Skessuhorn - 12.10.2016, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 12. OKTÓBER 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Eftir 17 stiga tap gegn FSu í fyrsta
leik var komið að fyrsta heima-
leik ÍA í 1. deild karla í körfuknatt-
leik. Hann fór fram á sunnudags-
kvöld þegar Skagamenn tóku á móti
Hamri frá Hveragerði, en gest-
irnir voru að spila sinn fyrsta leik
á tímabilinu. Veikindi hrjáðu hóp
ÍA og nokkrir leikmenn fjarri góðu
gamni af þeim sökum. Eftir jafnan
fyrri hálfleik tóku gestirnir öll völd
á vellinum og unnu að lokum stórt,
83-110.
Skagamenn byrjuðu af krafti og
höfðu yfirhöndina í fyrsta leikhluta
en gestirnir voru aldrei langt undan.
ÍA fór með þriggja stiga forskot inn í
annan fjórðunginn áður en Hamars-
menn komust yfir. Skagamenn héldu
í við þá en góður sprettur gestanna
undir lok fyrri hálfleiks skilaði þeim
ellefu stiga forskoti í leikhléi, 32-43.
Gestirnir byrjuðu vel í síðari hálf-
leik og tóku stjórn leiksins í sín-
ar hendur. Þeir juku forskot sitt og
leiddu með 15 stigum fyrir loka-
fjórðunginn og róðurinn orðinn
þungur fyrir ÍA. Hamarsmenn léku
á als oddi í fjórða leikhluta, skor-
uðu í honum 34 stig og stungu
af. Skagamenn áttu engin svör og
máttu að lokum sætta sig við stórt
tap, 83-110.
Derek Shouse var stigahæstur
Skagamanna í leiknum með 28 stig.
Næstur honum kom Fannar Freyr
Helgason með 24 stig og þá Björn
Steinar Brynjólfsson með 20 stig.
Skagamenn hafa því tapað fyrstu
tveimur leikjum vetrarins. Þeir leika
næst fimmtudaginn 20. október
þegar þeir leggja land undir fót og
mæta Hetti austur á Egilstöðum.
kgk
Erfið byrjun Skagamanna
í deildinni
Fannar Freyr Helgason í mikilli baráttu
í leiknum gegn Hamri á sunnudag.
Ljósm. jho.
Fotbolti.net greinir frá því að
Hrovje Tokic, króatíski sóknarmað-
ur Víkings Ólafsvíkur, muni ekki
spila með liðinu á næstu leiktíð.
Jónas Gestur Jónasson formaður
Víkings staðfestir þetta. Ejub þjálf-
ari hefur jafnframt sagt að mikilla
breytinga sé að vænta á Víkingslið-
inu fyrir næstu leiktíð. Tokic skor-
aði 9 mörk með liðinu í sumar og
var þriðji markahæsti maður deild-
arinnar, en átta af þeim mörkum
skoraði hann á fyrri helmingi móts-
ins, þegar allt lék í lyndi hjá liðinu.
Markahæstur í sumar var Skaga-
maðurinn Garðar Gunnlaugsson
með 14 mörk og Kristinn Freyr
Sigurðsson í Val skoraði 13. Eins og
kunnugt er slapp Víkingur Ólafsvík
naumlega við fall og spilar áfram í
Pepsídeildinni næsta sumar.
mm
Tokic hættir með Víkingi
Hér er Tokic á lokahófi Víkings.
Ljósm. þa.
Keppni í Domino‘s deild karla í körfu-
knattleik hófst síðastliðinn fimmtu-
dag með tveimur leikjum. Snæfell
heimsótti ÍR í Breiðholti. Hólmarar
riðu ekki feitum hesti frá þeirri viður-
eign. ÍR-ingar voru sterkari meira og
minna allan leikinn og ungt lið Snæ-
fells náði aldrei að gera neina alvöru
atlögu að forystunni. Að lokum fór
svo að ÍR-ingar sigruðu stórt, 96-65.
Snæfell réði hraða leiksins fyrst
um sinn og jafnt var á með liðunum
í fyrsta leikhluta. Eftir það fundu ÍR-
ingar fjölina sína og tóku öll völd á
vellinum. Þeir bættu hægt og rólega
við forskot sitt í og leiddu í hálfleik,
50-37.
