Skessuhorn - 29.06.2016, Page 23
MIÐVIKUDAGUR 29. JÚNÍ 2016 23
gjöfum til starfsins. En sumarbúða-
starfið nýtur engra opinberra styrkja.
Það sem útaf stendur er 1,3 milljón
króna og er nú verið að reyna hóp-
fjármögnun í gegnum Karolinafund
söfnunarsíðuna.
Leiðslan sem lögð hefur verið er
160 metrar en grafa þurfti nokk-
uð djúpan skurð, þar sem samhliða
var lögð ný hitaveituleiðsla. Þá var
keypt dæla, vatnið tengt inn á kerfið,
fyllt upp í skurðin og sáð í sárin sem
mynduðust. Hver meter af fullbúinni
leiðslu niðurgrafinni og tilbúinni til
notkunar kostar rúmar 8.000 krónur.
10 sm af leiðslunni tilbúinni til notk-
unar kosta því 800 krónur og er fólk
að styrkja starfið með því að kaupa 15
sm og upp í tvo metra.
Starfið í Ölveri byggir á sjálfboða-
vinnu. Á þriðja þúsund vinnustund-
ir eru gefnar á ári hverju til að halda
starfinu gangandi. Allt utanumhald
við sumarbúðirnar er unnið í sjálf-
boðavinnu, en stjórn Ölvers vinnur
allt sitt án þess að þiggja krónu fyrir.
Þess fyrir utan er góður hópur fólks
sem heldur utan um verklega þætti,
endurnýjun og viðhald og enn aðrir
sem sjá um kaffisölu, þrif á veturna,
kynningu og stefnumótun. mm
Ný skógræktarstofnun
SKÓGRÆKTIN
tekur 1. júlí við hlutverki og skyldum Skógræktar ríkisins og landshlutaverkefnanna í skógrækt,
þ.e. Héraðs- og Austurlandsskóga, Suðurlandsskóga, Vesturlandsskóga, Skjólskóga á Vestfjörðum og
Norðurlandsskóga. Stofnunin þjónar öllum skógræktendum, fagfólki í skógrækt og áhugafólki um allt land.
Á þessum tímamótum er efnt til skógargöngu í öllum landshlutum
á fimmtudag og föstudag.
Göngurnar verða sem hér segir:
Rannsóknastöð skógræktar, Mógilsá: Starfsfólk stöðvarinnar tekur á móti gestum í skóginum við stöðina
föstudag 1. júlí kl. 14-16.
Suðurland: Galtalækur í Biskupstungum Bláskógabyggð (ekki Galtalækjarskógur í Rangárþingi ytra) – Bændur á Galtalæk
ásamt starfsfólki Skógræktarinnar taka á móti gestum og ganga til skógar föstudag 1. júlí kl. 14-16.
Vesturland: Oddsstaðir í Lundarreykjadal Borgarfirði – Heimafólk og starfsfólk Skógræktarinnar tekur á móti gestum
í skóginum föstudag 1. júlí kl. 14-17.
Vestfirðir: Innri-Hjarðardalur í Önundarfirði – Skógarbændurnir Sólveig Bessa Magnúsdóttir og Björgvin Sveinsson taka
á móti gestum í skóginum ásamt starfsfólki Skógræktarinnar föstudag 1. júlí kl. 16-18.
Norðurland: Silfrastaðir í Akrahreppi Skagafirði. Skógarbændurnir Johan Holst og Hrefna Jóhannesdóttir taka á móti gestum
ásamt Félagi skógarbænda á Norðurlandi og starfsfólki Skógræktarinnar fimmtudag 30. júní kl. 19.
Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, tekur þátt í göngunni og flytur stutt ávarp.
Austurland: Strönd á Völlum Fljótsdalshéraði, afleggjari að Ásholti (Strandarási). Heimamenn og starfsfólk Skógræktarinnar
taka á móti gestum í skóginum föstudag 1. júlí kl. 14-16.
Rjúkandi ketilkaffi að hætti skógarmanna og kleinur eða annað góðgæti með.
Klæðum landið skógi og byggjum upp skógarauðlind!
