Skessuhorn - 06.01.2016, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 201610
Vöru- og verðskrá áburðar 2016
Áburður í sekkjum:
Magni 1 N27 62.709
96.594Græðir 1 12-15-17
79.018Græðir 8 21-7-11
Græðir 9 27-6-6
75.851
Fjölmóði 2 23-12
73.689
Fjölmóði 3
24-5 + Selen
71.992
Fjölmóði 4
24-9 72.252
Fjölgræðir 5
17-15-12
83.060
Fjölgræðir 6
22-11-11
83.939
Fjölgræðir 7
22-12-9 + Selen
84.168
Fjölgræðir 9
25-9-8
80.292
Fjölgræðir 10 23-8-8 + Selen 83.155
Greiðsludreifing
kr./tonn.
Magni S N26 + 4S 65.033
57.692
88.866
72.696
69.783
67.794
66.232
66.472
76.415
77.224
77.434
73.868
76.503
kr./tonn.
59.830
Kaupfélag Vestur
Húnvetninga
Strandgötu 1
Hvammstanga
Sími: 455 2300
Fax: 451 2354
KS Sauðárkróki
Sauðárkrókur
Sími: 455 4626
Gsm: 825 4626
Fax 455 4611
Bústólpi ehf.
Oddeyrartanga
Akureyri
Sími: 460 3350
Fax: 460 3351
Kaupfélag
Borgfirðinga
Egilsgötu 1
Sími: 430 5500
Fax: 430 5501
Kaupfélag
Steingrímsfjarðar
Höfðatún 4
510 Hólmavík
Sími: 455 3100
Fóðurblandan hf.
Korngörðum 12
104 Reykjavík
Sími: 570 9800
www.aburdur.is
Fyrirframgreitt*
Viðskiptaskilmálar:
Einingar og fleira:
Verðskráin sýnir verð (án virðisaukaskatts)
miðað við afgreiðslu í 600 kg. sekkjum.
Gjalddagi
Gjalddagi er 1. dagur hvers mánaðar eir úttektarmánuð.
Eindagi er 14 dögum síðar.
Fyrirframgreiðsluverð m.v. pöntun fyrir 31.01.2016.
Hægt er að dreifa greiðslum á jan. – feb. og mars 2016.
Greiðsludreifing
Ef pantað er fyrir 31.01.2016 og gerður greiðslusamningur
með gjalddaga 1. okt eða með 6 jöfnum vaxtalausum
greiðslum jún-nóv.
Verðin eru háð gengi á €. Verðskráin gildir til 31.01.2016.
Flutningur
Boðið er uppá frían fluttning ef pantaðir eru
10 sekkir eða fleiri fyrir 31.01.2016.
*Sé pantað fyrir 31. janúar 2016.
Áramótin gengu að langmestu vel
fyrir sig á Vesturlandi, að sögn
Theódórs Þórðarsonar upplýs-
ingafulltrúa Lögreglunnar á Vest-
urlandi. Laganna verðir þurftu þó
að hafa afskipti af ýmsum málum
og ekki var laust við að ölvun kæmi
við sögu í nokkrum þeirra.
Líkamsárás kærð
Eitt líkamsárásarmál var tilkynnt
til lögreglu í vikunni. Þar hafði
maður barið eiginkonu sína og
hafði hún flúið hann yfir í næsta
hús. Var eiginmaðurinn handtek-
inn og færður á lögreglustöð til yf-
irheyrslu. Börn voru á heimilinu
og urðu þau vitni að árásinni. Var
barnaverndaraðilum tilkynnt um
málið.
Tíu óhöpp í umferðinni
Alls urðu tíu umferðaróhöpp
í umdæmi lögreglunnar í lið-
inni viku. Öll voru þau án mikilla
meiðsla á fólki. Ökumaður lítill-
ar rútu missti stjórn á akstri henn-
ar á Snæfellsnesvegi við Brúarland
á Mýrum á nýársdag en þæfings-
færð og hálka var á veginum. Sner-
ist rútan á veginum og rann stjórn-
laust áfram og lenti utan í jeppa-
bifreið sem kom á móti og síðan á
annarri rútu sem var á eftir jepp-
anum. Bifreiðarnar þrjár lentu all-
ar utan vegar og tvær þeirra voru
óökufærar. Enginn meiddist í þess-
um árekstrum.
Flas ekki til fagnaðar
Ökumaður sem var í ótímabær-
um framúrakstri undir Hafnarfjalli
missti stjórn á bifreið sinni sem
varð þess valdandi að bifreið hans
fór út af sem og bifreiðin sem hann
var að fara fram úr.
Skoteldaslys
Maður um þrítugt fékk flugeld í
andlitið á Akranesi um áramótin.
Hann mun hafa borið eld að flug-
eldi sem síðan sprakk strax í stað
þess að skjótast upp í loftið. Mað-
urinn hlaut augnskaða, heyrn-
arskerðingu og brunasár í and-
lit, auk þess sem að fatnaður hans
skemmdist. Maðurinn útskrifaðist
af skjúkrahúsi eftir að hafa fengið
þar viðeigandi meðferð.
Tryllingslegt
óánægjuöskur
Maður um þrítugt, sem missti
sig yfir úrslitum tölvuleikjar sem
hann var með í höndunum, rak
upp slíkt öskur að það heyrðist vel
á milli hæða í íbúðarblokk í Borg-
arnesi í byrjun árs. Haft var sam-
band við lögregluna, þar sem tal-
ið var ljóst að eitthvað mjög alvar-
legt væri í gangi. Lögreglan mætti
skjótt á vettvang en viðkomandi
svaraði ekki strax því hann hafði
skellt sér í kalda sturtu til að ná
sér niður. Ekki fer sögum af því í
hvaða tölvuleik manninum gekk
svona illa en svona geta „fullorðn-
ir“ menn lifað sig inn í óraunveru-
leikann í tölvu- og tækniheimi nú-
tímans með svo þessum afleiðing-
um í raunheimum.
Erlendir
vetrarferðamenn
Nær daglega þarf að koma er-
lendum ferðamönnum til aðstoð-
ar á Vesturlandi eftir að þeir hafa
lent ú taf eða fest bíla sína í snjó
og ófærð. Oftast er um minnihátt-
ar vandræði að ræða sem auðleyst
er úr með því að kalla til dráttar-
bílaþjónustur eða hringja í góðvilj-
aða bændur. En einnig kemur fyr-
ir að kalla þarf út björgunarsveitir
eða að lögreglan þarf að ganga sjálf
í málið. „Með bættum upplýsingur
til erlendra ferðamanna mætti ef-
laust fækka þessum útköllum mik-
ið. Spyrja má hvort eðlilegt sé að
húsbílar séu yfir höfuð leigðir út
til erlendra ferðamanna á veturna
þegar allra veðra er von. Nokkrir
húsbílar hafa sést á ferðinni á Vest-
urlandi að undanförnu og að sjálf-
sögðu hafa komið upp vandamál
varðandi notkun þeirra í vetrar-
færð, vindhviðum og kulda,“ segir
Theódór Þórðarson hjá Lögregl-
unni á Vesturlandi.
mm/ Ljósm. LVL
Ólík verkefni en mörg að finna í dagbók lögreglu