Skessuhorn - 12.10.2016, Page 14
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201614
Nú er unnið að stofnun nýs fyrir-
tækis sem verður til húsa á Bifröst
í Borgarfirði. Nefnist það Hótel-
þvottur ehf. Eins og nafnið gefur
til kynna er um rekstur þvottahúss
fyrir hótel að ræða. Að fyrirtækinu
stendur Inger Helgadóttir í Borg-
arnesi ásamt hjónunum Ásdísi Sig-
urðardóttur og Guðjóni Guðvarð-
arsyni. Hótelþvottur verður í hluta
húsnæðis sem Samkaup rak áður
verslun í og er miðsvæðis í háskóla-
þorpinu á Bifröst.
Að sögn Ingerar Helgadótt-
ur hefur Hótelþvottur fest kaup á
nýjum þvottavélum sem koma til
landsins í þessari viku. Strax í næstu
viku er svo ráðgert að hefja starf-
semina. Nú þegar er búið að gera
samninga við nokkur hótel á Vest-
urlandi um þvotta á líni og hand-
klæðum. Fyrirkomulagið verður
með þeim hætti að Hótelþvottur á
línið sem hótelin leigir af fyrirtæk-
inu og þvotti ekið daglega á milli,
eða eftir þörfum. mm
Hótelþvottur brátt
opnaður á Bifröst
Á fundi byggðarráðs Borg-
arbyggðar síðastliðinn
fimmtudag fór Eiríkur
Ólafsson sviðsstjóri fjármála-
og stjórnsýslusviðs yfir ýmsa
þætt varðandi undirbúning
að fjárhagsáætlun fyrir 2017
og þriggja ára áætlun. Meðal
annars greindi hann frá nið-
urstöðum úr verkefni sumar-
starfsmanns sem tók saman
upplýsingar um gistiheim-
ili og gististaði innan sveit-
arfélagsins sem ekki höfðu
verið skráð sem slík. „Eftir
að brugðist hafði verið við
þeim athugasemdum sem
gerðar voru við útsend gögn
þá voru það 60 einingar í
skráningarskyldri starfsemi
sem ekki höfðu verið skráðar
sem slíkar. Áætlaður tekju-
auki Borgarbyggðar af þess-
um gististöðum á ársgrund-
velli er 7,5 milljónir króna,“
segir í fundargerð.
mm
Við skoðun komu sextíu
óskráðar gistieiningar í ljós
Slökkvilið eru starfrækt vítt og
breitt um landið og mynda ásamt
lögreglu, sjúkraliði og björgun-
arsveitum mikilvægt viðbragðs-
teymi þegar slys og óhöpp verða.
Slökkvilið landsins eru misjafnlega
burðug, eins og gengur, en flest-
öll mönnuð áhugasömu fólki sem
vinnur óeigingjarnt starf í þágu
samfélagsins. Slökkvilið í dreifð-
ari byggðum landsins eru virkari
og starf þess meira en marga órar
fyrir. Í Dalabyggð er starfrækt öfl-
ugt slökkvilið. Það er prýðilega
tækjum búið og mannskapurinn
æfir fyrstu helgi hvers mánaðar.
Skessuhorn var á ferðinni í Búð-
ardal fyrir skemmstu og ræddi við
Jóhannes Hauk Hauksson slökkvi-
stjóra. „Samkvæmt lögum þá á
slökkvilið að æfa 20 tíma á ári að
lágmarki og reykkafarar að æfa 20
tíma til viðbótar við reykköfun ein-
göngu. Æfing er yfirleitt um fjórar
klukkustundir og það þýðir að hver
slökkviliðsmaður þarf að sækja tíu
æfingar á ári. Ekki komast alltaf
allir og því eru tólf æfingar á ári
eiginlega lágmark, þó það sé ekki
mögulegt alls staðar á landsbyggð-
inni því miður,“ segir Jóhannes.
