Skessuhorn - 06.01.2016, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 201612
Daginn fyrir gamlársdag stóðu
Samtök íþróttafréttamanna fyr-
ir árlegu kjöri á Íþróttamanni árs-
ins 2015. Með yfirgnæfandi kosn-
ingu varð Eygló Ósk Gústafsdótt-
ir sundkona fyrir valinu að þessu
sinni. Í öðru sæti varð Gylfi Þór
Sigurðsson knattspyrnumaður og
í þriðja sæti Hrafnhildur Lúth-
ersdóttir sundkona. Mikið var um
dýrðir í Silfurbergi í Hörpu þegar
kjörinu var lýst. Auk hefðbundinna
viðurkenninga voru tveir einstak-
lingar teknir inn í Heiðurshöll ÍSÍ.
Það voru þau Sigríður Sigurðar-
dóttir handknattleikskona og Rík-
harður Jónsson knattspyrnumað-
ur frá Akranesi og heiðursborgari í
sínum heimabæ.
mm
Ríkharður kominn í
Heiðurshöllina
Um miðjan dag á Þorláksmessu valt
bifreið út af veginum við bæinn Jaðar
í Saurbæ. Einn var í bílnum og slapp
hann ómeiddur en bifreiðin er talin
ónýt. Miðvikudaginn 30. desember
varð önnur bílvelta vestan megin við
Bröttubrekku og var sjúkrabíll boð-
aður á staðinn. Bifreiðin er talin ónýt
en ökumaður, sem var einn í bílnum,
telst hafa sloppið vel frá byltunni.
sm
Tvær bílveltur í Dölum um hátíðirnar
Svipmynd úr Suðurdölum. Ljósm. sm.
HB Grandi hefur áður upplýst um
samninga sem gerðir voru um smíði
þriggja nýrra ísfisktogara fyrir fé-
lagið, en þeir verða smíðaðir hjá sömu
skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og af-
henti á síðasta ári uppsjávarveiði-
skipin Venus og Víking. Nýju skipin
munu leysa þrjá togara af hólmi sem
nú eru í rekstri; Ásbjörn RE 50, Stur-
laug H. Böðvarsson AK 10 og Ottó
N. Þorláksson RE 203. „Með nýju
skipunum eykst hagkvæmni í rekstri,
þau munu eyða minni olíu, aflameð-
ferð og nýting verður betri, rekstr-
aröryggi eykst og viðhaldskostnaður
mun lækka. Munu hin nýju skip bera
heitin Engey RE 9, Akurey AK 10 og
Viðey RE 50,“ segir í tilkynningu frá
fyrirtækinu.
Nú hefur HB Grandi gengið frá
lánsfjármögnun skipanna við Íslands-
banka hf. og DNB Bank ASA ásamt
endurfjármögnun á eldri lánum. Fjár-
mögnunin er allt að 55 milljónir evra
sem dregið verður á í þremur hlutum
og mun lánstími hvers ádráttar vera
fimm ár. Gert er ráð fyrir að ádrátt-
ur láns og afborganir hvers lánshluta
verði í þremur jöfnum hlutum þeg-
ar skipin verða afhent úr skipasmíða-
stöðinni en áætlað er að fyrsta skip-
ið verði afhent í nóvember á þessu
ári. Lánssamningurinn ber breyti-
lega vexti og eru núgildandi meðal-
vextir 2,4%.
mm
Ljúka fjármögnun smíði þriggja ísfisktogara
Teikning af Engey RE 9, en um er að ræða
þrjú ný systurskip.
„Ég er í hamingjukasti yfir góðum
móttökum sem við fengum þegar
við opnuðum fiskmarkaðinn form-
lega og er hræður en jafnframt
mjög þakklátur öllum sem mættu.
