu ekki nauðsynlegir,“
segir Ingi Rafn og útskýrir að hóp-
fjármögnun geti hjálpað til við að
brúa bilið þegar peninga vantar fyr-
ir markaðssetningu eða framleiðslu,
þá þurfi viðkomandi ekki að fara í
bankann og grátbiðja um lán eða yf-
irdrátt. „Næstu skref hjá okkur snýst
um að fara inn á fleiri svið fjármögn-
unar, til dæmis í formi einstaklings-
lána. Þá geta einstaklingar lánað ein-
staklingum með milligöngu, svipað
og hópfjórmögnunin gengur út á. Sá
sem setur pening í verkefnið fær þá
eitthvað til baka á einhverjum tíma-
punkti.“
grþ
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á að
leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/
in á netfangið: krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan
15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilis-
fang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa
aðgang að tölvupósti sendi lausnir á Kirkjubraut 56,
300 Akranesi (athugið að póstleggja þarf lausnir í síð-
asta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum inn-
sendum lausnum og fær vinningshafinn bókagjöf frá
Skessuhorni.
80 lausnir bárust við krossgátu í blaðinu í síðustu
viku. Lausnin var: „Tómstund.“ Vinningshafi er: Jó-
hanna Arnbergsdóttir, Bjarkargrund 37, Akranesi.
mm
Hliðar-
halli
Ótækt
Hópur
Röð
50
Krókur
Smá-
hrekkir
Dúna-
logn
7 Sér-
hljóðar
Gabb
Sk.st.
Héla
Af-
kvæmið
Sýl
Vær
Stúlka
Ásaka
Ein-
stigi
Titill
Ung-
viði
Beita
Nögl
Sér
eftir
Rispa
Garpur
5 Sam-
hljóðar
Hylur
Hestar
Sögn
8
100
Óhljóð
Óttast
Drög
6 Vein
Friður
At-
hygli
Óhöpp
7
Andi
Bættur
Vitra
15
10 Ögn
Ýfir
Spil
Tíndi
Krauma
Sefa
Átt
Kall
Öku-
tæki
Flet
Flói
Planta
Kunni
Tvenna
Suddi
13 Staup
Snarpur
Tröll
Ras
Óregla
Skófla
Þefa
Erjar
9
Dúar
Ekla
Berar
Svik
Arinn
Ótta
Hryssu
3
Leik-
fang
Sóminn
12 Léleg
Leðja
Ílár
Stöng
Hvílt
Úa
Fiskur
Lúra
Reiðar
Krúna
Ástand
51
Gutti
Kássa
Veiðir
Keyra
Kisa
Lína
Hlé
Peli
Þófi
Byrði
Sæti
Fugl
Skel
Stafur
1
Meiða
Fáguð
Kusk
5
Syngja
Rár
Sérhlj.
4
Örn
Mynni
Ánægð
14 2
Storð
11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
Vefsíðan karolinafund.com hefur
vakið töluverða athygli undanfarin
ár. Um er að ræða hópfjármögnun-
arvef, þar sem hægt er að óska eftir
styrkjum fyrir hinar ýmsu viðskipta-
hugmyndir. Margar hugmyndir hafa
orðið að veruleika með hjálp almenn-
ings, sem kosið hafa að styrkja verk-
efnin í gegnum Karolina Fund. Ingi
Rafn Sigurðsson er maðurinn á bak
við vefsíðuna. Hann er borinn og
barnfæddur Borgfirðingur og fjár-
húsagaur eins og hann orðar það
sjálfur, en Ingi Rafn er alinn upp á
Hellum í Bæjarsveit. Skessuhorn tók
Inga Rafn tali.
Hélt til á Kaffi Karólínu
Ingi Rafn byrjar að segja frá því að
hann hafi farið til Akureyrar í fram-
haldsskóla. „Þar var ég mikið á kaffi-
húsi sem hét Kaffi Karólína, bæði sem
gestur og síðar starfsmaður. Þetta var
staður þar sem skapandi hugmyndir
urðu til og við framkvæmdum hitt og
þetta, héldum tónleika, gerðum kvik-
myndir og fleira,“ segir Ingi Rafn.