Sú var ekki raunin hjá Slökkviliði
Dalabyggðar þegar Jóhannes tók
við stöðu slökkvistjóra fyrir rúm-
um tveimur áratugum síðan. „Þeg-
ar ég varð slökkviliðsstjóri 1995 var
langt á milli æfinga, lítill búnaður
til og sá sem þó var til var gamall
og úreltur. Þegar staðan er þann-
ig er mannskapurinn eðli málsins
samkvæmt að ekki jafn vel í stakk
búinn að bregðast við. Menn verða
bara ryðgaðir ef það líður of langt
á milli æfinga,“ segir hann. „Því var
ákveðið að reyna að færa starfið til
betri vegar og árið 2000 fengum
við fyrsta bílinn okkar og ári seinna
fyrsta tankbílinn,“ bætir hann við.
Slökkviliðið er
vel tækjum búið
„Árið 2007 varð síðan stærsta fram-
förin í tækjakosti þegar við keypt-
um nýjan One Seven slökkviliðs-
bíl, en árin á milli höfðum við lagt
okkur fram um að fjárfesta í öðr-
um búnaði, nýjum búningum og
öðru slíku,“ segir Jóhannes, en til-
koma bílsins var algjör bylting í
tækjakosti slökkviliðs Dalabyggðar
því hann leysti af hólmi fjörtíu ára
gamlan Bedford slökkviliðsbíl. Er
hann mun hraðskreiðari og marg-
falt afkastameiri en gamli bíllinn.
„Froðu er blandað saman við vatn-
ið sem sjöfaldar slökkvigetu þess.
Bíllinn er hraðskreiður og útbúinn
litlum vatnstanki sem gerir okkur
kleift að hefja slökkvistarf um leið
og komið er á staðinn og halda því
uppi í 30 til 45 mínútur á meðan
beðið er eftir tankbílnum,“ segir
hann. Þar að auki er bíllinn útbú-
inn öflugum bílaklippum. „Við
fórum þá leið þegar ákveðið var að
kaupa klippur að kaupa öflugustu
gerðina, ætlaða til að klippa vöru-
bíla og lestir. Umferð flutninga-
bíla er það mikil hér í gegn að við
töldum það ráðlegt,“ segir slökkvi-
stjórinn. Hann bætir því við að
slökkviliðsmenn hafi verið heppn-
ir bæði þegar nýi slökkviliðsbíllinn
og klippurnar voru keyptar. „Bíl-
inn keyptum við nýjan frá Amer-
íku árið 2007, þegar gengi dollar-
ans var mjög hagstætt. Hann kost-
aði okkur um 15 milljónir þá, en
tveimur árum síðar hefði hann
kostað tvöfalt meira. Eins vorum
við heppnir með klippurnar, þær
kostuðu rúmar tvær milljónir en
myndu í dag kosta nær sex,“ seg-
ir Jóhannes ánægður en bætir því
við að slökkviliðið hafi þurft að
safna fyrir klippunum. Söfnunin
hafi gengið vonum framar og það
sé rausnarlegum framlögum Dala-
manna að þakka að þær hafi verið
keyptar.
Óvenju mörg
bílslys á árinu
Jóhannes kveðst ánægður að vel
sé æft og búnaður sé orðinn góð-
ur. Það hafi sýnt sig á síðustu árum
og þannig þurfi hlutirnir að vera.
„Bara á síðasta ári var slökkviliðið
kallað að bæði stórbruna og gríð-
arlega vandasömu bílslysi,“ segir
hann. Bruninn sem um ræðir var
þegar brann á Ljósalandi í Saurbæ.
Segir Jóhannes að þar hafi sýnt
sig gott samstarf slökkviliðs Dala-
byggðar og slökkviliðanna í Reyk-
hólahreppi og á Ströndum. „Við
kölluðum strax eftir aðstoð og okk-
ar vinna gekk mjög vel fyrir sig.
