Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201612
Flekkóttu lömbin á þessari mynd
hafa óvenjulega hornagerð. Á
gimbrinni vaxa hornin fram en
hrúturinn til hægri hefur útstæð og
klofin horn líkt og svarti og hvíti
liturinn vilji ekki eiga samleið. En
vafalítið eiga systkini þessi ættir
að rekja til ferhyrnds fjár. Lömbin
eru í eigu hjónanna Bærings Ingv-
arssonar og Mundhildar B. Guð-
mundsdóttur á Þorbergsstöðum í
Dölum. sm
Óvenjuleg hornalögun
Það sannaðist svo ekki verður um
villst að féð í Hægindi í Reyk-
holtsdal ber af öðru fé í Borgar-
firði. Á hrútasýningu sem fram
fór um helgina á Hesti voru hrút-
ar frá Hægindi í efstu sætum í öll-
um flokkum, þ.e. í flokki hyrndra,
kollóttra og mislitra lambhrúta.
Ármann bóndi á Kjalvararstöðum
átti síðan besta veturgamla hrút-
inn. Féð frá þremur nágrannabæj-
um í sunnanverð-
um Reykholts-
dal er afar sigur-
sælt á sýningum
sem þessum, en
það eru bæirnir
Hægindi, Kópa-
reykir og Kjal-
vararstaðir.
mm/ Ljósm.
bmþ.
Hægindishrútar efstir í öllum
lambhrútaflokkum
Ólafur Sigvaldason í Hægindi stoltur með Móra sinn sem
hlaut 85,5 stig og var hæst dæmdi hrúturinn í flokki mislitra.
Ármann Bjarnason á Kjalvararstöðum heldur hér á bikar
fyrir besta veturgamla hrútinn. Honum á hægri hönd eru
Jón á Kópareykjum, Baldur í Múlakoti, Árni á Skarði og
Höskuldur í Stóra-Ási.
Miðvikudaginn 28. september voru
kýrnar á Gunnlaugsstöðum í Staf-
holtstungum mjólkaðar í fyrsta skipti
í nýju og glæsilegu fjósi. Á Þverár-
réttardag fyrir rúmu ári var mælt fyrir
sökkli og byggingingarframkvæmd-
ir hófust í kjölfarið. Áætlanir gerðu
ráð fyrir að fjósið yrði tilbúið síð-
asta vor, en tafir af ýmsum orsökum
urðu á verkinu um hálft ár. Það eru
feðgarnir Þórður Einarsson og sonur
hans Guðmundur Eggert sem standa
að framkvæmdunum og hafa stofn-
að fyrirtækið Mjólk og menn ehf. um
reksturinn. Nýja fjósið er 1.360 fer-
metra stálgrindarhús frá Landstólpa.
Fóðurblandan og Lífland seldu tæki
og innréttingar en gólfbitar koma
frá G Skaptasyni. Fjósið er hannað
til að rúma einn róbota, eða mjalta-
þjón, og í því verða 60-70 mjólkur-
kýr og ríflega annað eins af geldneyt-
um. Hönnun fjósins gerir ráð fyrir að
hægt sé að stækka það síðar og bæta
við öðrum róbóta. Á Gunnlaugsstöð-
um er gamalt básafjós sem fyrirséð
var að þjónaði ekki öllu lengur þeim
kröfum sem gerðar eru til aðbúnaðar
nautgripa samkvæmt nýjustu reglum.
Þórður bóndi hugðist um tíma hætta
búskap og selja jörðina, en að áeggj-
an Guðmundar Eggerts sonar síns
hafi hann tekið þá ákvörðun að ráð-
ast þess í stað í uppbyggingu.
Kýrnar tóku flestar
nýjum aðstæðum vel
Guðmundur Eggert Þórðarson er
nú fluttur heim til föður síns og unn-
ustu hans, Jórunnar Guðsteinsdótt-
ur. Hann ólst upp hjá móður sinni í
Hafnarfirði, en var öll sumur hjá föð-
ur sínum á Gunnlaugsstöðum og allt-
af aðra hverja helgi þegar hann var að
alast upp. Aðspurður segist hann afar
sáttur með að hafa tekið þá ákvörðun
að flytja í sveitina og að jörðin yrði
byggð upp í stað þess að hún yrði
seld. „Þetta hefur verið strangt og
mikið verkefni að koma fjósinu upp.
