Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 20168 Umhverfis,- skipulags- og land- búnaðarnefnd Borgarbyggðar sam- þykkti á fundi sínum í síðustu viku útgáfu byggingarleyfis fyrir 59 her- bergja hótelbyggingu á lóðinni Borgarbraut 59 í Borgarnesi. Byggir sú ákvörðun á gildandi deiliskipulagi frá 16. maí 2007, en eins og kunnugt er felldi Úrskurðarnefnd um um- hverfis- og auðlindamál 23. septem- ber sl. úr gildi deiliskipulag frá því í vor þar sem það var ekki talist sam- ræmast aðalskipulagi. Nefndin samþykkti jafnframt fyrir sitt leyti að láta breyta Aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022. „Breyt- ingin felst í að breyta ákvæðum og nýtingarhlutfalli á svæðinu sem er tilgreint Miðsvæði M í Borgarnesi. Í nýföllnum úrskurði úrskurðar- nefndar umhverfis- og auðlindamála er litið til þess að nýtingarhlutfall á lóðum innan svæðisins megi ekki fara yfir 1,0. Í áður samþykktu deil- skipulagi leit sveitarfélagið á svæðið M sem eina heild þannig að nýting- arhlutfall á einstökum lóðum gætu farið yfir 1,0 og þessi túlkun gerði Skipulagsstofnun ekki athugsemd við. Endanlegri afgreiðslu vísað til sveitarstjórnar.“ Nefndin samþykkti auk þess að láta breyta deiliskipulagi við Borg- arbraut 55-59 á þann hátt að lóðirn- ar 55 og 57 verði skildar að en horft verði á skipulag lóðanna Borgar- brautar 57 og 59 í einni heild. End- anlegri afgreiðslu vísað til sveitar- stjórnar. mm Telja óþrif af óskráðum og ónýtum bílum BORGARBYGGÐ: Byggð- arráð Borgarbyggðar metur óviðunandi stöðu varðandi óskráðar og ónýtar bifreiðar sem staðsettar eru á lóðum víða í þéttbýli Borgarbyggðar. Segir í bókun af fundi byggð- arráðáðs að ónýtar og óskráð- ar bifreiðar, sem komið væri fyrir á almannafæri, væru til óþrifa og settu slæma ásýnd á samfélagið. Byggðarráð fól sveitarstjóra að hafa samband við heilbrigðisnefnd Vestur- lands vegna málsins. Mark- miðið er að bílhræjum verði komið út úr íbúðahverfum og af opnum svæðum og þeim komið fyrir á viðeigandi stað eða fargað. -mm Vilja burðar- plastpokalaust sveitarfélag BORGARBYGGÐ: Að und- anförnu hefur verið starfandi vinnuhópur um burðarplast- pokalausa Borgarbyggð og hefur hann nú skilað skýrslu sem kynnt var í byggðar- ráði í liðinni viku. Þar seg- ir m.a.: „Helstu kostir felast í umhverfislegum ávinningi og bættri umhverfisvitund meðal íbúa. Til lengri tíma má gera ráð fyrir að kostnað- ur vegna úrgangsmála lækki. Verkefni sem þetta gæti, ef vel tekst til, stuðlað að auk- inni samkennd og samstöðu og jákvæðri ímynd fyrirtækja og sveitarfélagsins alls. Gall- ar við innleiðingu verkefnis- ins felast einkum í kostnaði. Gera þarf ráð fyrir góðum undirbúningstíma og þar sem sveitarfélagið er landstórt og íbúar og fyrirtæki dreifð um svæðið þarf að huga að kostn- aði við að ná til allra. Einnig getur verið erfitt að fá fólk til að taka upp nýja siði.