Munurinn breyttist lítið sem ekk-
ert í þriðja leikhluta. Snæfelli tókst
ekki að gera atlögu að heimamönn-
um sem héldu alltaf 12 til 15 stiga
forskoti. ÍR-ingar bættu svo í allan
lokafjórðunginn og stigamunurinn
varð smám saman meiri og meiri. Að
lokum fór svo að ÍR-ingar sigruðu
með 31 stigi, 96-65.
Sefton Barrett var atkvæðamestur
Snæfells í leiknum með 27 stig og 14
fráköst. Næstur honum kom Viktor
Marinó Alexandersson með 14 stig
en aðrir höfðu minna.
Fyrsti heimaleikur Snæfells fer
fram á morgun, fimmtudaginn 13.
október, þegar Njarðvíkingar sækja
Hólminn heim. kgk
Ungt lið Snæfells tapaði
stórt í fyrsta leik
Sefton Barrett treður í leiknum gegn ÍR.
Ljósm. fengin af facebook
síðu Karfan.is.
Eftir góðan sigur á Snæfelli í fyrsta
tímabilsins í Domino‘s deild kvenna
heimsótti Skallagrímur lið Stjörn-
unnar á laugardaginn. Leikurinn var
fremur jafn en Stjarnan var ívið sterk-
ari lungann úr leiknum og sigraði að
lokum með ellefu stigum, 86-75, eft-
ir æsispennandi lokafjórðung.
Skallagrímskonur byrjuðu betur
og leiddu leikinn framan af fyrsta
leikhluta. Stjarnan tók nokkrar mín-
útur í að komast í gang en sóttu að
Skallagrími og tóku forystuna á loka-
mínútu upphafsfjórðungsins. Þær
bættu í um miðjan annan leikhluta en
Borgnesingar svöruðu og minnkuðu
muninn í fjögur stig áður en flautað
var til hálfleiks og útlit fyrir jafnan og
spennandi síðari hálfleik.
Sú varð einmitt raunin. Stjarnan
byrjaði betur eftir hléið en Skalla-
grímskonur voru aldrei langt und-
an. Þær fikruðu sig nær og nær og
komust loks yfir snemma í lokafjórð-
ungnum. Upphófust þá æsispenn-
andi lokamínútur. Skallagrímskon-
ur höfðu yfirhöndina, leiddu með
tveimur til þremur stigum og leikur-
inn galopinn. Leikmenn Stjörnunn-
ar höfðu verið ískaldir utan þriggja
stiga línunar allan leikinn en hrukku
skyndilega í gang þegar fimm mín-
útur voru eftir og settu tvo gríðar-
lega mikilvæga þrista og náðu foryst-
unni á nýjan leik. Lagði það grunn að
sigri þeirra í leiknum því Skallagrím-
ur náði ekki að svara. Stjarnan bætti
lítillega í síðustu mínúturnar sigraði
með ellefu stigum, 86-75.
Tavelyn Tillman var stigahæst
Skallagrímskvenna með 28 stig og
fimm stolna bolta að auki. Sigrún
Ámundadóttir var ekki langt undan í
stigaskorun. Hún setti 26 stig og tók
tíu fráköst.
Skallagrímur hefur því einn sigur
og eitt tap úr fyrstu tveimur leikjum
deildarinnar. Næsti leikur Skalla-
gríms fer fram í kvöld, miðvikudag-
inn 12. október þegar liðið tekur á
móti Grindvíkingum í Borgarnesi.
kgk
Þurftu að játa sig sigraðar
eftir spennandi lokamínútur
Sigrún Ámundadóttir lætur vaða í fyrsta leik vetrarins gegn Snæfelli. Hún lék
einnig vel gegn Stjörnunni á laugardag en það dugði ekki til.
Eftir tap gegn nágrönnum sínum í
Skallagrími í fyrsta leik Domino‘s
deildar kvenna var komið að fyrsta
heimaleik Íslandsmeistara Snæfells á
sunnudag. Gestirnir voru Njarðvík-
ingar, en liðunum er spáð mjög mis-
jöfnu gengi í deildinni í vetur; Snæ-
felli efsta sætinu en Njarðvíkingum
því neðsta. Í leiknum á sunnudag
sást greinilega hví spámennirnir röð-
uðu liðunum á sitt hvorn enda deild-
arinnar. Snæfell réði ferðinni allan
leikinn og vann mjög sannfærandi
sigur, 84-59.
Gestirnir úr Njarðvík áttu mjög
erfitt uppdráttar á fyrstu mínútum
leiksins gegn sterkum og vel skipu-
lögðum varnarleik Snæfellskvenna.
