Skessuhorn - 12.10.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 23
Frambjóðendur til forseta svara spurningum Skessuhorns
Oddviti Dögunar kallar eftir sanngjarnara samfélagi
G. Valdimar Valdemarsson skip-
ar oddvitasæti Bjartrar framtíð-
ar í Norðvesturkjördæmi fyrir
komandi kosningar. „Ég er fædd-
ur og uppalinn á Skagaströnd og
er kvæntur Sigurlínu H. Stein-
arsdóttur frá Borgarnesi. Saman
eigum við eina dóttur en Sigur-
lína átti tvær fyrir. Nú erum við
orðin afi og amma og að rifna úr
stolti,“ segir G. Valdimar í samtali
við Skessuhorn. Hann starfar við
hugbúnaðargerð og hefur starf-
rækt eigið fyrirtæki frá árinu 1991.
G. Valdimar fékk snemma áhuga á
stjórnmálum. Hann gekk í Fram-
sóknarflokkinn þegar hann útskrif-
aðist úr Samvinnuskólanum á Bif-
röst 1982 og var þar virkur félagi í
29 ár. „Ég og Framsóknarflokkur-
inn þroskuðumst síðan í sitthvora
áttina og 2011 var svo komið að ég
ákvað að standa frekar með sjálf-
um mér og mínum skoðunum en
að halda áfram í flokknum. Ég tók
þátt í að undirbúa stofnun Bjartr-
ar framtíðar og tók sæti í fram-
kvæmdastjórn flokksins sem ritari
og hef setið þar frá stofnun flokks-
ins,“ útskýrir hann.
Hjartað slær í
kjördæminu
G. Valdimar er búsettur á höf-
uðborgarsvæðinu en hjónin eru
með smá búskap ásamt öðrum
í fjölskyldu Sigurlínu í Straum-
firði á Mýrum. „Þar erum við með
nokkrar kindur, hesta og æðarvarp.
Þar eyði ég mest öllum mínum frí-
stundum þegar ég er ekki að vasast
í pólitík, en það er líka tímafrekt
áhugamál. Ég hef stundum grín-
ast með það að ég sef 2-3 nætur í
hverri viku í kjördæminu þó ég sé
búsettur á höfuðborgarsvæðinu.“
Hann segir hjarta sitt ávallt hafa
slegið í NV-kjördæmi, þar sem
hann hefur varið stærstum hluta
ævinnar. „Hagsmunir kjördæm-
isins og landsbyggðarinnar allrar
brenna almennt á mér og eru mér
hjartfólgin. Mér finnst skorta rödd
sem vill líta meira almennt á stöðu
landsbyggðarinnar og taka hags-
muni landsbyggðarinnar inn í alla
ákvarðanatöku stjórnvalda á annan
og meiri hátt heldur en hefur ver-
ið gert. Ég tel mikilvægt að draga
úr aðstöðumun fólks og tel að jafn
aðgangur að grunnþjónustu eins
og heilsugæslu og menntun, ásamt
uppbyggingu innviða eins og sam-
gangna, dreifingu rafmagns og
fjarskipta, sé forsenda fyrir blóm-
legri byggð.“
Vilja einfaldara
skattkerfi
Að sögn G. Valdimars leggur Björt
framtíð áherslu á bætt vinnu-
brögð við stefnumótun og ákvarð-
anatöku í samfélaginu, þar sem
áhersla er lögð á langtímahugsun.
„Við tileinkum okkur hugmynda-
fræði þjónandi forystu þar sem
við teljum að stjórnmálin eigi að
snúast um að þjóna samfélaginu
og fólkinu í landinu,“ segir hann.
Aðspurður um helstu áherslumál
flokksins fyrir komandi kosning-
ar segir hann að flokkurinn vilji
til að mynda einfaldara skattkerfi,
þar sem allir sitji við sama borð
og greiði sambærilega skatta og
beri sömu skyldur í samfélaginu.
