Skessuhorn - 12.10.2016, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 21
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Kjörskrá vegna alþingiskosninga 29. október 2016
Kosningar til Alþingis fara fram 29. október næstkomandi. Kjörskrá á
Akranesi hefur nú verið lögð fram og samþykkt. Alls hafa 2521 karlar
og 2461 konur, eða alls 4982 einstaklingar rétt samkvæmt henni
til að kjósa hér á Akranesi. Á kjörskrá eru þeir sem tilkynnt hafa
lögheimilisflutning fyrir 24. september síðastliðinn.
Kjörskráin liggur frammi í þjónustuveri Akraneskaupstaðar, Stillholti
16-18, 1. hæð, frá og með 12. október næstkomandi og er þar opin
almenningi til sýnis á almennum skrifstofutíma fram til kjördags.
Þeim sem vilja koma athugasemdum á framfæri vegna kjörskrár er
bent á að snúa sér til sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs.
Athygli er vakin á því að sveitarstjórn getur allt til
kjördags gert leiðréttingar á kjörskrá ef við á.
Jákvæðni, metnaður og víðsýniwww.akranes.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Krabbameinsfélag Akraness og nágrennis, í samstarfi
við Akraneskaupstað, ætla að mála bæinn bleikan
fimmtudaginn 13. október næstkomandi.
Bleik stuðningsganga fer frá stjórnsýsluhúsi bæjarins
(Stillholti 16-18) kl. 18.00 og gengið verður niður að
Akratorgi þar sem stutt dagskrá með tónlistaratriðum,
heitu kakói og happadrætti tekur við.
Ekki láta þennan viðburð framhjá þér fara!
Dagskrá mun birtast á facebooksíðu
Krabbameinsfélagsins og á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is.
Fimmtudaginn 13. október
málum við bæinn bleikan
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Verkstæðisformaður
Þörungaverksmiðjan hf.
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum sækir
þang- og þara í Breiðafjörðinn og framleiðir mjöl
af háum gæðum. Nýting sjávargróðurs er vottuð
sem sjálfbær og vinnsla og afurðir eru lífrænt
vottaðar. Ársverk eru um 20 í verksmiðju og á
skipi félagsins auk verktaka á sláttarprömmum
þess. Ársvelta er um 500 milljónir kr. Afurðir
eru að langmestu leyti fluttar út og m.a.
nýttar til framleiðslu fóðurbætis, áburðar og
snyrtivara auk alginats sem notað er í matvæla-
og lyfjaframleiðslu. Þörungaverksmiðjan er að
stærstum hluta í eigu FMC Health and Nutrition
(71%) og Byggðastofnunar (28%). Rekstur
Þörungaverksmiðjunnar hefur gengið vel og er
fyrirhugað að efla hann frekar á komandi árum.
Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð. Þar er m.a.
grunnskóli, leikskóli, heilsugæsla, dvalarheimili,
verslun, sundlaug, bókasafn og önnur þjónusta.
Nánari upplýsingar veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Helga Rún Runólfsdóttir (helga@intellecta.is).
Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Henni þarf að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsóknarfrestur er til og með
24. október 2016. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað.
Menntunar- og hæfniskröfurHelstu verkefni
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða verkstæðisformann. Hann hefur
yfirumsjón með eftirliti og viðhaldi á sláttarprömmum, vélum og búnaði verksmiðjunnar.
Verkstæðisformaður tekur þátt í áætlunum og undirbúningi við breytingar og endurbætur
verksmiðju, tækjabúnaðar og verkstæðis. Hann gegnir mikilvægu hlutverki varðandi kröfur um
öryggi og umhverfismál.
Í boði er áhugavert og krefjandi starf í fallegu umhverfi Reykhóla ásamt góðum kjörum.
Intellecta Síðumúla 5, 108 Reykjavík, sími 511 1225.
Nemendur í 4. bekk Grunnskóla
Snæfellsbæjar á Hellissandi nýttu
sér góða veðrið í lok september til
að sinna haustverkum en í vor settu
þau niður kartöflur í matjurtargarð
skólans. Verkefnið er hluti af átt-
hagafræðinámi skólans en þau létu
kartöflurnar spíra í vor og með að-
stoð kennara og starfsfólks stungu
þau upp garðinn og settu kartöfl-
urnar niður. Þegar svo kom að því
að taka kartöflurnar upp létu þau
sitt ekki eftir liggja og voru dug-
leg. Uppskeran var svo þvegin og
kartöflurnar þurrkaður áður en
þær voru vigtaðar. Var uppsker-
an að þessu sinni rúmlega fjörutíu
kíló af gómsætum kartöflum sem
Fúsi matráður hefur soðið undan-
farið með matnum í skólanum. Á
myndinni eru nemendur nýbúin að
vigta uppskeruna og heldur betur
ánægðir með árangurinn.
þa
Stoltir nemendur með fjörutíu kílóa uppskeru
Í lok síðasta mánðar tóku þeir Bjart-
ur Bjarmi Barkarson og Atli Ágúst
Hermannsson af Snæfellsnesi þátt í
hæfileikamótun KSÍ. Nú um síðustu
mánaðamót fór svo fram í Kórnum
í Kópavogi Hæfileikamótun KSÍ
og N1 stúlkna. Líkt og áður fór
mótið fram undir stjórn Halldórs
Björnssonar en hann hefur undan-
farið ferðast um landið með hæfi-
leikamótun. Að þessu sinni tóku
þátt tvær ungar og efnilegar stúlk-
ur úr Snæfellsbæ, þær Aníta Ólafs-
dóttir og Birgitta Sól Vilbergsdótt-
ir. Stóðu þær sig mjög vel og nutu
helgarinnar við æfingar og fræðslu.
þa
Tóku þátt
í hæfileika-
mótun KSÍ