Skessuhorn - 12.10.2016, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 201620
Um þessar mund-
ir er að koma út
Vísnakver Jóhann-
esar úr Kötlum.
Um er að ræða bók
sem samanstend-
ur af lausavísum
sem Jóhannes orti
við ýmis tækifæri,
stundum í sam-
starfi við aðra og í
nokkrum tilvikum
er um að ræða vís-
ur sem aðrir ortu til
hans. Það er bóka-
útgáfan Griffla
sem gefur út bók-
ina en að útgáf-
unni standa Svan-
ur sonur Jóhannes-
ar og Einar Svans-
son. Svanur hefur í
áratugi séð um út-
gáfu bóka eftir föð-
ur sinn ásamt því
að hafa safnað og
flokkað efni eftir
hann. „Þetta er að
mörgu leyti mjög
merkileg bók og
margir hafa verið að
bíða lengi eftir þessu,“ segir Einar
Svansson hjá Grifflu. „Hugmynd-
in um að safna þessu saman kvikn-
aði hjá pabba mínum, meðal annars
vegna þess að margar af þessum vís-
um eru mjög frægar og hafa verið
munnmælavísur hjá þjóðinni í lang-
an tíma,“ heldur hann áfram.
Saga í kringum
hverja vísu
Líkt og fyrr segir hefur Svanur safn-
að saman efni eftir Jóhannes um
árabil. Eru vísurnar í Vísnakverinu
úr ýmsum áttum og eru að mestu
birtar eftir tímaröð. Fyrstu vísurn-
ar í bókinni orti Jóhannes sem barn
í Dalasýslu. „Þetta byrjaði í raun og
veru á því að við settum inn vísur
inn á vefinn johannes.is. Við höf-
um fengið góð viðbrögð frá fólki
sem hefur haft gaman af því að sjá
þessar vísur. Þær eru úr öllum átt-
um og ortar við ýmis tækifæri.“ Það
var svo um síðustu áramót sem þeir
feðgar fengu þá hugmynd að sækja
um styrk til útgáfu bókarinnar frá
Miðstöð íslenskra bókmennta. „Við
fengum styrkinn og þá var ekki aft-
ur snúið. Við höfum því verið að
safna saman öllu sem við áttum og
pabbi skrifaði texta í kringum vís-
urnar. Það er svolítil saga í kringum
hverja vísu, hvernig hún verður til
og svo framvegis. Það má segja að
þetta sé dálítil endurspeglun á lífs-
hlaupi afa, sem sýnir til að mynda
hvar hann bjó.“
Byrjaði að yrkja
sem barn
Jóhannes úr Kötlum var fæddur að
Goddastöðum í Laxárdal í Dölum
en ólst upp í Ljárskógaseli í sömu
sveit. Hann byrjaði að yrkja tíu til
ellefu ára gamall. „Ég efast um að
nokkuð barn á þessum aldri myndi
geta það í dag. En afi var mikill ís-
lenskumaður og hafði gott vald
á tungumálinu,“ segir Einar. Jó-
hannes fór síðan til náms en varð
farkennari á sínum heimaslóðum
áður en hann fluttist til Reykja-
víkur og seinna til Hveragerðis. Í
Vísnakverinu má finna vísur eftir
Hveragerðisskáldin svo sem Krist-
mann Guðmundsson, sr. Helga
Sveinsson og Kristján frá Djúpa-
læk og fleiri þekkt skáld og hag-
yrðinga.
Í fyrsta sinn á prenti í bók
Vísur í bókinni eru fjölmargar og
flokkaðar í kafla, bæði eftir þema og
tíma. „Við erum sáttir við bókina og
finnst hún hafa heppnast vel. Hún er
vel hönnuð og fer vel í hendi og við
vonumst til að hún geti vakið dálitla
athygli. Forlagið Griffla var stofnað
á síðasta ári og er Vísnakver Jóhann-
esar úr Kötlum þriðja bók útgáfunn-
ar. Áður hafa verið gefnar út ljóða-
bókin Elddropar og hin sívinsæla
vísnabók Jólin koma eftir Jóhann-
es úr Kötlum í enskri þýðingu. Þá
hefur forlagið einnig gefið út skáld-
sögur Jóhannesar á rafrænu formi.
„Vísnabókin verður einungis gefin
út á prenti sem hefðbundin jólabók.
Við verðum með útgáfuhóf í Máli og
menningu á Laugavegi 18, fimmtu-
daginn 10. nóvember næstkomandi.
Vísnakverið er skemmtileg bók með
gamansömum frásögnum og vísum
þar sem frægar persónur koma við
sögu. Margar þeirra eru landsfræg-
ar og hafa gengið manna á milli um
langan tíma en eru núna að koma í
fyrsta sinn á prenti í formlegri bók,“
segir Einar Svansson framkvæmda-
stjóri Grifflu. grþ
Gefa út Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum
Vísnakver Jóhannesar úr Kötlum verður ein af bókunum í
jólabókaflóðinu í ár.
