Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201630 Hvenær kaupirðu fyrstu jólagjafirnar? Spurning vikunnar (Spurt á Akranesi) Þórarinn Ingi Tómasson: „Yfirleitt í byrjun desember.“ Lísbet Sigurðardóttir: „Byrja yfirleitt í nóvember en kaupi síðustu gjafirnar á Þor- láksmessukvöldi.“ Tinna Ósk Grímarsdóttir: „Yfirleitt í nóvember.“ Guðný Ruth Þorfinnsdóttir: „Með haustinu, en stundum fyrr. Er oftast búin að kaupa margar jólagjafir um miðjan október.“ Meistaraflokkur karla í körfuknatt- leik var endurvakinn í Grundar- firði síðasta haust eftir rúmlega áratugs hlé. Grundfirðingar sendu lið til keppni í 3. deild þar sem þeir unnu tíu af þrettán leikjum sínum, höfnuðu í fjórða sæti og komust í úrslitakeppnina. Eftir heimasigur í úrslitakeppninni á móti Patreki mættu þeir Laugdælum en urðu að játa sig sigraða. Þjálfari liðsins í vet- ur er Einar Þór Jóhannsson og Að- alsteinn Jósepsson er spilandi fram- kvæmdastjóri, ef svo má að orði komast. „Einar sér um æfingar og stýrir liðinu í leikjum en ég sé um skipulag og alla framkvæmd, að- stoða á æfingum auk þess að spila með liðinu. Þannig að það má alveg segja að ég sé spilandi framkvæmda- stjóri,“ segir Aðalsteinn í samtali við Skessuhorn í síðustu viku. Hann kveðst ánægður með árangurinn og ekki síst spilamennsku liðsins á síð- asta vetri. Ekki síst í ljósi þess að lið- ið var skipað mönnum sem ýmist voru ungir og efnilegir en óreyndir, að taka skóna af hillunni eða hrein- lega höfðu aldrei æft körfubolta áður. „Þetta var mjög gott, sérstak- lega þar sem við vorum með mikið af strákum sem höfðu aldrei áður spilað skipulagðan körfubolta,“ seg- ir hann og bætir því við að á þess- um eina vetri hafi liðið tekið mikl- um framförum. „Það er stórkostleg- ur munur á liðinu frá því í fyrra og við erum farnir að hlaupa skipulögð kerfi. Menn vita hvert þeir eiga að hlaupa og hvar þeir eiga að hreyfa sig,“ segir hann. „Þetta hefur allt saman gengið vel og strákarnir sem mæta á æfingar hafa áhuga á að læra, það auðveldar rosalega mikið við að kenna þeim nýja hluti. Allt svona tekur auðvitað tíma en flestir eru búnir að ná nokkuð góðum tökum á að spila skipulagðan körfubolta. Við töpuðum aðeins tveimur leikjum með meira en tíu stiga mun og erum ánægðir með það,“ segir Aðalsteinn og vill hrósa Grundfirðingum fyr- ir að hafa verið duglegir að mæta á völlinn. „Það var rosa vel mætt á alla heimaleikina og við erum ótrúlega ánægðir með það,“ segir hann. Úrslitakeppnin er markmiðið Grundfirðingar hófu leik sunnu- daginn 2. október síðastliðinn þeg- ar þeir heimsóttu lið Álftnesinga en töpuðu með níu stiga mun, 87-78. „Fyrsti heimaleikurinn var síðast- liðinn laugardag á móti Kormáki frá Hvammstanga sem teflir fram skemmtilegu og litríku liði,“ sagði Aðalsteinn. Eins og fram kemur í annarri frétt hér í blaðinu sigruðu heimamenn í leiknum. Að sögn spilandi framkvæmda- stjóra hefur liðsskipan Grundfirð- inga breyst nokkuð frá síðasta vetri. Framherjinn Sveinn Arnar Davíðs- son er til að mynda genginn til liðs við Snæfell sem og efnilegi miðherji Rúnar Þór Ragnarsson. Þar að auki hafa leikmenn sem á síðasta vetri léku með Grundfirðingum á vensla- samningi frá Snæfelli verið kallað- ir til baka. „En það kemur maður í manns stað. Liðið er skipað mönn- um af Snæfellsnesi á öllum aldri, en mest þó Grundfirðingum,“ segir Aðalsteinn og kveðst bjartur á kom- andi vetur. „Við ætlum okkur að ná heimaleik í úrslitakeppninni og reyna að gera betur þar en í fyrra,“ segir Aðalsteinn að lokum. kgk/ Ljósm. tfk. „Við ætlum að reyna að gera betur en í fyrra“ - Grundfirðingar spila í 3. deild karla í körfuknattleik í vetur Aðalsteinn Jósepsson er spilandi framkvæmdastjóri Körfu- knattleiksdeildar Grundarfjarðar. Svipmynd úr leik Grundfirðinga og Breiðabliks í bikarnum í fyrra. Um helgina var haldið Litla TYR- mót Ægis í Laugardalslaug. Mótið var fyrir sundmenn 12 ára og yngri og sendi Sundfélag Akraness yfir 20 keppendur á aldrinum 10-12 ára til keppni en nokkrir þeirra yngstu