„Skattaumhverfið stendur litlum
fyrirtækjum fyrir þrifum og að
þau vaxi og dafni. Við teljum að
sérstakar skattaívilnanir skekki
samkeppnisstöðu fyrirtækja og
hækki skatta á þau fyrirtæki sem
ekki njóta þeirra. Þessu viljum
við breyta, fækka undanþágum og
ívilnunum og lækka frekar skatta á
öll fyrirtæki. Lægri skattar á fyrir-
tæki gera þau betur í stakk búin að
greiða hærri laun. Við teljum líka
að það séu tækifæri til að endur-
skoða skatta á einstaklinga, fækka
undanþágum og einfalda kerfið
og í framhaldinu lækka skatta al-
mennt. Við fögnum tillögum sam-
ráðsvettangs um aukna hagsæld í
skattamálum og teljum þær mik-
ið framfaraspor.“ Þá segir hann
flokkinn vilja leggja aukna áherslu
á menntamál enda sé fjárfesting í
menntun grundvöllur að sókn í at-
vinnulífinu. Hann segir framlög
til menntamála á Íslandi fyrir neð-
an meðaltal OECD ríkja og langt
að baki þeim þjóðum sem Ísland
ber sig helst við. „Þessu viljum
við breyta og tryggja að íslenskt
skólakerfi sé samkeppnishæft og
að ungt fólk sjái sína framtíð í að
mennta sig og búa á Íslandi. Við
viljum auka rannsóknir, styrkja og
byggja upp rannsóknasetur há-
skólanna um allt land og teljum
að það sé góð leið til að auka at-
vinnuframboð og skapa fjölbreytt-
ari störf og laða fram styrkleika
einstakra landshluta.“
Góður búvöru-
samningur mikilvægur
G. Valdimar nefnir fleiri stefnu-
mál Bjartrar framtíðar. Hann segir
flokkinn vilja leysa húsnæðisvanda
ungs fólks með því að lækka fjár-
magnskostnað á Íslandi. „Banka-
kerfið er að stærstum hluta í eigu
ríkisins og nú er einstakt tækifæri
til að endurskipuleggja bankana,
draga úr áhættusókn þeirra, lækka
kostnað, minnka efnahaginn og
auka samkeppni. Þessu viljum
við beita okkur fyrir áður en rætt
er um sölu bankanna eða aðrar
breytingar á eignarhaldi þeirra.“
Þá vill flokkurinn uppboð afla-
heimilda. „En við teljum það vera
langtímaverkefni sem ekki mun
koma að fullu til framkvæmda á
einu kjörtímabili. Afkoma sjáv-
arútvegsins á hverjum tíma mun
þannig hafa mest að segja um
hvað greitt er fyrir aðgang að auð-
lindinni. Við erum ekki spámenn
og teljum óábyrgt að eyða fyrir-
fram í loforð einhverjum arði sem
enginn veit hver verður,“ útskýr-
ir hann. Þá vill Björt framtíð að
opinberum fjármunum sé varið
betur og telur mikilvægt að gera
góðan búvörusamning við bænd-
ur þar sem lögð er aukin áhersla
á byggðasjónarmið, fjölbreytni og
tækifæri bænda til frekari nýsköp-
unar og fullvinnslu sinna afurða.
„Við teljum að mikilvægt hlut-
verk bænda við að uppfylla mark-
mið stjórnvalda í loftslagsmálum
sé skilgreint og í því felist mikil
tækifæri fyrir íslenskan landbún-
að. Eins viljum við breikka skatt-
stofn kolefnisgjalds og að þeir sem
menga greiði þannig fyrir nauð-
synlegar mótvægisaðgerðir m.a.
við endurheimt votlendis og upp-
græðslu.“
Vill sjá byggðamála-
ráðherra
Byggðamálin eru G. Valdimar
hugleikin. Hann segir flokkinn
vilja að byggðamál fái meiri at-
hygli í stjórnsýslunni og séu tekin
með í meira mæli í alla stefnumót-
un og ákvarðanatöku. Sjálfur telur
hann að byggðamálum sé gert of
lágt undir höfði í stjórnsýslunni.
„Ég persónulega myndi vilja sjá
stjórnvöld koma á fót ráðuneyti
byggðamála sem vinnur þvert á
málaflokka og tryggi þannig betri
ákvarðanatöku og heildstæðari
stefnumótun með hagsmuni alls
landsins að leiðarljósi. Við höfum
í raun aldrei haft alvöru byggða-
stefnu á Íslandi. Hér er hún rek-
in í gegnum aðra málaflokka, svo
sem landbúnað og sjávarútveg eins
og atvinnugreinar eigi að leysa
byggðamálin. Við horfum aldrei
á þau heilsteypt.“ Þá segist hann
vilja beita sér í því að auka traust
milli landsbyggðarinnar og höfuð-
borgarsvæðisins. „Ég held að það
það vantraust sem er núna og end-
urspeglast til dæmis þegar verið
er að ræða sjálfsagða hluti eins og
jöfnun atkvæðisréttar, sé ekki til-
komið af ástæðulausu.“
Markmið að
ná manni inn
Líkt og fyrr segir skipar G. Valdi-
mar fyrsta sæti lista Bjartrar fram-
tíðar í NV-kjördæmi. Kristín Sig-
urgeirsdóttir, skólaritari og MLM
nemandi í forystu og stjórnun, er í
öðru sæti en Ásthildur Ósk Ragn-
arsdóttir, skólaliði og handverks-
kona, skipar þriðja sæti listans.
