Skessuhorn - 26.10.2016, Page 1
Síðastliðinn mánudag efndu kon-
ur víða um land til samstöðufunda í
tilefni af kvennafrídeginum. Krafan
er skýr; jöfn laun fyrir sömu vinnu,
óháð kyni. Dagurinn var upphaflega
haldinn hátíðlegur 24. október árið
1975 en hefur nú fimm sinnum eftir
það verið nýttur til að benda á rétt-
indamál kvenna. Nú hafa mælingar
sýnt að með óbreyttri þróun launa
milli kynja muni það taka yfir fimm-
tíu ár að konur fái greidd sömu laun
og karlar fyrir vinnu sína. Að þessu
sinni lögðu konur niður störf klukk-
an 14:38, eða á þeirri mínútu sem
þær hætta að meðaltali að fá laun á
við karla. Árið 2010 var vinna stöðv-
uð klukkan 14:25, þannig að ekki
hefur mikið áunnist í réttindabarátt-
unni á þessum sex árum. Kvennafrí-
dagurinn verður því áfram, örugg-
lega þar til fullnaðarsigri verður náð.
mm
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 19. árg. 26. október 2016 - kr. 750 í lausasölu
Hugmyndin með EVE Online var að
búa til leik sem margir gætu spilað
á sama tíma. Nú erum við aftur á
barmi byltingar.
Búðu þig undir
spennandi framtíð
Ferðin frá hugmynd að farsælu fyrirtæki með skýra
framtíðarsýn kallar á öflugan samstarfsaðila.
Pantaðu viðtal við fyrirtækjaráðgjafa á
arionbanki.is/fyrirtaeki eða í síma ��� ����
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
6-
28
39
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
20%
afsláttur
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Vökudagar
á Akranesi
27. okt. – 6. nóv.
Tilviljun réði því að bræðurn-
ir Sigurður og Kristján Guð-
mundssynir frá Hvanneyri eign-
uðust báðir barn á sjúkrahúsinu
á Akranesi síðastliðinn mánudag.
Á sunnudagskvöldið snæddu þeir
kvöldverð hjá foreldrum sínum,
ásamt barnsmæðrum sínum og
þegar þeir kvöddust þá um kvöld-
ið áttu þeir ekki von á því að lenda
saman á fæðingadeildinni. Þó var
vitað að annað barnið væri á leið-
inni þar sem Eydís Smáradóttir,
kona Kristjáns, var bókuð í keis-
araskurð daginn eftir. Settur dag-
ur hjá Aldísi Örnu Tryggvadóttur
konu Sigurðar var hins vegar ekki
fyrr en í nóvembermánuði. Hlut-
irnir fóru þó öðruvísi en ætlað
var og kom barn Aldísar Örnu og
Sigurðar í heiminn á undan barni
Kristjáns og Eydísar, eftir að Aldís
Arna missti legvatnið klukkan þrjú
aðfaranótt mánudags. Sigurður og
Aldís keyrðu þá um nóttina á fæð-
ingadeildina og þegar þangað var
Eignuðust
barn sama
daginn
komið lögðu þau bifreið sinni við
hlið bíl Kristjáns og Eydísar. Dótt-
ir þeirra fæddist svo stuttu síðar,
eða klukkan hálf sjö um morgun-
inn. Tæpum þremur tímum síðar
fæddist sonur Kristjáns og Eydís-
ar. Fjölskyldurnar voru báðar enn
staddar á fæðingadeildinni í gær
þegar blaðamaður Skessuhorns átti
leið hjá og smellti af mynd af þess-
um samtaka bræðrum með börnin
sín. grþ
Mótmæltu kynbundnum launamun
Fjórar starfskonur leikskólans Hnoðrabóls í Reykholtsdal tóku af skarið og fóru í
litla kröfugöngu í Reykholti til að mótmæla kynbundnum launamun. Á myndinni
eru f.v: Sjöfn Guðlaug Vilhjálmsdóttir, Rósa Vigdís Arnardóttir, Kristín Jónsdóttir og
Dagný Vilhjálmsdóttir. Ljósm. kj.
Grundfirskar konur voru ekki eftirbátar kynsystra sinna annars staðar en þær
lögðu niður störf klukkan 14:38. Þá voru friðsæl mótmæli í miðbæ Grundarfjarðar
áður en gengið var niður á höfn. Ljósm. tfk.
Þúsundir kvenna komu saman á
Austurvelli á mánudaginn. Meðal
þeirra var hún Sveindís Helga sem
steig upp á grein til að meta
ástandið. Fjær kúrir þinghúsið.
Ljósm. hs.