voru að keppa í fyrsta sinn á sundmóti í Reykjavík. Keppt var í aldursflokkum 8-9 ára, 10-11 ára og 12 ára. Sund- menn SA stóðu sig afar vel og voru alls tæplega fjörutíu sinnum í þremur efstu sætunum í sínum aldursflokki. Í lok móts voru veittir verðlaunabik- arar þeim sundmönnum sem voru stigahæstir eftir fjórar 50m greinar. Í flokki 10-11 ára meyja var Guðbjörg Bjartey Guðmundsdóttir stigahæst. Afrekskonurnar og sundsysturn- ar Eygló Ósk Gústafsdóttir, íþrótta- maður ársins 2015 og Jóhanna Gerða Gústafsdóttir afhentu verðlaun á mótinu. tg Ungt sundfólk á Litla TYR móti Ægis Keppendur frá Sundfélagi Akraness, 10 ára og yngri með þátttökuverðlaunin sín. Eygló Ósk Gústafsdóttir veitti Guð- björgu Bjartey Guðmundsdóttur verðlaunin en hún varð stigahæsta meyja mótsins. Grundarfjörður tók á móti Kormáki frá Hvammstanga í fyrsta heimaleik í þriðju deildinni í körfunni á laugar- daginn. Leikurinn var nokkuð jafn og spennandi og skiptust liðin á að taka forystu. Heimamenn áttu svo góð- an kafla í byrjun fjórða leikhluta þar sem þeir náðu tíu stiga forystu og héldu frumkvæðinu eftir það. Gest- irnir náðu aðeins að saxa á forskotið og minnkuðu muninn niður í fjögur stig en þá tóku Grundfirðingar við sér aftur og náðu að sigla þessu heim. Leikurinn endaði svo 67-61, heima- mönnum í vil og Grundfirðingar því komnir með fyrsta sigurinn í deild- inni en þeir töpuðu fyrsta leiknum gegn Álftanesi á útivelli helgina á undan. tfk Grundarfjörður sigraði Kormák P. Andri Þórðarson númer 23 fagnar hér þriggja stiga körfu þegar skammt var til leiksloka. Nýliðar Skalla- gríms hófu leik í Domino‘s deild karla í körfuknatt- leik síðastliðið föstudagskvöld þegar liðið heim- sótti Hauka að Ásvöllum í Hafn- arfirði. Heima- menn réðu ferð- inni stærstan hluta leiksins og Skalla- g r í m s m ö n n u m tókst aldrei að ná yfirhöndinni, þrátt fyrir ítrekað- ar tilraunir. Haukar unnu að lokum tíu stiga sigur, 80-70. Jafnt var á öllum tölum framan af fyrsta leikhluta og liðin skiptust á for- skotinu með hverri skoraðri körfu. Haukar tóku þó að síga fram úr upp úr miðjum fjórðungnum og höfðu fimm stiga forskot fyrir annan leik- hluta. Eftir það tóku þeir stjórn leiks- ins í sínar hendur og héldu gestun- um tíu til 15 stigum fram að leikhléi. Staðan 47-34 fyrir Haukum í hálf- leik. Það sama var uppi á teningnum í þriðja leikhluta. Skallagrímsmenn eltu forskot heimamanna og náðu að minnka muninn í níu stig fyrir lokafjórðunginn. Eftir slæma byrjun í fjórða leikhluta spýttu Skallagrís- menn í og áttu góðan leikkafla. Þeir minnkuðu muninn niður í sex stig og spenna farin að færast í leikinn. En nær komust þeir ekki því Haukar stóðust áhlaupið og höfðu að lokum sigur, 80-70. Flenard Whitfield var atkvæða- mestur leikmanna Skallagríms með 32 stig og 14 fráköst. Sigtryggur Arnar Björnsson kom honum næstur með tólf stig, átta fráköst og sjö stoð- sendingar og Eyjólfur Ásberg Hall- dórsson skoraði tíu stig og tók fimm fráköst. Fyrsti heimaleikur Skallagríms fer fram á morgun, fimmtudaginn 13. október, þegar Njarðvíkingar sækja Borgarnes heim. kgk Íslandsmeistaramótaröðin í klifri hófst um síðust helgi þegar fyrsta mót vetrarins var haldið í Klifur- húsinu í Reykjavík. Skagamenn fjölmenntu á mótið og átti ÍA 15 þátttakendur á aldrinum 6-16 ára. Fjórir klifrarar náðu stigamarkmið- um síns aldursflokks; Guðjón Gauti Vignisson í 6-7 ára flokki krakka, Sylvía Þórðardóttir í stelpuflokki 8-10 ára og Sverrir Elí Guðnason og Stígur Bergmann Þórðarson í strákaflokki 8-10 ára. Í unglinga- flokki hafnaði Brimrún Eir Óðins- dóttir í þriðja sæti. Framundan hjá ÍA er innan- félagsmót sem haldið verður í að- stöðu klifurfélagsins að Vesturgötu og annað stigamót vetrarins verður svo haldið í nóvember í Reykjavík. -fréttatilkynning Tóku þátt í fyrsta klifurmóti vetrarins Tap í fyrsta leik hjá Skallagrími Leikstjórnandinn Sigtryggur Arnar Björnsson átti prýði- legan leik. Ljósm. karfan.is á facebook.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.