Oddvitinn segir flokkinn telja
möguleika á að ná inn þingmanni í
kjördæminu. Hann segir það mik-
ilvægt að í hverjum þingflokki á
Alþingi séu fulltrúar allra sjónar-
miða og því mikilvægt að lands-
byggðarkjördæmi eins og NV-
kjördæmi eigi þar fulltrúa. „Það
er því höfuðmarkmið okkar í NV-
kjördæmi að fá mann kjörinn á
þing til þess að vera í sambandi
við fólkið í kjördæminu, hlusta,
læra og skilja hvaða mál brenna á
fólkinu og hvernig við gerum gott
samfélag ennþá betra.“
grþ
G. Valdimar Valdemarsson skipar fyrsta sæti á lista Bjartrar framtíðar í Norðvesturkjördæmi.
Pennagrein
„Hvers vegna
fara nú allir á
Alþingi að tala
um landsbyggðarmál svona rétt
fyrir kosningar og telja svo núna
upp allt sem þarf að gera,“ spurði
glöggur 16 ára bróðursonur minn.
Þessi frændi minn fær ekki að kjósa
í þessum kosningum en fylgist þó
betur með stjórnmálaumræðunni
en margir sem hafa náð kosninga-
aldri. Hann bætti síðan við: „Hvers
vegna er þá ekki búið að gera neitt
af þessu á kjörtímabilinu? Eru
byggðamál eitthvað sem gleymdist
að tala um á Alþingi nema rétt fyr-
ir kosningar og svo búið?“
Ég get ekki annað sagt en að ég
væri sammála þessum unga frænda
mínum. Ég benti honum þó að
Vinstri græn hefðu að vísu ekki
verið í stjórn á síðasta kjörtímabili
– og það dugi lítt að tala í þing-
sal þar sem valdið til framkvæmda
liggur hjá ráðherrum og ríkisstjórn
að miklu leyti.
VG hefur frá upphafi beitt sér
verið mjög í byggðamálum og átt
sterka landsbyggðarþingmenn.
Baráttumálin er skýr: Vegirnir,
einbreiðu brýrnar, heilbrigðismál-
in, menntamálin, náttúrvernd, at-
vinnumálin, kjör aldraðra á lands-
byggðinni, jöfnun lífskjara óháð
búsetu. Þetta eru mín baráttu mál
eins og fólk þekkir.
Vinsæl og öflugur
leiðtogi
Formaður flokksins, Katrín Jak-
obsdóttir, nýtur virðingar og
trausts langt út fyrir raðir flokks-
félaga VG. Sterk staða Katrínar
kom glögglega í ljós við umræð-
ur manna meðal annars fyrir for-
setakosningarnar í sumar þar sem
fjöldi fólks skoraði á hana í fram-
boð. Ég held að það megi fullyrða
að hún sé sá stjórnamálaforingi
íslenskur sem flestir landsmenn
treysta og vilja sjá sem forsætis-
ráðherra ef miðað er við skoðana-
kannanir.
Allt fellur þetta að sama ósi.
Vinstrihreyfingin grænt framboð
er í kjöraðstöðu til þess að verða
leiðandi aðili í næstu ríkisstjórn.
Hagsmunir hinna dreifðu byggða
er því eitthvað sem við höfum
ávallt lagt áherslu en stundum, því
miður, fyrir daufum eyrum. Það
eru jú verkin sem tala. Forystu-
fólk okkar nýtur einnig trausts og
þjóðin vill sjá það við stjórnvölinn
í landsmálum. Við þurfum félags-
hyggjustjórn sem er aðeins mögu-
leg með VG sem forystuafl.
Baráttusætið í augsýn
Við í VG í þessu kjördæmi eig-
um góða möguleika á tveimur al-
þingismönnum. Ég skipa baráttu-
sætið og hef verið félagi í VG frá
stofnun, í forystu á vettvangi sveit-
arstjórna og landshlutasamtaka,
farið víða um og þekki því vel til
mála. Kjördæmið þarf á öflugum
talsmanni að halda sem þekkir vel
aðstæður. Með góðum stuðningi
kjósenda er baráttusætið í augsýn.
Bjarni Jónsson.
Höf. skipar 2. sætið á lista VG í
Norðvesturkjördæmi.
VG í sókn - baráttu-
sætið í augsýn
KOSNINGAR2016
„Skattaumhverfið stendur litlum fyrirtækjum fyrir þrifum“
- segir G. Valdimar Valdemarsson oddviti Bjartrar framtíðar í NV-kjördæmi