Engu að síður hafa þetta verið spenn-
andi tímar og persónulega finnst mér
þetta hafa verið með skemmtilegustu
dögum í lífi mínu þessi vika frá því
við byrjuðum að mjólka í fjósinu,“
segir Guðmundur Eggert. „Auðvitað
tekur það sinn tíma að kenna kúnum
á alla tæknina sem er í svona nýmóð-
ins fjósi. Þær eru allar vanar göml-
um fjósum og allt öðrum aðstæðum
og hafa sem dæmi aldrei áður kom-
ið nálægt mjaltaþjóni. Við bjuggumst
því allt eins við því að það tæki lang-
an tíma að kenna þeim á kerfið. Þeim
er sem dæmi kennt að þær geti vænst
fóðurbætis í sérstökum tölvustýrð-
um gjafabásum og í róbótanum þeg-
ar þær eru mjólkaðar. En kýrnar hafa
tekið þessu vel, utan ein fyrsta kálfs
kvíga. Hún bókstaflega fór á líming-
unum og bíður því enn ásamt annarri
kú í gamla fjósinu. Við eigum eftir að
gera aðra tilraun með að kenna henni
á nýjar aðstæður,“ segir Guðmund-
ur Eggert. Þegar blaðamann bar að
garði var Guðmundur Eggert ein-
mitt að mynda júgrin á kúnum fyrir
mjaltaþjóninn, en það er nauðsynlegt
til að tækið læri á spenagerð hverrar
og einnar kýr sem kemur til mjalta.
Búið var að gera þessa myndatöku
áður en þar sem sumar kýrnar voru
stressaðar við nýjar aðstæður, þurfti
að endurtaka myndatökuna þegar
þær voru orðnar rólegar, vanar að-
stæðum og stóðu kjurrar.
Heyjað á þremur
jörðum
Þórður bóndi hefur viðað að sér
kúm og kvígum undanfarin miss-
eri til viðbótar við þann bústofn
sem fyrir var og nú er á þriðja tug
mjólkandi í nýja fjósinu og mikið
af óbornum kvígum að auki. Þeir
feðgar gera ráð fyrir að á næsta ári
nái þeir að fylla fjósið. „Við verð-
um komnir með 50-60 mjólkandi
kýr á næsta ári og náum vonandi
fyrir árslok að fylla fjósið,“ seg-
ir Eggert. Aðspurðir um kostnað
við byggingu nýs fjóss svarar Þórð-
ur að bragði; „alltof mikið.“ Bætir
því svo við að líklega verið endan-
leg kostnaðartala á bilinu 140-160
milljónir króna. Það hafi vissulega
hjálpað að skulda ekkert áður en
ráðist var í framkvæmdir. Þessi tala
er svo fyrir utan kostnað við kaup á
kúm og kvígum og svo bíður tals-
vert túnræktun síðari tíma. Í sum-
ar heyjuðu þeir feðgar þrjár jarðir
til að byggja upp heyforða, heima á
Gunnlaugsstöðum, á Guðnabakka
sem er næsta jörð við hliðina auk
þess sem túnin í Nesi í Reykholts-
dal voru nytjuð. Þeir feðgar segja
ánægjulegt að byrja búskapinn í
nýja fjósinu með miklum og góð-
um heyjum. Rólegar og yfirvegaðar
kýrnar í fjósinu á Gunnlaugsstöð-
um eru sama sinnis.
mm
Nýtt fjós tekið í notkun á Gunnlaugsstöðum
Guðmundur Eggert Þórðarson rekur fyrirtækið Mjólk og menn ehf. í félagi við
föður sinn.
Guðmundur Eggert er hér að mynda júgrað á fyrsta kálfs kvígu. Þá lærir mjaltaþjónn-
inn að þekkja júgrað og spenagerðina og á að geta bjargað sér sjálfur eftir það.
Nýja fjósið á Gunnlaugsstöðum er 1.360 fermetrar að stærð og rúmar 150 gripi.
Kýrnar voru sáttar á legubásunum í lausagöngufjósinu. Kýr sem flytja úr
gömlu básafjósi eru nokkra daga að venjast því að best er að liggja á þurrum
legubásum.
Gert er ráð fyrir að nýja fjósið verði fullt á næsta ári og þá kemur sér vel að hafa
5000 lítra mjólkurtank.