Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 19
Hunda- og kattaeigendur athugið
Hunda- og kattahreinsun fer fram á eftirfarandi dögum í
þjónustumiðstöð Akraness að Laugarbraut 6:
Kattahreinsun verður frá kl. 17:00-21:00, mánudaginn 17. október.
Hundahreinsun verður frá kl. 17:00-21:00, miðvikudaginn 19. október.
Nánari upplýsingar veita dýraeftirlitsmaður í
síma 898-9478 eða dýralæknir í síma 892-3230.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Skapti tók undir það og sagði þol-
mörk ekki síður félagsleg en nátt-
úruleg.
Hrafnhildur benti á að hafa
þyrfti ferðaþjónustu í auknum
mæli í huga við gerð aðalskipu-
lags. Þannig mætti stýra umferð og
koma í veg fyrir að umferð ferða-
manna færi út fyrir þolmörk. Auk
þess taldi hún að líta bæri á upplýs-
ingamiðstöðvar sem hluta af inn-
viðum. Tóku fundarmenn undir
þessa ábendingu hennar og voru
sammála um að stíga þyrfti varlega
til jarðar þegar kemur að félags-
legum og náttúrulegum þolmörk-
um. Byggja þyrfti upp fjölsóttustu
ferðamannastaðin sem fyrst.
Hvatt til
langtímahugsunar
Skapti fékk nokkrar spurningar
þess efnis hvort ekki væri eðlilegt
að hækka virðisaukaskatt á ferða-
þjónustuna, vegna þess að atvinnu-
greinin væri orðin fullburða. Hann
svaraði á þá leið að ferðaþjónust-
an færi nánast öll inn í virðisauka-
skattskerfið. Hins vegar sagði hann
atvinnugreinina enn unga að árum,
ekki langt væri síðan hún hafi ver-
ið aukabúgrein yfir hásumarið,
ekki síst á landsbyggðinni. Ferða-
þjónustan nyti ekki þeirra inn-
viða sem til dæmis sjávarútvegur-
inn nýtur í formi hafnamannvirkja.
Honum var bent á að sjávarútveg-
urinn borgaði sérstakt auðlinda-
gjald en Skapti vísaði þá til þeirr-
ar staðreyndar að sjávarútvegurinn
hefði sannarlega ekki alltaf greitt
slíkt gjald. „Við erum hins vegar
til viðræðna um að borga einhvers
konar auðlindagjald þegar byggðir
hafa verið upp innviðir. Ég vil ekki
vera að hjóla í aðrar atvinnugrein-
ar en við erum bara á allt öðrum
stað en aðrar greinar hvað innviði
varðar. Við skulum tala um auð-
lindagjald eftir tíu til fimmtán ár,“
sagði hann.
Í lokaorðum pallborðsumræð-
unnar notaði Guðjón tækifærið
og hrósaði fólki fyrir þátttökuna
og þeirra störf varðandi ferða-
þjónustu. „Sveitarstjórnarmenn
sem hafa komið að málefnum
ferðaþjónustu hér á svæðinu eru
að mörgu leyti að vinna flottustu
vinnu á landinu,“ sagði hann. Taldi
hann áskoranir í ferðaþjónustu
ákveðið lúxusvandamál því í þeim
feldust gríðarleg tækifæri. Hvatti
hann að lokum til langtímahugs-
unar og taldi innviðaáætlun sem
byrjað væri að vinna gott skref í
því. Hann vísaði til Vegagerðar-
innar, sem nefnd hafði verið fyrr
í umræðum um uppbyggingu
ferðamannastaða. Sagði hann vel
þess virði að athuga að líta til 30
ára verkefnis sem unnið er eftir í
Noregi þar sem Vegagerðin gegn-
ir lykilhlutverki við uppbyggingu
áningarstaða. kgk
Ferðamenn á gangi við Hraunfossa í Borgarfirði. Ljósm. mm.