Skessuhorn - 20.07.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 20. JÚLÍ 2016 15
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið: Mán. - fimmt. kl. 09-18 / Föst. 09-17.
Lokað á laugardögum í sumar.
INNRÉTTINGAR
DANSKAR
Í ÖLL HERBERGI HEIMILISINS
FJÖLBREYTT ÚRVAL AF HURÐUM,
FRAMHLIÐUM, KLÆÐNINGUM OG EININGUM,
GEFA ÞÉR ENDALAUSA MÖGULEIKA Á
AÐ SETJA SAMAN ÞITT EIGIÐ RÝMI.
STERKAR OG GLÆSILEGAR
Starf skipulags- og byggingafulltrúa
Grundarfjarðarbær auglýsir starf skipulags- og byggingafulltrúa laust
til umsóknar. Um er að ræða mjög spennandi starf í áhugaverðu umhverfi.
Leitað er að öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er
reiðubúinn að þróa starfið á traustum grunni.
Skipulags- og byggingafulltrúi ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja,
úttektum, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu,
varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
Helstu verkefni:
Framkvæmd skipulags- og byggingamála
Áætlanagerð og eftirfylgni, mælingar, úttektir og útreikningar
Undirbúningur og eftirfylgni funda skipulags- og umhverfisnefndar
Samstarf við aðila utan og innan stjórnsýslunnar, sem vinna að verkefnum á
sviði byggingamála
Yfirumsjón framkvæmda og eignasýslu í sveitarfélaginu
Önnur verkefni
Hæfniskröfur:
Menntun og löggilding, skv. ákvæðum 8. og 25. gr. mannvirkjalaga nr.
160/2010 og 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er nauðsynleg
Þekking og reynsla af úttektum og mælingum
Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum og byggingareglugerð
Reynsla af stjórnun er æskileg
Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar
Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Góð almenn tölvukunnátta
Umsókn skal fylgja greinargóð starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 8. ágúst 2016.
Umsóknir ásamt ferilskrá skulu sendar á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Steinsson, bæjarstjóri í
síma 430 8500 eða í tölvupósti á netfangið thorsteinn@grundarfjordur.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Næstu blöð af Skessuhorni:
Miðvikudaginn 27. júlí
Vegna sumarleyfa kemur ekki út blað
3. ágúst, en þann kemur starfsfólk úr fríi.
Fyrsta blað í ágúst kemur þann 10.
Björn Guðmundsson (1911-1998)
trésmiður var starfsmaður Kaup-
félagsins í Borgarnesi á liðinni
öld og mikill hugsjónamaður.
Hann byrjaði árið 1979 að hanna
og smíða leikvöll fyrir börn enda
barngóður mjög. Bjössi notaði við
smíðina endurnýtt efni sem nýtt-
ist öðrum ekki lengur og leiktæk-
in málaði hann svo í regnbogans
litum. Bjössaróló er neðarlega í
gamla bænum í Borgarnesi og hef-
ur stundum verið kallaður best
geymda leyndarmál Borgarness.
Á Bjössaróló eru m.a. rólur, renni-
brautir, vegasalt, gamall bátur, brú
og ýmislegt fleira skemmtilegt í
ævintýralegu umhverfi. Skammt
fyrir neðan er fjaran og því heill
ævintýraheimur fyrir börn.
Í ljósi frétta af mikilli uppbygg-
ingu og allt að því 2007 ástandi í
íslensku samfélagi ákváðu starfs-
menn Safnahúss Borgarfjarðar ný-
verið að birta á vefsíðu sinni ágæta
færslu úr gestabók Bjössaróló.
Færslan er frá 1994 og skrifuð af
Bjössa sjálfum: „Heilræði! Kaup-
um helst ekki nema það sem við
getum borgað. (Bjössi).“
mm
Kaupum helst ekki nema
það sem við getum borgað
Bjössaróló í Borgarnesi.
Heilræði Bjössa.
Föstudaginn 22. júlí opnar Rósa
Njálsdóttir málverkasýningu í Sögu-
miðstöðinni Grundarfirði. Verk-
in eru öll unnin með olíu á striga
og efnistökin eru fólkið hennar,
fjöllin og fjörðurinn. Verk hennar
eru unnin eftir gömlum svart-hvít-
um ljósmyndum og einnig litrík-
ar landslagsmyndir sem sýna fjöllin
fyrir vestan og sólsetrið í sveitinni
hennar. Sýningin verður opin til 1.
ágúst. Rósa er uppalin í Suður-Bár
í Grundarfirði en hefur búið á Ak-
ureyri síðastliðin 25 ár. Hún hefur
lagt stund á olíumálun síðan 2004
og haldið nokkrar einkasýningar á
Akureyri og nærsveitum. Þetta er
önnur sýning Rósu í Grundarfirði.
mm
Rósa Njálsdóttir opnar sýningu í Grundarfirði