SKÓGRÆKTIN
ÞJÓNUSTA ÞJÓNUSTA
BLIKKSMIÐJA
Loftræstingar – Reykrör
Klæðningar – Nýsmíði
Viðhald – Efnissala
JÁRNSMIÐJA
Gjafagrindur – Nýsmíði
Viðhald – Þjónusta
Hesthúsinnréttingar
RAFMAGNS-
VERKSTÆÐI
Nýlagnir – Viðhald
Viðgerðaþjónusta
Borgarbraut 74 • 310 Borgarnesi • 412-5300 • limtrevirnet.is
Þeir Ragnar Jakob Kristinsson og
Sigurður Karlsson tóku við rekstri á
Munaðarnes Restaurant í fyrrasum-
ar. Þar hafa þeir komið með ýmsar
nýjungar, t.d. að bjóða upp á nám-
skeiðsaðstöðu í sal veitingahúss-
ins en hann er einstaklega heppi-
legur fyrir slíkt. Nú stendur til að
opna hostel í húsi fyrir aftan veit-
ingastaðinn, þar sem áður var bar.
„Það fylgir því mikill auka kostn-
aður að hafa áfram bar í húsinu því
það þyrfti alltaf að hafa allavega einn
auka starfsmann hér úti. Því vildum
við nýta húsnæðið í eitthvað annað,“
segir Sigurður í samtali við Skessu-
horn. Hann segir að þeir hafi fund-
ið fyrir eftirspurn eftir gistiaðstöðu
í Munaðarnesi enda séu margir sem
komi þar við, t.d. vegna námskeiða,
og vilja stoppa lengur. „Þetta hús er
mjög heppilegt fyrir hostel og þurfti
litlu að breyta. Það voru tvö kló-
sett hér fyrir og við tókum annað
þeirra og settum upp sturtuaðstöðu.
Einnig settum við upp neyðarút-
gang en annað þurfti ekki að gera.
Við ákváðum að setja ekki upp eld-
unaraðstöðu, ekkert sem eldhætta er
af. Hér er samt örbylgjuofn og kaffi-
vél og svo kemur til greina að setja
grill á pallinn. Veitingastaðurinn er
opinn frá apríl/maí og fram í októ-
ber og þá gætu hostel gestirnir keypt
mat þar.“ Til að byrja með verður
aðstaða fyrir fimm manns í gistingu
en það stendur til að fjölga rúmum
um helming.
Í Munaðarnesi er margt skemmti-
legt fyrir gesti að skoða og mætti þar
nefna sýningu tengda goðafræðinni.
Sýningin, sem var áður í Borgar-
nesi, er byggð á listaverki eftir Hauk
Halldórsson listamann. Um er að
ræða líkan af hinum níu heimum
goðafræðinnar og geta gestir skoð-
að líkanið með hljóðleiðsögn. Sig-
urður er einnig menntaður nuddari
og hefur sett upp mjög notalega að-
stöðu í kjallara veitingahússins þar
sem öllum er velkomið að bóka tíma
í nuddi. „Hvað er betra en að kom-
ast í smá nudd og leggjast svo í pott-
inn í náttúrudýrðinni hér í Munað-
arnesi,“ segir Sigurður.
arg
Hostel brátt opnað í Munaðarnesi
Nýtt hostel opnar í Munaðarnesi.
Ragnar Jakob Kristinsson og Sigurður
Karlsson opna hostel í Munaðarnesi.
Ljósm. Ragnar Karlsson.
Ölver, sumarbúð-
ir KFUM og KFUK,
eru mörgum að góðu
kunnar en þær hafa
verið starfræktar í 76
ár. Í Ölveri er unnið
mikið kristið mann-
ræktarstarf sem þús-
undir barna hafa notið
góðs af. Undanfarin ár
hefur vatnslind sumar-
búðanna reynst stopul
og var sett á laggirnar
vatnsöflunarnefnd sem
starfaði í sjálfboða-
vinnu og tók ákvörðun
í samráði við sérfræð-
inga að reyna að bora
eftir vatni. Það bless-
aðist vel og kom bor-
inn niður á góða vatns-
lind innan svæðis sum-
arbúðanna. Nýja lindin
gefur gott vatn og ann-
ar vel vatnsþörf sum-
arbúðanna. Kostnað-
ur við borunina og
lagningu nýrrar vatns-
leiðslu er í kringum
þrjár milljónir króna,
en stjórn sumarbúð-
anna hefur þegar út-
vegað fjármagn fyr-
ir um 1,7 milljónum
meðal annars með ár-
legri kaffisölu og fleiri
Ölver leitar til velunnara að hópfjár-
magna leiðslu frá nýrri vatnslind