Slökkviliðsmenn úr Reykhólasveit
og af Ströndum komu með tank-
bíla. Alltaf var nægt vatn og við
gátum unnið stanslaust í tæpar sjö
klukkustundir, dælurnar stoppuðu
aldrei,“ segir Jóhannes. Bílslysið
vandasama varð síðasta vetur þeg-
ar flutningabíll fór út af þjóðvegin-
um og valt. „Það var kalt og hvasst,
ökumaðurinn var illa fastur; annars
vegar voru fætur hans fastir und-
ir mælaborðinu og hins vegar var
hann fastur á öxl. Að ná mannin-
um út var eins erfitt og hægt er að
hugsa sér,“ segir Jóhannes. Frásögn
af bílslysinu vandasama leiðir um-
ræðuna að fjölda slysa og ástands
vega í sveitarfélaginu. Jóhannes
segir að óvenju oft á undangengnu
sumri hafi slökkviliðsmenn ver-
ið kallaðir til vegna bílslysa á Lax-
árdal og á Skógarströnd. Eins og
greint hefur verið frá í Skessuhorni
voru 14 umferðaróhöpp skráð á
Skógarstrandarvegi frá áramótum
til 15. september. Alls var 21 flutt-
ur til læknis á sjúkrabílum. Síðan
þá hafa orðið fleiri óhöpp og slys,
bæði á Skógarströnd og Laxárdals-
heiði. Til að mynda var slökkvilið-
ið kallað til einu sinni á hvorn stað
í fyrstu viku októbermánaðar. Jó-
hannes kveðst hafa miklar áhyggjur
af ástandi þessara vega. „Slökkvi-
liðið er aðeins kallað til þegar þarf
að beita klippum til að ná fólki úr
bílum. Það er því ekki nema lítið
brot slysa og óhappa sem kemur
inn á borð til okkar.“
Viðbragðstíminn
mjög góður
Rekstur slökkviliða landsins er á
vegum sveitarfélaganna. Jóhannes
áætlar gróflega að rekstur Slökkvi-
liðsins í Dalabyggð kosti um 14 til
15 milljónir króna á ári því þar er
að mörgu að huga. Slökkviliðs-
menn fá að sjálfsögðu greitt fyr-
ir útköll og æfingar og tækjakosti,
búnaði og húsnæði þarf að við-
halda. „Hér áður fyrr fannst manni
stjórnendur sveitarfélaga víða um
land líta á rekstur slökkviliðs sem
útgjaldalið og ekkert annað. Fyr-
ir vikið var eldvörnum víða ábóta-
vant. En mér finnst þetta vera að
breytast, sem betur fer. Stjórnend-
ur sveitarfélaga eru í auknum mæli
farnir að sjá hag í því að hafa öfl-
uga viðbragðsaðila starfandi í sín-
um sveitarfélögum, ekki bara hvað
það kostar á ársgrundvelli,“ segir
hann.
Slys eða bruni getur orðið á öll-
um tímum sólahrings og slökkvi-
liðsmenn geta þurft að hlaupa úr
vinnu. Greiðsla slökkviliðsmanna
fyrir útköll og æfingar er fyrst og
fremst ætlað að mæta tekjutapi auk
þess að vera smávægileg áhættu-
þóknun. „Það verður að umbuna
mönnum fyrir að vera tilbúnir
að stökkva til hvenær sem sólar-
hringsins og ef til vill leggja sjálfa
sig í hættu. En þetta eru ekki stórir
peningar, langt því frá. Menn eru
fyrst og fremst í þessu af áhuga og
skyldurækni, því mönnum finnst
auðvitað að það þurfi að vera gott
slökkvilið á svæðinu,“ segir Jó-
hannes og bætir því við að liðið
sé vel mannað og slökkviliðsmenn
áhugasamir. „Hér er auk þess allt-
af einn maður á vakt um helgar,
slökkvistjóri eða aðstoðarslökk-
vistjóri. Það verður að vera til að
hægt sé að bregðast við með stutt-
um fyrirvara. Viðbragðstíminn er
orðinn mjög góður og menn kunna
orðið vel til verka og geta brugð-
ist við hvers kyns óhöppum hratt
og örugglega,“ segir Jóhannes að
lokum.
kgk/ Ljósm. sm.
Slökkviliðið vel mannað og slökkviliðsmenn áhugasamir
Jóhannes Haukur Hauksson, slökkvi-
liðsstjóri Slökkviliðs Dalabyggðar.
Ljósm. kgk Slökkviliðsmenn úr Dölum beita klippum á samæfingu slökkviliðs og sjúkrateymis.
Hlúð að sjúklingi á samæfingu slökkviliðs og sjúkrateymis. Slökkviliðsmenn berjast við húsbruna á æfingu á Lamba-
stöðum í Laxárdal.