Skessuhorn - 12.10.2016, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 20162
Veitingastaðurinn 59 Bistro Bar var
opnaður á laugardaginn í Grund-
arfirði eftir gagngerar breyting-
ar. Veitingastaðurinn er til húsa á
Grundargötu 59 þar sem að Kaffi
59 og síðar RúBen voru til húsa.
Veitingamaðurinn Hendrik Björn
Hermannsson er maðurinn á bak-
við 59 Bistro Bar og hefur hann
staðið í ströngu síðustu viku en
hann fékk staðinn afhentan 1. októ-
ber síðastliðinn. Mikið verk hefur
verið unnið á þessum sjö dögum
en gagngerar endurbætur hafa átt
sér stað inni á staðnum. Skipt hef-
ur verið um gólfefni og innrétting-
ar og margar hendur verið iðnar við
kolann á þessum tíma. Staðurinn er
glæsilegur á að líta eftir breyting-
arnar og verður varla neinn svikinn
af heimsókn á 59 Bistro Bar.
tfk
Núna er orðið tímabært að drífa í ýmsum
haustfrágangi ef hann er eftir. Gera má
ráð fyrir að haustlægðirnar haldi áfram
að minna á sig á þessum árstíma og því
þarf að ganga frá garðáhöldum, grillum,
trampólínum og öðrum leiktækjum, felli-
hýsum, tjaldvögnum og hjólhýsum til
geymslu.
Á morgun spáir sunnan- og suðaust-
an 13-20 m/s og mikilli rigningu en það
dregur úr úrkomu eftir hádegi. Suðaust-
an 8-15 og bjartviðri norðan- og norð-
austanlands. Hiti á bilinu 8 til 13 stig, hlýj-
ast norðaustanlands. Á föstudag er útlit
fyrir fremur hæga austlæga átt og léttir
víða til en suðaustanlands verður skýjað
og dálítil væta. Hiti 6 til 12 stig að degin-
um. Á laugardag verður hæg breytileg átt
og bjart með köflum. Hiti breytist lítið. Á
sunnudag er heldur vaxandi austlæg átt
og úrkoma suðaustan- og austanlands
en lengst af þurrt norðan jökla og á Vest-
fjörðum. Hiti 4 til 10 stig. Á mánudag er út-
lit fyrir austanátt og vætu um landið aust-
anvert en þurrt verður vestan til á landinu.
Hiti breytist lítið.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hversu oft í viku ferðu í bað eða sturtu?“
45% lesenda Skessuhornsvefjarins baða
sig daglega. 30% segjast baða sig sjaldn-
ar, 29% fjórum til sex sinnum í viku, 15%
tvisvar til þrisvar í viku og 4% svarenda
baða sig einu sinni í viku. Einungis 2%
þeirra sem tóku þátt í könnuninni baða
sig oftar en einu sinni á dag.
Í næstu viku er spurt:
„Ertu búin(n) að ákveða
hvað þú ætlar að kjósa?“
Ólafur Davíðsson á Hvítárvöllum í Borgar-
firði hefur um áratuga skeið flutt sláturfé á
haustin. Fer hann eina ferð á dag frá Borg-
arfirði norður á Sauðárkrók með um 400
lömb, eða um 2000 lömb á viku. Ólafur er
þrautseigur og öruggur bílstjóri og við til-
nefnum hann Vestlending vikunnar.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Fá óhöpp í
umferðinni
VESTURLAND: Að-
eins urðu fjögur umferðaró-
höpp í umdæmi Lögreglunn-
ar á Vesturlandi í liðinni viku
og telst það að sögn lögreglu
vel sloppið miðað við fjölda
óhappa undanfarnar vik-
ur. Tveir erlendir ferðamenn
lentu út af á bílaleigubílnum
sínum á afleggjaranum sem
liggur að Hótel Hafnarfjalli
um liðna helgi. Bíllinn hélst á
réttum kili en fólkið fékk högg
á sig þegar bíllinn lenti nokk-
uð harkalega. Fólkið slapp án
teljandi meiðsla enda í örygg-
isbeltum og þá blésu líknar-
belgirnir út við höggið. Bíll-
inn var óökufær eftir óhapp-
ið og var fjarlægður af krana-
bíl. Á miðvikudag fauk létt-
byggður jepplingur út af við
Hafnarfjall, eins og segir frá
í annarri frétt í blaðinu í dag.
Þá fór betur en á horfðist þeg-
ar fólksbíll lenti utan í hesta-
kerru við mætingu á Snæfells-
nesvegi aðfararnótt mánudags.
Óhappið atvikaðist þannig að
ökumaður sendibíls sem var
með hestakerru í drætti þurfti
að sveigja fram hjá gangandi
vegfaranda rétt um leið og
hann mætti fólksbíl sem kom
úr gagnstæðri átt. Gangandi
vegfarandinn slapp en fólks-
bíllinn rakst utan í hestakerr-
una (sjá mynd). Allir sluppu án
teljandi meiðsla en til öryggis
þá var ökumaður fólksbílsins
fluttur á heilsugæslustöðina í
Borgarnesi til skoðunar.