“ -mm Spila í Logalandi BORGARFJ: Borgfirskir briddsspilarar eru búnir að dusta rykið af spilastokkun- um og farnir að spila vikulega í Logalandi, fyrsta spilakvöld- ið var 27. september. Þá voru það Sveinbjörn Eyjólfsson og Anna Heiða Baldursdótt- ir sem skoruðu langmest, eða 72%. Næst var spilað 3. októ- ber og þá voru það Jón Ein- arsson og Ingimundur Jóns- son sem skoruðu mest, eða 70%. Mánudaginn 10. októ- ber var enn á ný spilað og þá voru það Logi Sigurðsson og Heiðar Baldursson sem fóru með sigur af hólmi með ríf- lega 62% skor. Áfram verða eins kvölda tvímenning- ar næstu tvö mánudagskvöld en 31. október hefst aðaltví- menningur félagsins. „Það er pláss fyrir fleiri spilara og nú er um að gera að fara að æfa sig fyrir aðaltvímenninginn,“ segir í tilkynningu. -ij/mm Hrúta- sýningardagur framundan SNÆFELLSNES: Héraðs- sýning lambhrúta á Snæfells- nesi verður haldin laugar- daginn 15. október nk. Fyrri hluti sýningarinnar fer fram á Gaul í Staðarsveit og hefst kl. 13.00. Á þeirri sýningu verða veitingar í boði gegn vægu gjaldi til að fá upp í kosn- að við sýningarhald. Seinni hluti sýningarinnar verður að Haukatungu Syðri 2 í Kol- beinsstaðarhreppi og hefst kl. 20.30. Verðlaunaafhend- ingin verður að lokinni sýn- ingu í Haukatungu. „Við vilj- um hvetja sauðfjárræktendur til að mæta með gripi sína á sýninguna og taka þátt í upp- skeruhátíð sauðfjárræktenda á Snæfellsnesi,“ segir í tilkynn- ingu frá nefndinni. Í reglum um sýningarhald segir með- al annars að ekki megi nota aðkeypta hrúta sem ekki eru fæddir á Snæfellsnesi. Allir hrútar skulu vera stigaðir og hvert býli má mæta með þrjá hrúta í hverjum flokki. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 1. - 7. október Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 1 bátur. Heildarlöndun: 4.047 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 4.047 kg í einni löndun. Arnarstapi 1 bátur. Heildarlöndun: 1.004 kg. Mestur afli: Bárður SH: 1.004 kg í einni löndun. Grundarfjörður 2 bátar. Heildarlöndun: 100.268 kg. Mestur afli: Hringur SH: 57.254 kg í einni löndun. Ólafsvík 6 bátar. Heildarlöndun: 91.039 kg. Mestur afli: Gunnar Bjarna- son SH: 44.949 kg í fjórum löndunum. Rif 5 bátar. Heildarlöndun: 84.644 kg. Mestur afli: Saxhamar SH: 31.071 kg í einni löndun. Stykkishólmur 3 bátar. Heildarlöndun: 52.028 kg. Mestur afli: Hannes Andr- ésson SH: 35.424 kg í fimm löndunum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Hringur SH - GRU: 57.254 kg. 5. október. 2. Helgi SH - GRU: 43.014 kg. 3. október. 3. Saxhamar SH - RIF: 31.071 kg. 6. október. 4. Gunnar Bjarnason SH - ÓLA: 27.533 kg. 6. október. 5. Matthías SH - RIF: 24.104 kg. 4. október. grþ Það vakti athygli föstudaginn 7. október sms tilkynning frá Rarik þar sem varað var við rafmagnstruflun- um í Grundarfirði. Ástæða tilkynn- ingarinnar var að vinna stóð yfir við að skipta um spenni í spennustöð bæjarins en á meðan var sett upp færanleg spennustöð sem keyrði raf- magn á bæinn á meðan vinnan stóð yfir. Ný spennustöð er í byggingu fyrir Grundarfjarðarbæ en þónokk- ur tími er í að hún verði vígð og tek- in í notkun. tfk Rarik skiptir um spenni Spennirinn hífður á sinn stað. Starfsmenn Rarik taka hífinguna upp á snjallsíma sína. Nema að þeir séu að taka svokallaðar sjálfur á símana, en því verða þeir að svara sjálfir. Byggingarnefnd samþykkti teikningar að hótelbyggingu Teikning Gjafa af suðausturhlið hótelbyggingarinnar. Skagamenn og nærsveitarfólk hafa nú í þrjár vikur haft færi á því að taka þátt í nýrri rannsókn sem lýtur blóðskim- un vegna