Eftir dvölina fyrir norðan fór Ingi
Rafn til höfuðborgarinnar þar sem
hann vann við plötuútgáfu í techno
tónlist. Þremur árum síðar vatt hann
kvæði sínu í kross og hóf störf hjá
söludeild Kaupþings banka. „Í kring-
um hrunið varð ég, eins og margir
aðrir, frekar pirraður á fjármálakerf-
inu, þó ég væri innanborðsmaður. Þá
fór ég að hanna þessa hugmynd sem
síðar varð Karolina Fund.“
Langt fæðingarferli
Ingi Rafn segist hafa gert frumútgáfu
vefsins á þessum tíma en í framhald-
inu ræddi hann við vin sinn Jónmund
Gíslason sem er grafískur hönnuður.
„Við veltum þessu fram og til baka.
Þegar hugmyndin kviknaði var eng-
in önnur sambærileg síða til í heim-
inum en við sáum svo svipaðar síður
spretta upp á þessum tíma. Árið 2011
vorum við komnir með hóp sem er
ákveðinn í að starta verkefninu og við
opnum vefinn í október 2012.“ Hann
segir að fæðingarferli vefsins, frá því
hugmyndin kviknaði og þar til vefsíð-
an var opnuð, hafi því verið svolítið
langt enda tók það nokkur ár. „Þetta
tók svolítinn tíma þar sem frum-
kvöðlaumhverfið á Íslandi er ekkert
sérlega gott, þó það megi margt gott
um það segja. Það var ekki fyrr en ég
hætti að vinna hjá Arion banka sem
þetta gerðist fyrir alvöru.“
Stofnaði annað
fyrirtæki fyrst
Ingi Rafn sat þó ekki auðum höndum
í millitíðinni. Hann stofnaði annað
fyrirtæki á meðan Karolina Fund var
í þróun. Fyrirtækið heitir Reykjavik
Corner Store og selur hönnunarvör-
ur um allan heim í gegnum internet-
ið. Fyrirtækið er lítið þekkt á Íslandi
en hefur náð góðum árangri á er-
lendri grundu. Á samfélagsmiðlinum
Pinterest varð vefurinn fimmti mest
„endurpinnaði“ vefur í heimi árið
2014. Það þýðir að hann náði mik-
illi dreifingu á þeim tíma, enda deilir
fólk svokölluðum pinnum, til dæmis
myndum, með vinum sínum, líkt og
hægt er að gera á öðrum samfélags-
miðlum. „Við seljum þó ekki vörurn-
ar á Íslandi. Langstærsti markaður-
inn okkar er í New York en 60-70%
af heildarsölunni fer til Bandaríkj-
anna. Þar á eftir eru Þýskaland, Ástr-
alía og Nýja Sjáland öflugir kaupend-
ur en við seljum minnst til Norður-
landanna, Rússlands og Austurlanda
fjær.“
Mikið safnast
á lokadögum
Líkt og fyrr segir gengur Karolina
Fund út á að hægt sé að sækja styrk
til almennings fyrir ýmis verkefni.
Hægt er að skrá hugmyndir eða verk-
efni á vefinn en þar er einnig hægt að
finna fólk til að vinna með eða óska
eftir þátttöku í verkefnum. Útbú-
in er kynning á verkefninu, yfirleitt
með myndbandi sem lýsir því. Síð-
an er fjárþörf verkefnisins útskýrð
og almenningi boðið að taka þátt í
verkefninu með forkaupum á vöru
Stofnaði tvö öflug netfyrirtæki á skömmum tíma
Rætt við Inga Rafn Sigurðsson, stofnanda hópfjármögnunarvefsins Karolina Fund
Borgfirðingurinn Ingi Rafn Sigurðsson átti hugmyndina að hópfjármögnunar-
vefnum Karolina Fund.
Fjórir af átta stofnendum Karolina Fund fyrir framan sirkustjald Sirkus Íslands
sem safnaði sjö milljónum króna fyrir tjaldinu á Karolina Fund. Frá vinstri:
Jónmundur Gíslason, Ingi Rafn Sigurðsson, Þórarinn Jóhannsson og Arnar
Sigurðsson.
Ingi Rafn uppi á Varmalækjarmúla
með æskustöðvarnar í Bæjarsveitinni
í bakgrunni.