Skessuhorn


Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 17 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 Atvinnuráðgjafi Starfssvið: • Ráðgjöf við fyrirtæki, einstaklinga og sveitarfélög • Aðstoð við gerð viðskipta- og rekstraráætlana • Aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna í sjóði og til lánastofnana • Vinna við ýmis verkefni er snúa að byggðaþróun á Vesturlandi Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun og reynsla sem nýtist í starfi • Þekking á atvinnulífi og sveitarfélögum á Vesturlandi er kostur • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum • Frumkvæði, fagmennska og geta til að vinna sjálfstætt • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti • Góð tölvukunnátta Upplýsingar veita: Geirlaug Jóhannsdóttir geirlaug@hagvangur.is Sveina Berglind Jónsdóttir sveina@hagvangur.is Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 24. okt. nk. Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) óska eftir að ráða atvinnuráðgjafa. Viðkomandi starfar að verkefnum á öllu Vesturlandi. Alþjóðlegur dagur barnmissis Minningarathöfn verður í Akraneskirkju laugardaginn 15. október klukkan 11. Öllum er frjálst að koma, hvort sem þeir hafa misst barn eða ekki. Bleika og Bláa slaufan verða til sölu og kosta 1000 kr, (aðeins hægt að taka við peningum). Minningarstundir verða einnig í Lindakirkju Kópavogi og Akureyrarkirkju á sama tíma. Vonumst til að sjá sem flesta. Englaforeldrar á Akranesi SK ES SU H O R N 2 01 6 Freisting vikunnar Einn af vinsælli hversdagsréttum Íslendinga undanfarin ár er hakk og spaghetti, eða Spaghetti Bo- lognese eins og það útfærist víst á upprunamálinu. Flestir þekkja réttinn vel og margir af yngri kynslóðinni hafa alist upp við að borða silkimjúkar hveitilengjurn- ar með nautahakki í bragðmikilli tómatsósu. Hakk og spaghetti er bæði fljótlegur og einfaldur rétt- ur en til eru fleiri ljúffengir spag- hetti réttir. Einn þeirra er Spag- hetti Carbonara, sem er allt öðru- vísi útfærsla á pastanu og tóm- atar koma hvergi við sögu. Car- bonara er ítalskur réttur eins og þeir gerast bestir og á uppruna sinn að rekja til Rómar. Uppistað- an er pasta, beikon, egg, parmes- an eða pecorino ostur og svartur pipar. Rétturinn er bragðgóður og ekki spillir að það er bæði einfalt og fljótlegt að útbúa hann, sérstaklega ef viðkomandi er búinn að undir- búa sig aðeins. Spaghetti Carbonara með parmesan 1 laukur 1 hvítlauksrif 250 gr. beikon 100 gr. parmesan ostur (má einnig nota pecorino ost í staðinn eða til helminga) 2 msk. ólífuolía 2 egg við stofuhita 2 eggjarauður svartur pipar 400 gr. spaghetti eða fettuccine pasta Aðferð: Best er að byrja á undirbúningnum. Takið eggin úr ísskáp, því betra er ef þau eru ekki ísköld þegar rétturinn er útbúinn. Skerið laukinn og hvítlauk smátt. Skerið beikon í bita og fín- rífið ostinn. Hitið olíu á pönnu og steikið hvítlaukinn í henni við miðl- ungshita þar til hann verður gylltur. Takið þá hvítlaukinn af pönnunni og setjið til hliðar. Steikið því næst laukinn og beikonið á pönnunni í sömu olíu og hvítlaukurinn var steiktur í. Steikið þar til laukurinn mýkist og beikonið verður tilbúið, það tekur nokkrar mínútur. Sjóð- ið spaghetti eftir leiðbeiningum „al dente“ eða þar til það er nán- ast alveg tilbúið. Geymið um 1 dl af pastavatninu. Hrærið saman egg, eggjarauður og ostinn og piprið. Þegar allt er tilbúið, hrærið þá saman spaghettíinu við hvítlauk- inn, laukinn og beikonið. Því næst er eggja- og ostablöndunni blandað vel við og pastavatninu hrært smátt og smátt við, þar til réttri áferð er náð. Rífið smá parmesan ost yfir áður en rétturinn er borinn fram, piprið og stráið smá steinselju út á. Rétturinn bragðast vel með hvít- lauksbrauði, salati og kældu hvít- víni. Ítalskt Spaghetti Carbonara Vinkonurnar Gróa Margrét Viðarsdóttur og Dagbjört María Karlsdóttur brugðu á leik um helgina þegar fréttaritari Skessuhorns mundaði vélina í haustblíðunni í Búðardal. Gul laufblöð aspanna við Vesturbrautina tóna vel við klæðnað stúlknanna. sm Brugðið á leik Þekking Gæði Þjónusta Grensásvegi 46 - 108 Reykjavík - sími 5113388 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.