Skessuhorn - 06.01.2016, Page 28
MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Sprautu- og bifreiðaverkstæði
Sólbakka 5, Borgarnesi • 437-1580 • sbb@simnet.is
Tjónaskoðun – Bílamálun – Réttingar – Bílrúðuskipti
Þjónustum öll tryggingafélög
Borgarness
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
DAGLEGIR VÖRUFLUTNINGAR
Stykkishólmur – Reykjavík
B. Sturluson ehf.
Nesvegi 13, Stykkishólmi
438 1626 / 862 1189
Vélsmiðja BA
Nýsmíði • Vélaviðgerðir
Breytingar • Viðhald
Vélsmiðja BA • Sólbakka 25 • Borgarnesi • bhk@vortex.is
Björn Kristjánsson 894 – 3336
Arnar Björnsson 849 – 9341
Pennagrein
Íbúar Snæfellsbæjar gerðu sér glaðan
dag eins og aðrir landsmenn um ára-
mótin. Nóg var um að vera þennan
síðasta dag ársins. Meðal annars kom
nýr bátur, Faxaborg SH, til heima-
hafnar í Rifi aðfararnótt gamlárs-
dags og var til sýnis íbúum síðar um
daginn. Auk þess var Fiskmarkaður
Snæfellsbæjar opnaður formlega. Á
Breiðinni var hápunktur annasams
dags þegar íbúar fjölmenntu á ára-
mótabrennu og glæsilega flugelda-
sýningu í boði björgunarsveitarinnar
Lífsbjargar. Þegar íbúar höfðu skot-
ið upp flugeldum sínum á miðnætti
til þess að fagna nýju ári var farið á
dansleik í Klifi í boði Snæfellsbæjar.
Að sögn lögreglu fóru jól og áramót
mjög vel fram og enginn óhöpp eða
slys urðu á fólki. af
Áramót í
Snæfellsbæ Norðurljósin létu sjá sig á áramótabrennunni þegar björgunarsveitin sýndi sínar
listir.
Þessar ungu dömur voru hressar og vel skreyttar á brennunni.
Lionsklúbburinn Þerna, í sam-
vinnu við Félagsheimilið Röst,
stóð fyrir spurningakeppni daginn
fyrir gamlársdag. Var þetta fyrsta
keppnin af mörgum. Liðin sem
kepptu að þessu sinni voru Grunn-
skóli Snæfellsbæjar á Hellissandi
og saumaklúbburinn Bródering.
Var keppnin ótrúlega skemmtileg
en hún samanstóð af margskonar
fjöri. Voru bæði bjölluspurning-
ar, vísbendingaspurningar um hlut
í kassa, hver væri undir teppinu
og margt fleira. Einnig áttu lið-
in að giska á lag sem verið var að
túlka, var það gert af mikilli snild
af Kristgeiri Kristinssyni. Stelp-
urnar í Grunnskóla Snæfellsbæj-
ar á Hellissandi komust áfram og
fengu þennan líka fína farandbik-
ar sem þær skila til næsta sigurliðs.
Vel var mætt á þessa fyrstu keppni
og heppnaðist hún mjög vel. Bú-
ast má þó við að enn fleiri mæti á
næstu keppni sem verður haldin í
Röstinni þann 15. janúar næstkom-
andi og hefst stundvíslega klukkan
21:00 en þá munu etja kappi lið
frá Átthagastofu Snæfellsbæjar og
Hraðbúðinni á Hellissandi.
þa
Spurningakeppni
hafin í Snæfellsbæ
Fjölmenni var við áramótabrenn-
una í Búðardal í ágætis veðri.
Öll voru með viðeigandi hlífð-
argleraugu og undu þau sér vel
með stjörnublysin sín og við yl-
inn frá brennunni. Að vanda var
það Björgunarsveitin Ósk sem hélt
utan um brennuna ásamt flugelda-
sýningu sem kostuð er af Dala-
byggð. Í Saurbænum var haldið í
gamla hefð þar sem heimamenn
sameinast um og halda brennu og í
Árbliki var settur upp varðeldur.
sm
Áramótabrenna í Búðardal
Bjarni, Hermann og Hafþór sáu um að
kynda bálið.
Dagný Sara, Jóhanna Vigdís og Emilía
skemmtu sér konunglega.
Og þar logaði dátt.
Í okkar nágrannalöndum mun vera
algengt að íbúðarlán séu með lág-
um eða lægstu vöxtum sem í boði
eru á markaði hverju sinni.
Í frétt RÚV síðastliðinn sunnu-
dag kom fram að algengir óverð-
tryggðir íbúðalánavextir á Íslandi
séu 7,25% og fari hækkandi.
Gagnlegt er að skoða nýlega
fréttatilkynningu HB Granda um
lánskostnað vegna fjármögnun-
ar nýrra togara, til þess að fá ein-
hverja hugmynd um vaxtakostn-
að í nágrannalöndum okkar. Sam-
kvæmt tilkynningunni sem dagsett
er 30-12-2015 kemur fram að HB
Grandi hafi fjármagnað þrjá nýja
togar í samstarfi við Íslandsbanka
og DNB Bank ASA. Vaxtakjörin
eru tilgreind breytileg og meðal-
vextir 2,4%. Engin verðtrygging.
Samkvæmt þessu er himinn og
haf á milli vaxta hér á landi og í
okkar næstu nágrannalöndum.
Þeir sem lofa krónuhagkerfið
ættu e.t.v. að skýra fyrir almenningi
hverning þeir ætla að minnka þenn-
an vaxtamun, því líklega mundi fátt
bæta kjör almenn-
ings og um leið
styrkja stöðu fyrir-
tækja meira, en lækkun vaxta í þess-
um dúr!
Síðan ættu stjórnmálamenn sem
lofað hafa afnámi verðtryggingar
og krónunni stöðugri og vöxtum
lágum eftir afnám gjaldeyrishafta
og niðurfellingu verðtryggingar, að
skýra hvernig það verði gert.
Borgarnesi, 4. janúar 2016.
Guðsteinn Einarsson.
Krónan er góð!
SMÍÐAVINNA – MÚRVERK RG ehf
Bárugötu 19, Akranesi • Sími 821 2490 • ragnar4646@gmail.com