Það var gaman að finna hvað það
var góð stemning og allir jákvæðir,“
segir Friðbjörn Ásbjörnsson fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðs Snæ-
fellsbæjar í samtali við Skessuhorn,
en alls komu um 400 gestir til að
samfagna við opnum fiskmarkað-
arins á gamlársdag. Bárður Guð-
mundsson stjórnarmaður í Fisk-
markaði Snæfellbæjar sagði í samtali
við Skessuhorn að þetta væri raun-
ar langur vegur frá því sem upphaf-
lega var stefnt að, þegar þrjár trillu-
útgerðir ætluðu sér að standa saman
að löndum á eigin afla. „En hlutirnir
gerðust hratt,“ sagði Bárður.
Bárður segir að fundist hafi lít-
ið húsnæði og málið talið leyst.
„En ekki aldeilis. Þegar leyfisfrum-
skógurinn hafi verið skoðaður hafði
flestum fallist hendur, en ekki þó
ungu mönnunum í okkar hópi. Þeir
brettu bara upp ermar,“ segir Bárð-
ur og brosir. Aðstandendur markað-
arins smöluðu þá saman flestöllum
iðnaðarmönnum í sveitarfélaginu og
fengu nágranna til að slást í hópinn
og tvöfölduðu fermetrafjölda hús-
næðisins. „Með góðri skipulagningu
og frábærum iðnaðarmönnum tókst
á örfáum vikum að breyta þessu
gamla virðulega húsnæði í það sem
það er í dag.“ Bárður segir það hafa
verið ótrúlegt fyrir sig að fylgjast
með á hliðarlínunni frá degi til dags
og sjá hugmyndir verða að veruleika
og hlakkar hann mjög svo til fram-
tíðar og sjá Fiskmarkað Snæfellsbæj-
ar halda áfram að þroskast. Einnig
hafi verið gaman að hitta fjölda fólks
sem á minningar úr þessu húsi sem
á sér langa sögu. „Hér var fiskmat,
fiskvinnsla og fleira í húsinu svo það
vekur ýmsar minningar.“
Bárður vill fyrir hönd stjórnar fisk-
markaðarins koma á framfæri þakk-
læti til þeirra sem komu að þessu
verkefni. „Bæði iðnaðarmönnum,
lögmönnum og endurskoðanda, sem
leiðbeindu okkur í gegn um frum-
skóg reglugerða, og starfsmönnum
markaðarins sem sinnt hafa lönd-
un síðustu vikur af jákvæðni og elju-
semi við fátæklegar aðstæður. Ekki
síst viljum við þakka Friðbirni Ás-
björnssyni fyrir allt það óeigingjarna
starf sem hann hefur lagt af mörk-
um og örugglega átt nokkrar and-
vökunætur yfir,“ segir Bárður Guð-
mundsson og bætir við að lokum að
ellefu bátar séu nú í viðskiptum við
Fiskmarkað Snæfellsbæjar og er það
meira en forsvarsmenn markaðarins
bjuggumst við í upphafi. „Við höf-
um samið við fyrirtækið Djúpaklett
í Grundarfirði um að taka að sér
flokkun og slægingu,“ segir Frið-
björn. Munu Ragnar og Ásgeir sjá
um flutninga á fiski milli Snæfells-
bæjar og Grundarfjarðar. „Það er
öruggt að tækifærin liggja í Snæ-
fellsbæ,“ segja þeir félagar Bárður
og Friðbjörn að lokum.
af
Fiskmarkaður Snæfellsbæjar formlega opnaður á gamlársdag
Stjórnarmenn Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar. Friðbjörn Ásbjörnsson, Heiðar
Magnússon, Sigurður Jónsson, Bárður Guðmundsson og Þorsteinn Bárðarson.
Þeir félagar Bárður og Friðbjörn kátir með skiltið sem Fiskmarkaði Snæfellbæjar
var fært að gjöf.
Stjórn ásamt fjölskyldu og ættingjum.
Frumskógur leyfisbréfa á vegg fiskmarkaðarins.
Mæðgurnar Guðlaug Íris Jóhannsdóttir og Júníana Óttarsdóttir voru brosmildar
og kátar.