Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201622 Sigurjón Þórðarson er oddviti Dög- unar í Norðvesturkjördæmi. Á sæt- unum næst á eftir honum sitja Pálm- ey Gísladóttir, Þórður A Júlíus- son, Pétur Guðmundsson og Guð- jón Arnar Kristjánsson. Sigurjón er ættaður af Snæfellsnesi en býr í dag á Sauðárkróki þar sem hann er framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Norðvesturlands og í hlutastarfi sem líffræðikennari í Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra á Sauðár- króki. Hann er menntaður líffræð- ingur og er með framhaldsnám í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Ís- lands og í Fráveitufræðum frá há- skóla í Bretlandi. „Svo á ég líka eitt heimsmet,“ bætir hann við. Hann á heimsmet í besta tíma sem synt- ur hefur verið frá Drangey í land en hann hafi lengi verið í Garpasundi til að „halda bumbunni innan marka,“ að eigin sögn. Sigurjón sat á þingi fyrir Frjáls- lynda flokkinn á árunum 2003-2007 og hefur setið í sveitarstjórn Skaga- fjarðar. Eftir hrun gekk Frjálslyndi flokkurinn saman með öðrum flokk- um og myndaði stjórnmálaflokkinn Dögun, sem öflugra mótsvar við fjór- flokknum. „Síðan hafa kannski ýmsir gengið út, en ég hélt áfram að starfa með Dögun,“ segir hann. Dögun hefur komið fram með tillögur að breytingum á þeim séríslensku kerf- um sem reynst hafa umdeild, á borð við banka-, lífeyrissjóða-, kvóta- og almannatryggingakerfið. Verðtryggingin eins og spilavíti Sigurjón segir áhersluatriði flokks- ins vera bætt kjör almennings. „Það er ótækt að almenningur sitji uppi með alla áhættu af lántöku. Verð- tryggingin er hrein og klár vit- leysa og engar þjóðir nota þetta.“ Sigurjón lagði fram þingsályktun- artillögu árið 2006 þar sem hann lagði til að verðtryggingin yrði lögð niður. Hann segir að íslenskt bankakerfi sé ekki gott fyrir við- skiptavini þess. Þess vegna hefur flokkurinn lagt til að komið verði á samfélagsbanka. „Umræðan um samfélagsbanka hefur verið á þann veg í stóru fjölmiðlunum að þetta sé sérvitringabanki, en þetta yrði banki sem myndi miða að því að þjóna viðskiptavinunum og ekki leggja of mikla vaxtakröfu á þá,“ segir Sigurjón og bendir á að sam- félagsbanki sé ekki undarlegri en svo að yfir 50 milljón Þjóðverjar notist við samfélagsbankann Spar- kessen. Hann vill lækka vaxtabyrði á Ís- landi fyrir fyrirtæki og almenning. „Það er fjöldi ungs fólks í útlönd- um og við verðum að geta sýnt fólki fram á það að það geti snúið aftur heim og komið sér þaki yfir höfuðið án þess að vera tilneytt til að taka lán í bankakerfi sem minn- ir um margt á spilavíti.“ Bætt umferðaröryggi og sanngjörn laun til sjómanna Þá finnst Sigurjóni líka mikilvægt að koma á sanngjarnri verðmynd- un á afla með því að greiða sjó- mönnum raunvirði fyrir aflann í hlutaskiptakerfi sjómanna. Stað- reyndin sé sú að stóru útgerðar- fyrirtækin sem reka eigin vinnslu komist upp með að greiða sjó- mönnum 50% lægra verð en þeir ættu að fá í hlutaskiptum. „Þá eru ekki bara sjómennirnir sem missa spón úr aski sínum, heldur ekki síst ríkissjóður þar sem helming- ur af tekjum sjómanna myndi ann- ars lenda til hins opinbera í gegn- um tekjuskatt,“ segir Sigurjón og bendir á að sveitarfélögin séu líka snuðuð um útsvarstekjur og hafn- ir á Íslandi fái ekki hafnargjöld í samræmi við raunverð aflatekna. „Það er ekki verið að taka neitt af neinum heldur tryggja útgerðinni hæsta verð sem er í boði á hverjum tíma,“ segir Sigurjón og bætir við að með því að fara sanngjarna leið við verðmyndun á fiski þá myndu fást eðlilegri kraftar í sjávarútveg- inn og tekjur hins opinbera myndu hækka mun meira en svaraði þref- öldun á veiðigjöldum. Góðar samgöngur bæta mannlífið Sigurjón segir að þessi mál, verð- tryggingin og laun sjómanna, séu þjóðþrifamál sem nauðsynlegt sé að ræða en það sé meira sem hann telur að flokkurinn geti gert fyr- ir kjördæmið. Til dæmis koma á frjálsum handfæraveiðum og taka verulega til í samgöngumálum. „Góðar samgöngur geta bætt mannlífið og Hvalfjarðargöngin eru gott dæmi um það.“ Umferð- aröryggi hafi aukist stórlega með komu Hvalfjarðarganganna og al- varlegum slysum hafi fækkað mik- ið eftir að þau voru opnuð. Nú sé þó hægt að gera betur og hann bendir á að brýnt sé að bæta um- ferðaröryggi í kjördæminu með því að breikka vegi og einnig þurfi að gera mikið átak í samgöngu- málum, sérstaklega á sunnanverð- um Vestfjörðum þar sem von er á að það þurfi að flytja tugi þúsunda tonna árlega af eldislaxi á ónýtum vegum. klj Oddviti Dögunar kallar eftir sanngjarnara samfélagi Sigurjón Þórðarson skipar oddvitasætið á lista Dögunar. Bjarthegri (Egretta garzetta) hef- ur að undanförnu verið á ferð við Stykkishólm. Þetta er frem- ur sjaldgæfur flækingsfugl hér við land. Hann er mjög ljós og með mikinn skúf aftan á höfði. Með- fylgjandi myndir tók Sumarliði Ásgeirsson. Bjarthegri við Breiðafjörð KOSNIN GAR 2016 Árleg hrútasýning Sauðfjárrækt- arfélags Helgafellssveitar og ná- grennis var haldin á sunnudaginn. Sýndir voru veturgamlir hrútar og lambhrútar. Miklir og flottir gripir voru sýndir, margt var um manninn og kaffiveitingar á eftir. Í flokki veturgamalla hrúta varð efstur svartur kollóttur hrútur frá Hraunhálsi í Helgafellssveit í flokki mislitra, af hyrndum veturgömlum varð efstur hrútur frá Bjarnarhöfn 2 og í flokki hvítra, kollóttra hrútur frá Hraunhálsi. Í flokki lambhrúta varð efst- ur svartur hrútur frá Hraunhálsi í flokki mislitra, hrútur frá Bjarnar- höfn efstur í flokki hyrndra og í flokki kollóttra varð einnig efstur hrútur frá Bjarnarhöfn. Hægt að sjá frekari umfjöllun um sýninguna og vinningshafa á heimasíðu félagsins hrutur.123.is sá Hrútasýning í Helgafellssveit

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.