mergæxlis. Fjólubláa um- slagið hefur verið borið í öll hús og eru allir hvattir til að taka þátt í þess- ari rannsókn, en Akranes og nágrenni eru hluti af forkönnun fyrir Þjóðará- tak gegn mergæxlum, sem hefst form- lega um miðjan nóvember. Viðtökur á Akranesi eiga þannig að vera hvatning til annarra landsmanna. „Við fórum í þessa forkönnun, sendum upplýsingabæklinginn, fjóubláa umslagið, í öll hús á Akra- nes og nánasta umhverfi. Við vild- um sjá að upplýsingaefnið kæmist til skila og heimasíðan og upplýsta samþykkið virkuðu,“ segir Sigurð- ur Yngvi Kristinsson, sérfræðing- ur í blóðsjúkdómum og prófessor við HÍ, en hann er ábyrgðarmaður rannsóknarinnar, en markmið henn- ar er að meta hvort ávinningur sé af því að skima fyrir forstigi mergæxli. Sigurður Yngvi segir að viðtökur Skagamanna hafi verið góðar. Akra- nes hafi verið valið til að taka þátt í forkönnuninni af því að íbúar þar séu jákvæðir í garð rannsókna, bæjarfélag- ið sé af hæfilegri stærð og sé í hæfi- legri fjarlægð við háskólann. „Þátt- takan hefur verið framar björtustu vonum, nú þegar. Þó ekki séu liðnar nema þrjár vikur eru þegar 37% af úr- takinu búin að skrá sig, ýmist á netinu eða með því að senda okkur pappírs- umslagið.“ Sigurður Yngvi hefur verið dug- legur að kynna verkefnið fyrir Skaga- mönnum, hitt Lions-klúbba, farið á heilsugæsluna og talað við eldri borg- ara. Hann segir að ýmsar spurningar hafi vaknað hjá Skagamönnum. „Við höfum á tilfinningunni að það séu mjög margir áhugasamir sem vilji vera með, en eru þó ekki búnir að skrá sig. Sumir virðast halda að þeir þurfi að fara sérstaklega í blóðprufu fyrir rannsóknina, en svo er ekki. Við biðj- um fólk bara um að skrá sig og næst þegar það fer í blóðprufu, á næstu þremur árum, þá fáum við sýnin. Það þarf ekki að gera annað en að skrá sig og það er hægt að gera á netinu. Ég skráði mig sjálfur og gat gert þetta á 27 sekúndum. Við hvetjum alla sem vilja vera með til að skrá sig á blods- kimun.is eða senda okkur fjólubláa umslagið,“ segir Sigurður Yngvi að endingu. mm Akranes verði hvatning til annarra landsmanna Norðurljósin, menningarhátíð í Stykkishólmi, verður haldin há- tíðleg dagana 20.-23. október. Undirbúningsnefnd hátíðarinnar vinnur nú í óða önn að dagskrár- gerð. Meðal dagskráliða er norð- urljósa- og stjörnuskoðunarferð sem Facebookhópurinn Ferða- félag barnanna í Stykkishólmi og nágrenni stendur fyrir. Þá verður gengið stuttan spöl frá félagsheim- ilinu Skildi í Helgafellssveit, þar sem þátttakendur hittast, og fund- inn góður staður til að skoða him- ininn. Með í för verður Snæbjörn Guðmundsson, náttúrufræðingur sem svarar spurningum og fræðir þátttakendur um himingeiminn. Farið verður frá Skildi laugardags- kvöldið 20. október, kl. 20:00. Ferðafélag barnanna í Stykk- ishólmi og nágrenni er tiltölu- lega nýstofnaður hópur á facebo- ok. Markmið félagsins er að hvetja fjölskyldur til útiveru og stuðla að því að öll börn fái tækifæri til kynn- ast nærumhverfi sínu og upplifa náttúruna. Þetta verður fyrsta ferð félagsins. -jse Norðurljósin í Stykkishólmi Þessi unga dama fann engin norðurljós um hábjartan dag í Hólminum. Þrátt fyrir mikla leit.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.