Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 15 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Hópur íbúa á Akranesi hefur hrund- ið af stað undirskriftasöfnun þar sem skorað er á bæjaryfirvöld á Akranesi að auka niðurgreiðslur vegna gæslu barna og rýmka reglur um aldur þeirra við innritun í leikskóla. „Við skorum á bæjaryfirvöld á Akranesi að endurskoða reglur varðandi nið- urgreiðslur til foreldra með börn hjá dagforeldrum og innritunarreglur í leikskóla bæjarins. Ástæðan er ein- föld; niðurgreiðslan hjá Akranes- kaupstað er töluvert lægri en í flest- um ef ekki öllum bæjarfélögum á landinu,“ segir í kynningu vegna áskorunarinnar. Hópurinn nefnir sem dæmi að í Kópavogi fá foreldrar greitt ríflega 17.000 krónum meira og í Garða- bæ og Borgarnesi ríflega 23.000 krónum meira en foreldrar á Akra- nesi fá. Mismunurinn er enn meiri þegar einstæðir foreldrar eiga í hlut. „Síðan eru það elsku börnin sem eru fædd snemma á árinu og eru orðin fullorðin þegar þau loksins kom- ast inn í leikskólana. Þessi umræða hefur verið töluvert í fjölmiðlum og margir sem hafa kvartað,“ segir Margrét Egilsdóttir sem er í forsvari fyrir undirskriftasöfnunina. „Eft- ir að hafa eytt töluverðum tíma við lestur innritunarreglna flestra bæj- arfélaga á landinu hef ég komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bæjar- félag býður börnum leikskólapláss fyrst þegar þau hafa náð 30 til 31 mánaða aldri. Þarna erum við að tala um börn fædd í janúar og febrúar. Öll bæjarfélög virðast gera allt sem í þeirra valdi stendur til að bjóða þessum börnum leikskólapláss fyrr, eða allt frá 6 mánaða, en yfirleitt 18 mánaða aldri.“ Margrét hvetur íbúa til að skrifa undir áskorunina til bæj- aryfirvalda því barnafólk á Akranesi situr eftir þegar kemur að þjónustu bæjarfélagsins bæði hvað varðar ald- ur við innritun á leikskóla og lágar niðurgreiðslur. Nánari upplýsingar og rökstuðn- ing með áskoruninni má lesa á síð- unni: http://www.ipetitions.com/ petition/askorun-til-baejaryfir- valda-a-akranesi mm Mótmæla lágum niður- greiðslum og háum aldri við innritun í leikskóla ÆTLA STJÓRNMÁLIN AÐ SITJA HJÁ? Opinn fundur Samtaka ferðaþjónustunnar með oddvitum stjórnmálaflokkanna um framtíð ferðaþjónustunnar í Norðvesturkjördæmi. Eva Pandóra Baldursdóttir Píratar G. Valdimar Valdemarsson Björt framtíð Gunnar Bragi Sveinsson Framsóknarflokkur Gylfi Ólafsson Viðreisn Haraldur Benediktsson Sjálfstæðisflokkur Inga Björk Bjarnadóttir Samfylking Lilja Rafney Magnúsdóttir Vinstri græn FERÐAÞJÓNUSTAN Í NORÐVESTURKJÖRDÆMI Hvenær: Fimmtudaginn 13. október kl. 20.00 Hvar: Menntaskóli Borgarfjarðar Heitt á könnunni - allir velkomnir! Fundurinn verður í beinni útsendingu á www.saf.is og sýndur á sjónvarpsstöðinni N4 SAMTÖK FERÐAÞJÓNUSTUNNAR – málsvari íslenskrar ferðaþjónustu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.