Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 11 HAUSTFAGNAÐUR FSD 21–22. OKT 2016 Föstudagur 21. október Kl. 12 – Lambhrútasýning og opin fjárhús að Svarfhóli, Laxárdal Kl. 19:30 Íþróttahúsið að Laugum í Sælingsdal – Sviðaveisla / Hagyrðingakvöld / Dansleikur Í boði verða köld svið, söltuð svið, reykt svið, sviðalappir o.fl. tengt sviðaveislu. Hagyrðingar verða: Sigurjón Jónsson, Selfossi, Þorsteinn Bergsson, Unaósi, Ósk Þorkelsdóttir, Húsavík og Stefán Vilhjálmsson, Akureyri. Stjórnandi verður Gísli Einarsson, Borgarnesi. Að loknu hagyrðingakvöldi taka félagar úr kirkjukór Akraness nokkur lög. Um dansleikinn sér hljómsveitin BLAND. Miðapantanir á sviðaveisluna fara fram hjá Valberg á Stóra-Vatnshorni, helst með tölvupósti valbergs@mi.is eða í síma 894-0999 frá 12. október til og með 18. október Aðgangseyrir er 7.000 kr. Hótelið á Laugum verður opið í tengslum við sviðaveisluna. Nánari upplýsingar og bókanir eru á laugar@umfi.is. Laugardagur 22. október Kl. 10 – Lambhrútasýning og opin fjárhús að Vatni, Haukadal Kl. 13 – Reiðhöllin. Nokkur fyrirtæki kynna þjónustu og Íslandsmeistaramótið í rúning fer fram. Kl. 19 – Grillveisla í Dalabúð og verðlaunaveiting fyrir bestu hrúta Kl. 00 – Dansleikur í Dalabúð með hljómsveitinni BUFF SK ES SU H O R N 2 01 6 Nú líður senn að menningarhá- tíðinni Vökudögum sem haldin er á hverju hausti á Akranesi. Hátíð- in mun að þessu sinni standa yfir í ellefu daga, hefjast fimmtudaginn 27. október og standa til sunnu- dagsins 6. nóvember. „Það hefur myndast hefð fyrir því að vera með upptaktsatriði daginn áður en há- tíðin er formlega sett og í ár verða íslenskir jazztónleikar haldnir á miðvikudeginum 26. október. Þar mun stórskotalið þriggja kennarar úr Tónlistarskólanum á Akranesi mynda hljómsveit og spila undir fyrir þrjá söngnema úr skólanum,“ segir Ella María Gunnarsdótt- ir forstöðumaður menningar- og safnamála á Akranesi í samtali við Skessuhorn. Að sögn Ellu Maríu er von á fjölbreyttri dagskrá um allan bæ á Vökudögum en viðburðirnir verða að minnsta kosti yfir fjöru- tíu talsins. Þrjár sýningar á svæði Byggðasafnsins í Görðum „Leik- og grunnskólarnir verða með hefðbundin atriði og sýning- ar líkt og undanfarin ár, svo sem tónleikana Ungir - gamlir sem nú verða haldnir á þriðjudegi í stað fimmtudags. Síðan verða þrjár sýningar á svæði Byggðasafnsins í Görðum. Gyða L. Jónsdóttir Wells verður með yfirlitssýningu af ævi- starfi sínu í Guðnýjarstofu, Dýr- finna Torfadóttir gullsmiður verð- ur með sýningu á Garðakaffi og svo verður boðið upp á sýninguna Bæjarbytturnar, brennivínið og bannárin,“ útskýrir Ella María. Hún segir að síðastnefnda sýning- in verði í Stúkuhúsinu og sýning- arnar verða allar opnar á opnunar- tíma Garðakaffis. Þá mun Stefán Pálsson sagnfræðingur halda fyrir- lestur um bannárin fimmtudaginn 3. nóvember í Stúkuhúsinu. „Það verður einnig boðið upp á stutta upptöku frá honum á meðan sýn- ingin er opin en þetta kvöld kem- ur hann fram í eigin persónu,“ bæt- ir hún við. Hrekkjavaka við Vesturgötu „Það er mjög gaman að sjá hvað Skagamenn eru frjóir og við íbú- arnir ótrúlega heppnir að eiga kost á því að sækja margskonar listvið- burði í heimabyggð. Ýmsar nýjung- ar verða á dagskrá Vökudaga í ár og má þar nefna tónleika í Bjarna- laug en samflot verður í lauginni á sama tíma. Þá mun listamaðurinn Philippe Richard sýna verk úr ýsu- beinum á bókasafninu.