Fyrsta umferð Domino‘s deild-
ar kvenna í körfuknattleik hófst
á miðvikudaginn í síðustu viku.
Sannkallaður Vesturlandsslag-
ur var í Borgarnesi þar sem nýlið-
ar Skallagríms tóku á móti ríkjandi
Íslands- og bikarmeisturum Snæ-
fells. Báðum liðum hefur verið
spáð toppbaráttu í deildinni í vet-
ur og leiksins var beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Áhorfendur fjöl-
menntu á pallana. Varla var autt
sæti í húsinu og mikil stemning og
læti þar sem var sungið og tromm-
að allan leikinn.
Eins og reglur segja til um hófst
leikurinn með uppkasti á miðju-
hring. Dómari blés í flautu sína og
kastaði boltanum upp í loftið. Eitt
augnablik á meðan boltinn sveif í
loftinu datt allt í á dúnalogn en um
leið og fyrsti leikmaður snerti bolt-
ann ætlaði allt um koll að keyra.
Langþráð keppnistímabilið var
hafið og körfuboltaveturinn fram-
undan.
Skallagrímur byrjaði leikinn af
miklum krafti og sigldu Íslands-
meistarana nánast í kaf á fyrstu
mínútum leiksins með öflugum
varnarleik og hröðum sóknum.
Snæfell var lengi að finna taktinn
og sama hvað þær reyndu þá fór
ekkert niður. Allt gekk á afturfót-
unum hjá þeim og á tímabili hefðu
þær ekki getað keypt sér körfu. Á
meðan röðuðu Skallagrímskon-
ur inn stigunum hinum megin og
staðan eftir fyrsta leikhluta 23-7.
En aldrei skyldi afskrifa Snæfells-
konur. Þær þéttu sig heldur betur í
vörninni og gerðu Skallagrímslið-
inu erfitt fyrir. Góður varnarleik-
ur skilaði þeim auðveldum körfum
eftir hraðar sóknir og skotin fóru
að detta. Tókst þeim að minnka
muninn niður í sex stig og staðan
37-31 þegar hálfleiksflautan gall.
Eftir leikhlé var mikið jafnræði
með liðunum og hart barist um
hvern bolta. Um miðjan þriðja
leikhluta tóku Skallagrímskonur
hins vegar að síga fram úr á nýjan
leik en Snæfellskonur voru hvergi
nærri hættar. Þær áttu mjög góðan
kafla í upphafi lokaleikhlutans og
tókst að minnka muninn í tvö stig
þegar sex mínútur lifðu leiks. Nær
komust þær hins vegar ekki því
Skallagrímur skoraði góðar körfur
og sigldi að lokum sigrinum heim.
Lokatölur í Borgarnesi því 73-62
í mjög kaflaskiptum en spennandi
og skemmtilegum körfuboltaleik.
Tavelyn fór á kostum
Tavelyn Tillman fór á kostum í
leiknum og skoraði hvorki fleiri
né færri en 38 af 73 stigum Skalla-
gríms og tók níu fráköst að auki.
Hún skaut afar vel utan af velli, hitti
úr 70% þriggja stiga skota sinna og
60% alls. Þar að auki rötuðu öll sjö
vítaskot hennar rétta leið.
Næst henni kom Ragnheið-
ur Benónísdóttir með tólf stig og
níu fráköst og þá skoraði Sigrún
Ámundadóttir átta stig, reif niður
14 fráköst og gaf fimm stoðsend-
ingar.
Stigahæst í liði Snæfells var Tay-
lor Brown með 19 stig, fjögur frá-
köst og fimm stolna
bolta. Næst henni
kom Gunnhild-
ur Gunnarsdótt-
ir með 13 stig, sjö
stoðsendingar, sex
stolna bolta og fjög-
ur fráköst og Helga
Hjördís Björgvins-
dóttir skoraði ell-
efu stig og tók sex
fráköst.
Það er stíf dag-
skrá fyrstu vikur Ís-
landsmótsins. Bæði
liðin hafa leikið
síðan Vesturlands-
slagurinn fór fram.
Greint er frá þeim
leikjum liðanna
á íþróttasíðum í
Skessuhorni vik-
unnar. kgk
Skallagrímur sigraði Snæfell í Vesturlandsslagnum
Tavelyn Tillman skorar tvö af 38 stigum sínum í leiknum. Taylor Brown ber upp boltann fyrir Snæfell en Sólrún Sæmundsdóttir er til varnar.
Hugrún Eva Valdimarsdóttir skorar fyrir Snæfell. Áhorfendur fjölmenntu á leikinn, húsið var troðfullt og mikil stemning á pöll-
unum.
Skallagrímskonur fögnuðu að leikslokum og þökkuðu áhorfendum veittan stuðning.