Skessuhorn - 26.10.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 20168
Nýlegar
iðrasýkingar af
völdum
salmonellu
LANDIÐ: Frá því í ágúst
síðatliðnum hafa 12 ein-
staklingar greinst með
iðrasýkingu af völdum
Salmonella Typhimurium
hér á landi. Í tilkynningu
frá Matvælastofnun kemur
fram að þessi fjöldi er tals-
vert umfram það sem bú-
ast má við af þessari tegund
salmonellu. Flestir ein-
staklinganna hafa greinst á
suðvesturhorni landsins en
einn á Austurlandi. Þess-
ar bakteríur virðast vera af
sama stofni. „Enn er með
öllu óljóst um uppruna
þessa smits en sóttvarna-
læknir rannsakar þetta mál
í samvinnu við sýklafræði-
deild Landspítala, Mat-
vælastofnun og heilbrigðis-
eftirlit viðkomandi svæða,“
segir í frétt Mast. Árlega
greinist salmonellusýking
hjá um 40 einstaklingum
hér landi en það sem af er
þessu ári hafa rúmlega 20
einstaklingar greinst. „Á
þessu stigi er ekki tilefni
til að vara við neyslu til-
tekinna matvæla en rétt er
hins vegar að benda fólki á
skynsamlega meðferð mat-
væla og vanda matargerð
svo forðast megi sýkingu af
iðrabakteríum.“
-mm
FIMA
fundaði um
húsnæðismál
AKRANES: Á fundi bæj-
arráðs Akraneskaupstaðar í
síðustu viku mættu fulltrú-
ar frá Fimleikafélagi Akra-
ness til viðræðna um hús-
næðismál félagsins. Í dag er
staðan sú að félagið er með
aðstöðu í íþróttahúsinu við
Vesturgötu og á Dalbraut 6
en um 400 iðkendur eru hjá
félaginu. Í erindi sem sent
var bæjaryfirvöldum 1. sept-
ember sl. segir orðrétt: „Að-
staðan við Dalbraut gerði
okkur kleift að útrýma bið-
listum og auka getu iðk-
enda til mikilla muna. Hins
vegar er staðreyndin sú að
þetta er einungis bráða-
birgðalausn og gengur ekki
til lengdar. Biðlistar eru aft-
ur farnir að myndast ásamt
því að Dalbraut 6 er því
miður ekki boðlegt æfinga-
húsnæði og er á undanþágu
frá Heilbrigðiseftirliti Vest-
urlands (HEV). Einnig er
áhyggjuefni að okkar elstu
og færustu iðkendur þurfa
að sækja æfingar til ann-
arra félaga eða hætta æfing-
um vegna aðstöðuleysis.“ Þá
segir í bréfinu að Fimleika-
félagið sé tilbúið með fram-
tíðarlausn á húsnæðismálum
og var óskað eftir viðræð-
um við bæjarráð til að kynna
ákveðna lausn og þá mögu-
leika sem henni tengjast. Það
gerðu stjórnarmenn í síðustu
viku. Samkvæmt heimildum
Skessuhorns var rætt um allt
frá leigu á húsnæði sem þeg-
ar er til í bæjarfélaginu til
byggingar nýs íþróttahúss.
Ekkert hefur hins vegar ver-
ið ákveðið í þeim efnum.
-mm
Snæfellsbær
kaupir fasteign
SNÆFELLSBÆR: Snæ-
fellsbær hefur fest kaup á
helmingi efri hæðarinnar
að Kirkjutúni 2 í Ólafsvík.
Á neðri hæð hússins er Átt-
hagastofa Snæfellsbæjar og
var hæðin áður í eigu Lands-
bankans og þar á undan í
eigu Tölvuverks. Snæfells-
bær á nú allt húsið. Í frétt á
Facebook síðu sveitarfélags-
ins kemur fram að hugsun-
in á bak við þessi kaup sé
að í framtíðinni muni gefast
ýmsir möguleikar fyrir fram-
tíðaruppbyggingu í miðbæ
Ólafsvíkur. Einnig kem-
ur fram að engar ákvarðan-
ir liggi fyrir um nýtingu hús-
næðisins. „En því verður ef-
laust fundið hlutverk áður en
varir,“ segir í frétt Snæfells-
bæjar. -grþ
Eins og víða á norðan-
verðu Snæfellsnesi og
Vesturlandi öllu var úr-
hellisrigning og rok í
Ólafsvík á miðvikudag í
síðustu viku. Vindhraði
var milli 20 og 25 m/s
frá morgni og fram yfir
hádegi. Við höfnina fór
vindur upp í allt að 36
m/s þegar verst lét. Upp-
söfnuð úrkoma á hvern
klukkutíma var allt að 15
millimetrar. Mikið vatn
safnaðist því saman og
olli því meðal annars að
ár flæddu yfir bakka sína.
Meðfylgjandi mynd-
ir tók Alfons Finnsson
fréttaritari Skessuhorns
skömmu fyrir kl. 16 síð-
asta miðvikudag og sýna
þær glögglega hvernig
ástandið var í Ólafsvík
fyrir viku síðan.
kgk/ Ljósm. af.
Miklir vatnavextir í Ólafsvík
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra og Bjarni Benediktsson,
efnahags- og fjármálaráðherra stað-
festu í liðinni viku rammasamning
um rekstur og þjónustu hjúkrun-
arheimila í landinu. Samningsaðil-
ar eru Samtök fyrirtækja í velferðar-
þjónustu og Samband íslenskra sveit-
arfélaga. Þetta er stærsti samningur
um heilbrigðisþjónustu sem Sjúkra-
tryggingar Íslands hafa gert, en þess
er vænst að alls 46 hjúkrunarheim-
ili gerist aðilar að samningnum með
samtals 2.516 hjúkrunar- og dvalar-
rými. Markmið samningsins er að
tryggja góða þjónustu á heimilinum,
auka gegnsæi greiðslna fyrir veitta
þjónustu og bæta eftirlit. Framlög
ríkisins til rekstrar hjúkrunarheimila
verða aukin um 1,5 milljarð króna.
Hingað til hafa flest hjúkrunar-
heimili landsins verið rekin fyrir dag-
gjöld sem ríkið hefur greitt án samn-
ings við heimilin. Ríkisendurskoð-
un hefur ítrekað hvatt stjórnvöld til
að gera samninga við öll hjúkrun-
arheimili þar sem fram komi skil-
greining á verði þjónustunnar ásamt
kröfum um magn hennar og gæði.
Samningurinn sem nú liggur fyrir er
heildstæður rammasamningur sem
Sjúkratryggingar Íslands standa að í
samræmi við lög um sjúkratrygging-
ar. mm
Rammasamningur undirritaður
um þjónustu hjúkrunarheimila