“ Sunnudag- inn 30. október verður viðburður sem kallast „King and court in ex- ile“. Í lýsingu á viðburðinum segir að fólk muni koma saman til fund- ar í Stúkuhúsinu og ganga fylktu liði niður í miðbæ Akraness í kjöl- farið. Valgerður Jónsdóttir stendur fyrir nokkrum viðburðum á Vöku- dögum, svo sem hrekkjavökuuppá- komu með eldri skólakór Grunda- skóla í kjallaranum á íþróttahúsinu við Vesturgötu, fjölskyldusöngs- tund á bókasafninu og tónleika á Garðakaffi. Rithöfundakvöldið ein af perlum Vökudaga Ella María segir að auk nýjunga megi finna fjölmörg klassísk at- riði, svo sem tónleika, ljósmynda- og myndlistasýningar. „Eitt af þeim atriðum er rithöfundakvöld á Bóka- safni Akraness, sem er alltaf vel sótt og ein af perlum Vökudaga. Í ár mun Sigurbjörg Þrastardóttir stýra því og munu nokkrir landsfrægir rithöfundar koma og lesa úr verk- um sínum.“ Ýmsir tónleikar eru á dagskrá Vökudaga í ár. Þar má meðal annars nefna þrenna tónleika sem allir verða haldnir í Vinaminni. „Hingað kemur finnskur karlakór, kór Akraneskirkju ætlar að vera með tónleika og Sveinn Arnar og Sveinn Rúnar munu halda tónleika en þeir kalla sig Tveir Sveinar,“ segir Ella María. Þá munu Halli Melló og Gói koma fram á Gamla Kaupfélaginu. Ýmsar sýningar Auk tónleikanna verða nokkrar myndlistarsýningar á boðstólnum svo sem árlegt samvinnuverkefni kennara og nemenda í Grunda- skóla, sýningin „Ömmurnar“ þar sem Anna Leif Elídóttir sýnir olíu- málverk sem hún hefur málað af ömmum sínum og langömmum og samsýningu Bjarna Þórs og Hörpu Hreinsdóttur þar sem Harpa mun sýna peysur og þemað í myndum Bjarna verða peysur. Heiti sýning- arinnar er Geggjaðar peysur. Ljós- myndasýning Marc Koegel verður áfram opin í Akranesvita en þar mun Ljósmyndaklúbburinn Höfrungur einnig vera með sýningu. Þá verð- ur Vitinn, félag áhugaljósmyndara á Akranesi, einnig með sýningu á Vökudögum. „Bókmenntagang- an Á slóðum Skagaskálda verður á dagskrá í ár og árleg menningar- verðlaun Akraneskaupstaðar verða að vanda veitt á Vökudögum. Enn er opið fyrir tilnefningar og er hægt að tilnefna til og með 14. október næstkomandi. Í Tónlistarskólan- um á Akranesi verður eitt og annað í boði. Opið hús verður í skólanum á kosningadaginn sem myndar eins konar lok á þemaviku skólans. Þar verður jafnframt sýningin Töfrar himins sem er ljósmyndasýning og kvikmynd.“ Enn hægt að vera með Dagskrá Vökudaga hefur tekið á sig góða mynd og hér á undan er stiklað á stóru. Það er þó enn hægt að skrá viðburði og þeir sem hafa áhuga á að vera með viðburð á Vökudögum geta haft samband við Ellu Maríu í gegnum Facebook síðu Vöku- daga eða með tölvupósti á mann- lif@akranes.is fyrir föstudaginn 14. október. „Dagskrá Vökudaga verð- ur svo auglýst í Skessuhorni og í Póstinum á næstu vikum. Viðburð- irnir verða kynntir á viðburðadaga- tali Akraneskaupstaðar á vefsíðunni akranes.is og við munum vera virk á Facebook og minna á viðburði þar,“ segir Ella María Gunnars- dóttir forstöðumaður menningar- og safnamála á Akranesi. grþ Dagskrá Vökudaga fjölbreytt og skemmtileg Svipmynd frá árlegu tónleikunum Ungir - Gamlir frá því í fyrra. Í ár verða tónleik- arnir á þriðjudegi í stað fimmtudags.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.