Skessuhorn - 13.04.2016, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2016 17
Þekking
Gæði
Þjónusta
Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388
Tökum að okkur jarðvegsvinnu
t.d. húsgrunna, drenun, niðursetningu rotþróa, múrbrot,
niðurrif, garðavinnu og vegavinnu.
Við erum með kranabíl, gámabíla, traktorsgröfu, 16t hjólagröfu, 2t og 6t beltavélar, vatnstank.
Hafið samband í síma 862-1717
Stauraborun fyrir sumarhús og sólpalla.
Erum með vatnstank fyrir
heitt/kalt vatn og rykbindingu.
Bíla-/vélaflutningar og kranavinna.
Gámaleiga.
Fellum tré og fjarlægum.
Útvegum mold og möl.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Tillaga til þingsályktunar um fjög-
urra ára samgönguáætlun fyrir árin
2015-2018 hefur verið lögð fyrir Al-
þingi. Í síðustu viku var greint frá
framlögum til vegamála en einnig er
innan samgönguáætlunar greint frá
fjárveitingum til hafna, sjóvarna og
flugvalla (sjá frétt um flugvelli hér til
vinstri á opnunni). Í samgönguáætl-
un kemur fram að af rúmlega 2,2
milljarða króna fjárveitingu til hafna
í grunnneti er veitt 813,8 milljón-
um til hafna í Norðvesturkjördæmi.
Af þeirri upphæð fær Snæfellsbær
309,4 milljónir vegna endurbygg-
ingar Norðurkants hafnarinnar
í Rifi; 103,7 milljónir í ár, 110,4 á
næsta ári og 95,3 árið 2018.
Grundarfjarðarbær fær 100,2
milljónir til lengingar Norður-
garðs árið 2018 og Stykkishólmur
8,4 milljónir árið 2017 vegna stofn-
dýpkunar hafnarinnar. Þá má geta
þess að 23,9 milljónum á að veita
á þessu ári til dýpkunar fyrir ferju í
Brjánslækjarhöfn, en Breiðafjarðar-
ferjan Baldur siglir sem kunnugt er
milli Stykkishólms og Brjánslækj-
ar með viðkomu í Flatey. Fjárveit-
ingar til hafna utan grunnnets nema
174 milljónum króna á landsvísu. Af
þeim koma 15 milljónir í hlut Dala-
byggðar á árinu 2016 vegna bryggju
við Skarðsstöð.
78,4 milljónir
til sjóvarna
Af þeim 464,4 milljónum króna sem
verja á til sjóvarna samkvæmt sam-
gönguáætlun veitast 78,4 milljón-
ir innan Norðvesturkjördæmis. Þar
af fær Snæfellsbær 25,5 milljónir
króna á árinu 2017 vegna sjóvarna
við Gróuhól á Hellnum, Hellis-
braut 1 á Hellissandi og Ennisbraut
í Ólafsvík. Dalabyggð fær 9,5 millj-
ónir sem veitast árið 2018 til sjóvarna
við Ægisbraut í Búðardal og þá fær
Reykhólahreppur 9,3 milljónir króna
á þessu ári vegna sjóvarna við gamla
þorpið í Flatey á Breiðafirði. kgk
Rúmlega 309 milljónir í samgöngu-
áætlun til endurbyggingar í Rifi
Stakkhamar við bryggju í Rifi. Á næstu árum verður yfir 300 milljónum króna veitt til endurbyggingar Norðurgarðs hafnar-
innar. Mynd úr safni.
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Stykkishólmur 2016
Bifreiðaskoðun verður hjá Bílaverkstæðinu
Dekk & Smur, Nesvegi 5
Mánudaginn 18. apríl
Þriðjudaginn 19. apríl
Miðvikudaginn 20. apríl
Allar stærðir ökutækja skoðaðar
Tímapantanir í síma 438–1385
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00 SK
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6