-mm
Þúsund myndir
teknar
LANDIÐ: Alls tóku hraða-
myndavélar lögreglunnar í
landinu yfir 1000 myndir af
ökumönnum sem óku of hratt
víðs vegar um landið á liðinni
viku. Unnið er úr gögnum frá
þeim hjá Lögreglunni á Vest-
urlandi. Af þessum þúsund
voru 183 myndir teknar af öku-
mönnum sem óku of hratt við
Fiskilæk sunnan við Hafnar-
fjall. Þá tóku lögreglumenn 20
ökumenn fyrir of hraðan akst-
ur í vikunni og tíu þeirra óku
of hratt á kaflanum við Bifröst í
Norðurárdal þar sem leyfilegur
hámarkshraði er tekinn niður í
70 km á klst. Einn ökumaður
var tekinn fyrir ölvun við akst-
ur í umdæminu í vikunni.
-mm
Lokað um
Arnarvatnsheiði
BORGARFJÖRÐUR: Í til-
kynningu frá Vegagerðinni
segir að vegna mikilla rigninga
og aurbleytu hefur veginum
um Arnarvatnsheiði verið lok-
að fyrir allri umferð frá Surts-
helli að Arnarvatni stóra.
-mm
„Uppskeran er ágæt enda hefur tíð-
arfarið í sumar verið gott,“ segir
Bergþór Jóhannesson bóndi á Staf-
holtsveggjum í Borgarfirði. Hann
sáði í maí fyrir rófum í tæpan hekt-
ara lands og lét acryl-flugnadúk hlífa
plöntunum þar til nýlega. Berg-
þór er þessa dagana að taka upp en
nauðsynlegt er að ljúka því í tæka
tíð fyrir frost. Hann reiknar með að
uppskeran verði um 15 tonn. „Ég sel
til mötuneyta og verslana og einn-
ig í beinni sölu í gegnum Facebook,
undir heitinu „Stafrófur“. Þar get-
ur fólk sett inn pantanir. Þá er ég nú
að innrétta geymslu fyrir hluta upp-
skerunnar í gamalli hlöðu en það
fæst betra verð fyrir gulrófur eftir
áramót,“ segir hann. Þetta er annað
sumarið sem Bergþór ræktar gulróf-
ur en einnig sáði hann í sandborinn
garð gulrótafræjum og fékk ágæta
uppskeru.
Bergþór er frá Stafholtsveggj-
um og kveðst smám saman vera að
komast inn í búskapinn, en foreldr-
ar hans búa með sauðfé og hross á
Stafholtsveggjum. Aðalstarf Berg-
þórs er þó umhirða með hænsna-
búinu sem frændur hans, bræðurnir
Kristinn Gylfi og Björn Jónssynir í
Brautarholti á Kjalarnesi, eiga. Þeir
keyptu fyrir nokkrum árum útihús á
jörðinni sem þeir breyttu í hænsna-
bú fyrir frjálsar varphænur. Talsverð
vinna er að tína egg og koma þeim
í stórbakka sem sendir eru suður
til hreinsunar og pökkunar í neyt-
endaumbúðir. Bergþór stýrir þeirri
vinnu. mm
Stafrófur þessa hausts komnar í sölu
Bergþór Jóhannesson bóndi með fallegar rófur úr garðinum.
Nýr veitingastaður opnaður í Grundarfirði
Hendrik er hérna ásamt starfsfólki sínu en hann er annar frá vinstri.
Verulegar framkvæmdir eru fram-
undan við Fosshótel Reykholti á
næstu mánuðum. Til stendur að
stækka hótelið umtalsvert en bæta
á 28 herbergjum við þau 53 sem
fyrir eru. Þá á að gera miklar end-
urbætur á eldri hluta hótelsins, svo
sem að endurnýja öll eldri herberg-
in, stækka móttöku og fara í fram-
kvæmdir í kjallaranum „Við erum
byrjaðir að moka fyrir grunninum á
viðbyggingunni, fyrsta skóflustung-
an var tekin um daginn,“ segir Arn-
þór Pálsson hótelstjóri í Reykholti
í samtali við Skessuhorn. Hótelinu
verður lokað næstkomandi mánu-
dag, 17. október. „Við opnum ekki
aftur fyrr en í lok mars á næsta ári.
Þá verður fyrsti hlutinn opnaður
en við ætlum að gera þetta í tveim-
ur hollum. Í vetur verður móttak-
an tekin í gegn og stærsti hluti her-
bergjanna. 20 bestu herbergin verða
látin bíða og þau verða tekin í gegn
á næsta ári.“
Það eru TVT ehf. sem sér um
byggingar- og verkefnastjórn en að
sögn Arnþórs verður vinnan einnig
unnin mikið í samstarfi við heima-
menn. „Steini Guðmunds sér um
uppgröftinn, hann er kominn með
einhverja iðnaðarmenn úr sveit-
inni og er að leita að fleirum. Þetta
er allt unnið í samstarfi við heima-
fólk.“ Arnþór segir allt verða tek-
ið í gegn á hótelinu og að ekkert
verði skilið eftir. „Þetta er heildar-
verkefni sem ráðist verður í núna
og næsta vetur. Við munum þeg-
ar upp er staðið endurnýja öll her-
bergi, byggja við hótelið að framan
og stækka móttökuna. Við ætlum að
taka kjallarann í gegn og þar verður
flott heilsulind. Á efstu hæð hótels-
ins ætlum við að koma fyrir norður-
ljósastofu, þar sem gestir geta setið
inni í hlýjunni og horft á norðurljós-
in í gegnum gler,“ segir Arnþór að
endingu. grþ
Undirbúningur vegna stækkunar Fosshótels hafinn
Líkt og sjá má er undirbúningur vegna stækkunar Fosshótels Reykholti hafinn,
byrjað er að moka fyrir grunni viðbyggingar þar sem m.a. verða 28 ný hótelher-
bergi. Ljósm. mm.