Skessuhorn


Skessuhorn - 06.01.2016, Síða 17

Skessuhorn - 06.01.2016, Síða 17
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 2016 17 E LD V A R N A R - N Á M S K E IÐ INNLEIÐING HACCP SAMSKIPTI INDEX MIRACLE ÞJÓNUSTUNÁMSKEIÐ ADR EXCEL II HAFNARVERNDARNÁMSKEIÐ www.attin.is IS O /I E C 2 7 0 0 1 P O W E R P IV O T B Ó K LE G T V IN N U V ÉL A N Á M SK EI Ð Á R A N G U R S R ÍK S A L A L ÍK A M S TJ Ó N A G R N Á M S K E IÐ U P P LÝ S IN G A TÆ K N I F O R R IT U N FJ Á R M Á L O G R EK ST U R R A F R Æ N IR R E IK N IN G A R TR EL LO N Á M SK EI Ð R A K I O G M YG LA Í H Ú SU M L J Ó N IÐ Í V E G IN U M A FN Á M H A FT A S O LV E N C Y 2 Áttin veitir þér fjármagn til fræðslu Rétt fræðsla og þjálfun eflir starfsfólk og er lykillinn að velgengni fyrirtækja til lengri og skemmri tíma. Nú getur þú sótt um styrk til fræðslu starfsmanna fyrirtækisins á einum stað. Skilaðu inn einni umsókn og sæktu þannig um styrk úr mörgum fræðslusjóðum atvinnulífsins samtímis. Flóknara er það ekki. Áttin.is er eina heimasíðan sem þú þarft að heimsækja. Þú getur sótt um styrk til fræðslu fram í tímann eða allt að 12 mánuði aftur í tímann. Miðvikudaginn 13. janúar verður fundur til kynningar á Áttinni kl. 17:00-18:30 í Landnámssetrinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, SA Halldór Grönvold, ASÍ Sveinn Aðalsteinsson, verkefnastjóri Áttarinnar Nánari upplýsingar á attin.is ÞÉR ER BOÐIÐ Á KYNNINGARFUND Á R N A S Y N IR Í lok síðasta árs var tekið í notkun í Björgvin í Noregi hæsta timburhús sem reist hefur verið í heiminum hingað til. Húsið er fjór- tán hæðir, grind úr límtré sem tilbúnum einingum er raðað inn í. Heimsmet- ið stendur þó ekki lengi því ákveðið hefur verið að reisa 20 hæða timburhá- hýsi í Vancouver í Kanada sem áætlað er að verði til- búið næsta haust. Norska blaðið Dagsavisen grein- ir frá þessu og ræðir við Kjell Arne Malo hjá mannvirkjastofnun norska tækni- og náttúruvísindaháskólans NTNU í Þrándheimi. Hann spá- ir því að sex til tíu hæða blokkir úr timbri verði algeng sjón í norsk- um bæjum og borgum á komandi árum. Malo stýrir fjög- urra ára verkefni sem felst í að þróa hentugar aðferð- ir við smíði stórra timb- urbygginga sem stand- ist kröfur um hagkvæmni og gæði. Norsk, sænsk og þýsk fyrirtæki taka þátt í verkefninu ásamt arkitekt- um, verkfræðingum, at- hafnamönnum og birgj- um en norska landbúnað- ar- og matvælaráðuneytið styrkir það gegnum For- skningsrådet, norska rannsókn- arráðið. Frá þessu var greint á vef Skógræktar ríkisins. mm Búnir að reisa hæsta timburhús í heimi Húsið er fjórtán hæðir og stendur í Björgvin í Noregi. Ný skrifstofa búnaðarmála hóf starf- semi innan Matvælastofnunar í upp- hafi þessa árs. Á síðasta ári voru sam- þykkt lög frá Alþingi um að stjórn- sýsluverkefni í tengslum við búvöru- samninga yrðu flutt frá Bændasam- tökum Íslands til Matvælastofnun- ar frá og með 1. janúar 2016. Vinna við þennan flutning stjórnsýsluverk- efna hefur verið samstarfsverkefni Matvælastofnunar, Bændasamtak- anna og atvinnuvega- og nýsköp- unarráðuneytisins. Bændur munu verða varir við að frá og með 4. janú- ar 2016 munu Bændasamtökin ekki lengur hafa umsjón með stuðnings- greiðslum til bænda, heldur verð- ur það verkefni Matvælastofnunar í umboði ríkisins. Verkefni skrifstofu búnaðarmála eru stjórnsýsluverkefni í tengslum við búvörusamninga og búnaðarlaga- samning í samræmi við búvöru- og búnaðarlög. Skrifstofan annast fag- og fjárhagslega framkvæmd verk- efna á sviði landbúnaðar sem stjórn- völd og Alþingi felur Matvælastofn- un. Verkefnin snúa m.a. að fram- kvæmd á stjórnvaldsákvörðunum um opinberar greiðslur til bænda, útreikningi, afgreiðslu og eftirliti með framkvæmd þeirra. Skrifstof- an heldur utan um skrá um hand- hafa beingreiðslna og greiðslumark mjólkur og sauðfjárafurða auk þess að sjá um greiðslur til bænda sam- kvæmt samningum um starfsskilyrði í mjólkur-, sauðfjár- og grænmet- isframleiðslu. Þannig eru eftirfar- andi stuðningsgreiðslur á verksviði hinnar nýju skrifstofu: beingreiðslur, álagsgreiðslur vegna gæðastýrðar framleiðslu, gripagreiðslur í naut- griparækt, og geymslugjald vegna sauðfjárframleiðslu. Umsjón með styrkjum vegna nýliðunar í mjólk- ur- og sauðfjárframleiðslu, jarða- bóta bænda, lýsingarbúnaði í gróð- urhúsum og styrkir vegna vatns- veitna á lögbýlum eru sömuleiðis á verksviði skrifstofunnar. Þá safn- ar hún upplýsingum og birtir ár- lega skýrslu um framleiðslu búvara, vinnslu þeirra og sölu og gerir áætl- anir um framleiðslu og sölu búvara. Söfnun hagtalna hvað varðar búfjár- fjölda og fóðurbirgðir í tengslum við búfjáreftirlit verður eitt af verk- efnum skrifstofu búnaðarmála. Því fylgir umsjón með tölvukerfinu Bú- stofni og þróun þess. Reglusetning og eftirlit með skráningu í hjarð- bókargagnagrunna verður jafn- framt á verksviði skrifstofu búnað- armála hjá Matvælastofnun, sem um leið tekur við eftirfarandi tölvukerf- um og gagnagrunnum: Tölvukerf- ið AFURÐ, greiðslukerfi landbún- aðarins, tölvukerfið MARK (skyldu- merking búfjár) og sá hluti Bænda- torgsins, sem snýr að fyrrgreindum stjórnsýsluverkefnum. Starfsmenn nýrrar skrifstofu hjá Matvælastofnun verða fimm og er Jón Baldur Lorange framkvæmda- stjóri hennar. Skrifstofan er staðsett í Bændahöllinni á 2. hæð og mun síðar sameinast öðrum starfseining- um Matvælastofnunar á Reykjavík- ursvæðinu, en þar eru nú fyrir um- dæmisskrifstofa Suðvesturumdæmis, þar sem starfa héraðsdýralæknir, eft- irlitsdýralæknar og dýraeftirlitsmað- ur, og einnig skrifstofa inn- og út- flutningsmála. Fréttatilkynning Búnaðarmál flytjast til Matvælastofnunar

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.