Skessuhorn - 12.10.2016, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 20166
Borgarafundur í
NV-kjördæmi
VESTURLAND: Miðviku-
daginn 12. október klukkan
19:30 stendur RÚV fyrir opn-
um borgarafundi með fulltrú-
um framboða í Norðvesturkjör-
dæmi. Fundurinn verður hald-
inn í Menntaskóla Borgarfjarð-
ar í Borgarnesi og lýkur kl. 22.
Bein útsending verður af fund-
inum á Rás 2. „Fulltrúar átta
framboða hafa staðfest mætingu.
Það eru fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, Framsóknarflokksins,
Pírata, VG, Samfylkingar, Bjart-
ar framtíðar, Viðreisnar og Dög-
unar. Enn gætu bæst við þátttak-
endur á fundinum því Íslenska
þjóðfylkingin og Flokkur fólks-
ins stefna að framboði,“ seg-
ir í tilkynningu frá RÚV. Fund-
urinn verður opinn gestum og
gangandi sem gefst tækifæri til
að spyrja oddvitana spjörunum
úr. Einnig verður hægt að senda
fyrirspurnir á netfangið kosn-
ingar@ruv.is. -mm
Úrhellisrigningu
spáð
SUÐUR- OG VESTUR: Veð-
urstofa Íslands varar við óvenju
mikilli úrkomu á öllu sunnan-
og vestanverðu landinu fram
á fimmtudag. Gert er ráð fyr-
ir meira en 500 millimetra af-
rennsli af Eyjafjallajökli og al-
mannavarnir eru í viðbragðs-
stöðu. Í fréttum RÚV var í gær
haft eftir Elínu Björk Jónasdótt-
ur veðurfræðingi að ekki hefði
sést svo mikil rigningarspá lengi
og úrkoma sem stæði yfir svona
lengi, eða fram eftir fimmtu-
deginum. „Þetta getur verið al-
veg frá því að vera 70 - 80 milli-
metrar á láglendi upp í 200 - 300
millimetrar til fjalla þar sem úr-
koman er mest. Síðan bætist við
að það er mjög hlýtt loft þann-
ig að það er mikil bráðnun af
jöklum og gera spárnar ráð fyr-
ir meira en 500 mm afrennsli af
Eyjafjallajökli þegar rigningin
er búin á fimmtudaginn,“ sagði
Elín Björk Jónsdóttir í samtali
við fréttastofu RÚV. -mm
Opinn
fundur um
ferðaþjónustu í
kjördæminu
BORGARNES: Staða og
framtíð ferðaþjónustunnar
verður til umræðu á opnum
fundi sem Samtök ferðaþjón-
ustunnar halda með oddvitum
flokkanna í Norðvesturkjör-
dæmi fimmtudaginn 13. októ-
ber næstkomandi. Fundurinn
verður haldinn í Menntaskóla
Borgarfjarðar í Borgarnesi og
hefst kl. 20. Kastljósinu verður
beint að viðfangsefnum ferða-
þjónustunnar, sem á skömm-
um tíma er orðin umsvifamesta
atvinnugrein þjóðarinnar. Rætt
verður við fulltrúa flokkanna
í kjördæminu um leiðir til að
mæta örum vexti atvinnugrein-
arinnar í sátt við náttúruna og
íbúana. Þeir oddvitar flokk-
anna sem taka þátt í fundin-
um eru Eva Pandóra Baldurs-
dóttir Pírötum, Gunnar Bragi
Sveinsson Framsóknarflokki,
Gylfi Ólafsson Viðreisn, Har-
aldur Benediktsson Sjálfstæðis-
flokki, Inga Björk Bjarnadótt-
ir Samfylkingu, Lilja Rafney
Magnúsdóttir Vinstri græn-
um og Valdimar Valdemarsson
Bjartri framtíð. „Allir eru vel-
komnir á fundinn og það verð-
ur heitt á könnunni,“ segir í til-
kynningu. -mm
Áfram í Útsvari
AKRANES: Akraneskaup-
staður keppti í spurningaþætt-
inum Útsvari á RÚV á föstu-
daginn. Mótherji liðsins var
Árborg. Keppendur frá Akra-
nesi voru þau Vilborg Þórunn
Guðbjartsdóttir, Örn Arnarson
og Gerður Jóhanna Jóhanns-
dóttir. Eftir fremur erfiða byrj-
un náði Skagafólk sér á strik
undir lokin og sigraði með 80
stigum gegn 72. Keppnin var
æsispennandi eins og sjá má
á stigatöflunni, en Árborg er
stigahæsta tapliðið til þessa.
