Skessuhorn - 06.01.2016, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 201618
Nýr bátur í eigu KG Fiskverkun-
ar kom til heimahafnar í Rifi að
morgni gamlársdags. Ber hann
nafnið Faxaborg SH 207. Báturinn
hét áður Sólborg RE og var í eigu
Brims. Hann er upphaflega svoköll-
uð Kínasmíði og er frá árinu 2001.
Eftir að KG Fiskverkun keypti bát-
inn var hann lengdur úr 19 í tæpa
24 metra og yfirbyggður. „Auk
þess var millidekk allt yfirfarið og
sett upp nýtt glussakerfi. Veltitank-
ur var auk þess settur í bátinn. Að-
gerðastaða frá 3X stáli var sett upp
en beitningarvél og uppstokkari
eru frá Sjóvélum. Eftir breyting-
arnar er Faxaborgin með 24 rekka
fyrir línuna eða samtals 30 þús-
und króka. Tvær krapavélar voru
settar í bátinn; ein fyrir millidekk
og ein fyrir lest,“ segir Friðþjófur
Orri Jóhannsson skipstjóri í samtali
við Skessuhorn. Hann segir að með
þessu krapakerfi komi áhöfnin með
úrvals hráefni í land.
Óhætt er að segja að Faxaborgin
hafi öll verið tekin í gegn en til við-
bótar við framangreindar breyting-
ar var ný sjálfstýring og mynda-
vélakerfi sett upp sem Vestan ehf
í Grundarfirði sá um. Einnig var
önnur ljósavélin tekinn upp og sett-
ur einn nýr rafall við.
Friðþjófur segir að sér virðist sem
þessar breytingar allar hafi tekist
vel og að honum lítist vel á bátinn.
Hann stækkar við þessar breyting-
ar um 79 tonn, fer úr 115 tonnum
í 194 tonn. „Við fengum leiðinda-
veður á heimleiðinni og fór bátur-
inn vel í sjó þótt ölduhæð hafi ver-
ið upp í fimm metrar og talsverð-
ur vindur. Það verða 5-6 í áhöfn
og reiknum við með að fara á sjó á
fimmtudaginn í þessari viku,“ sagði
Friðþjófur skipstjóri.
Bæta við fólki í
vinnsluna
Daði Hjálmarsson útgerðarstjóri
KG Fiskverkunar í Rifi segir að
hann sé ánægður með þessar breyt-
ingar sem gerðar voru á Faxaborg-
inni. Fyrir á fyrirtækið línuskipið
Tjald SH sem verður áfram gerður
út óbreyttur. „Með tilkomu Faxa-
borgar SH verða minni sveiflur í
vinnslu og jafnari vinnsla allt árið,
en við höfum nú þegar bætt við
fleira fólki í vinnsluna í landi,“ seg-
ir Daði. Hann bætir því við að KG
vinnur sinn afla í saltfiskflök og er
Spánn aðal útflutningslandið en þó
fer eitthvað einnig til Ítalíu.
af
Nýr bátur - Faxaborg SH 207
til KG Fiskverkunar í Rifi
Faxaborg leggur að bryggju á Rifi nóttina fyrir gamlársdag.
Daði Hjálmarsson útgerðarstjóri KG ásamt Friðþjófi Orra Jóhannssyni skipstjóra.
Gestir að skoða millidekkið á Faxaborg SH, en báturinn var til sýnis á gamlársdag.
Óskum KG Fiskverkun og
áhöfn Faxaborgar SH 207
til hamingju með nýtt skip
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
s: 420-4800