Þær lokuðu á allar aðgerðir gestanna
sem skoruðu aðeins fjögur stig fyrstu
tíu mínútur leiksins. Á meðan skor-
uðu Íslandsmeistararnir 17 stig og
lögðu grunn að öruggum sigri strax
í fyrsta leikhluta. Munurinn átti að-
eins eftir að aukast eftir því sem leið
á. Gestirnir tóku þó aðeins við sér
undir lok fyrri hálfleiks en það hafði
lítið að segja, Snæfell leiddi með 21
stigi í hálfleik, 43-22.
Snæfellskonur komu til síðari
hálfleiks með unninn leik í hönd-
unum en slógu aldrei af. Þær héldu
20 stiga mun og rúmlega það allt til
loka. Yngri og mínútufærri leikmenn
Snæfells sýndu áræðni í leik sínum
og skiluðu góðu framlagi. Liðsheild-
in hefur lengi verið aðalsmerki Snæ-
fellsliðsins og leikurinn á sunnudag
gaf vísbendingu um að engin breyt-
ing hefði orðið þar á. Það var sama
hver var á vellinum, allir skiluðu sínu
og gestirnir áttu aldrei séns. Að lok-
um fór svo að Snæfell vann mjög
sannfærandi 25 stiga sigur, 84-59.
Alls komust ellefu af þrettán leik-
mönnum Snæfells á blað í stigaskor-
un liðsins. Flest stig skoraði Taylor
Brown, eða 27 talsins. Hún tók auk
þess fimm fráköst og gaf fimm stoð-
sendingar. Berglind Gunnarsdótt-
ir kom henni næst með 14 stig og
Gunnhildur Gunnarsdóttir skoraði
átta stig, gaf sjö stoðsendingar og tók
sex fráköst.
Snæfell hefur því sigrað annan af
tveimur fyrstu leikjum tímabilsins.
Síðast lék Snæfell í gær, þriðjudag-
inn 11. október, þegar liðið heim-
sótti Val. Leikurinn var hins vegar
ekki hafinn þegar Skessuhorn fór í
prentun.
kgk
Framherjinn Sveinn Arnar Davíðs-
son lék með Snæfelli þegar liðið tap-
aði fyrir ÍR í fyrsta leik liðsins í Dom-
ino‘s deild karla á fimmtudag. Síðasta
haust ætlaði hann að segja skilið við
úrvalsdeildarkörfubolta sökum anna.
Hann lék þó tvo leiki með Snæfelli í
fyrra en þess á milli með liði Grund-
firðinga í 3. deildinni. Í samtali við
Skessuhorn segir Sveinn Arnar að
hann hyggist klæðast Snæfellstreyj-
unni í vetur. Endurkoma hans í efstu
deild sé því komin til að vera. „Ég
ætla að reyna að vera með eins mikið
og ég get,“ segir Sveinn Arnar.
Hann segist nánast hafa tapað
áhuganum á körfubolta fyrir ekki
löngu síðan en að sá áhugi hafi kvikn-
að að nýju síðasta vetur. „Það var
mjög gaman að spila með Grundar-
firði síðasta vetur, mjög góður hóp-
ur. Ég fann, eftir að hafa spilað þar
í fyrra og þessa tvo leiki með Snæ-
felli, að ég gæti ennþá spilað körfu-
bolta og þá fann ég aftur áhugann,“
segir hann. „Það verður gaman að fá
að nýta það sem ég kann til að hjálpa
ungu liði Snæfells í vetur,“ segir hann
að lokum.
Ungir leikmenn Snæfells njóta
því góðs af að geta leitað í reynslu-
banka Sveins Arnars á komandi vetri
því hann hefur ýmislegt reynt á sín-
um ferli. Hann er fæddur árið 1986,
uppalinn hjá Snæfelli og hefur leikið
með liðinu lungann úr sínum körfu-
knattleiksferli. Varð meðal annars Ís-
landsmeistari með Stykkishólmslið-
inu árið 2010. kgk
Sveinn Arnar klæðist Snæfellstreyjunni í vetur
Snæfell vann sannfærandi sigur á Njarðvík
Ellefu leikmenn Snæfells skoruðu stig
í leiknum og er fáheyrt að svo margir
komist á blað. Atkvæðamest var Taylor
Brown, sem hér skorar þrjú af 27
stigum sínum. Ljósm. sá.
Sveinn Arnar skorar í leik með
Snæfelli árið 2015. Ljósm. úr safni.