Frá Vesturlandi eiga tvö sveit-
arfélög eftir að keppa í fyrstu
umferð. Borgarbyggð mæt-
ir Grindavík 4. nóvember og
Snæfellsbær mætir Þingeyjar-
sveit 2. desember. -mm
24 sækjast
eftir stöðu
fjármálastjóra
AKRANES: Frestur til að
sækja um starf fjármálastjóra
Akraneskaupstaðar rann út
föstudaginn 30. september.
Bárust hvorki fleiri né færri en
24 umsóknir, en tveir drógu
umsóknir sínar til baka. Þetta
kemur fram á heimasíðu Akra-
neskaupstaðar. Fjármálastjóri
hefur yfirumsjón með áætl-
anagerð og uppgjöri sveitar-
félagsins og samhæfingu verk-
efna á sviði fjármála. Fjármála-
stjóri heyrir undir sviðsstjóra
stjórnsýslu- og fjármálasviðs
og er fjármálastjóri staðgeng-
ill hans. Það er ráðningafyrir-
tækið Capacent sem sér um úr-
vinnslu umsókna fyrir Akra-
neskaupstað. -kgk
Ólafur Davíðsson á Hvítárvöllum í
Borgarfirði hefur um áratuga skeið
flutt sláturfé á haustin. Fyrst fyrir
Sláturhús KB í Borgarnesi en eft-
ir að það var úrelt hefur hann ekið
norður fyrir heiðar. Undanfarin ár
hefur Óli ekið með fé úr Borgar-
firði sem slátrað er í Sláturhúsi KS
á Sauðárkróki. Hann gerir í haust
út tvo bíla en hinum ekur Þorvald-
ur Jónsson á Skeljabrekku í forföll-
um fyrir son sinn Jón Þór sem verið
hefur í veikindafríi að undanförnu.
„Þetta gengur þannig fyrir sig að
fimm daga vikunnar fer ég eina ferð
á dag norður. Smala þá á bílinn á
bæjum hér í Borgarfirði og fer með
um 400 lömb í hverri ferð,“ segir
Óli þar sem blaðamaður hittir hann
við olíudæluna í Baulunni í Stafholt-
stungum. Þar var hann að tanka á
bílinn og nesta sig sjálfan fyrir norð-
urferð. Óli ekur Scania vörubíl með
tengivagni og eru lömbin á þrem-
ur hæðum á sérbyggðum flutn-
ingavagni á bíl og tengivagninum.
„Við byrjum svona viku af septem-
ber og keyrum fimm daga vikunnar,
frá sunnudögum og fram á fimmtu-
daga. Þetta hefur gengið prýðilega í
haust. Maður hittir marga og þetta
er skemmtilegt. Ég er ekki nema
hálfan þriðja tíma norður og því er
þetta bara býsna þægilegur vinnu-
dagur,“ segir Óli á Hvítárvöllum.
mm
Ekur með fjögurhundruð
lömb á dag á Sauðárkrók
Ólafur Davíðsson á Hvítárvöllum við bílinn og áfastan fjárflutningavagn. Þennan
dag var rok á veginum við Hafnarfjall og því var Óli nýkominn af malarvegunum
yfir Dragháls og Hestháls með fé úr sunnanverðum Borgarfirði á leið til slátrunar
á Sauðárkróki.
Hinum bílnum hans Óla á Hvítárvöllum hefur Þorvaldur á Skeljabrekku ekið í
haust. Hér er verið að flytja fé úr Fljótstungurétt.
Á miðvikudag í síðustu viku gerði
nokkuð stífa sunnanátt um vest-
anvert landið. Þegar verst lét um
morguninn náði vindhraði í hvið-
um 46 metrum á sekúndu við
Hafnarfjallið. Tóm snjósleðakerra
fauk þá aftan úr bíl og endaði för
eina 200 metra norðan við veg-
inn. Þá fauk einn hinna léttbyggðu
Suzuki Jimmy bíla, sem einkum
eru notaðir af erlendum viðkipta-
vinum bílaleiga. Hafnaði bíllinn
á hitaveitustokknum sunnan við
veginn. Vafalaust hefur ökumaður
lent í einum af hinum þekktu hnút-
um sem einkenna þennan stað, þar
sem vindur getur þeytt léttbyggð-
um ökutækjum í báðar áttir. Að
sögn lögreglu slasaðist enginn í
þessum óhöppum. mm
Bílaleigubíll og kerra fuku við Hafnarfjall