Skessuhorn


Skessuhorn - 26.10.2016, Blaðsíða 25

Skessuhorn - 26.10.2016, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2016 25 Auglýsing um kjörfund vegna alþingiskosninga Kjörfundur vegna alþingiskosninga í Grundarfirði verður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar laugardaginn 29. október 2016. Kjörfundur stendur yfir frá kl. 09:00 til kl. 22:00. Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum. Kjörstjórn Grundarfjarðar S K ES SU H O R N 2 01 6 Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit SK ES SU H O R N 2 01 6 Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit vegna Alþingiskosninga laugardaginn 29. október 2016 verður frá kl. 9:00 til kl. 22:00 Kjörstaður er í stjórnsýsluhúsinu við Innrimel í Melahverfi. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumanni fram að kjördegi. Kjósendum ber að hafa persónuskilríki meðferðis. Kjörstjórn í Hvalfjarðarsveit, Jón Haukur Hauksson, formaður Helga Stefanía Magnúsdóttir Jóna Björg Kristinsdóttir Hrútasýning fjárræktarfélaganna á Mýrum var haldin að Lækjarbugi sunnudaginn 23. október. Sýnd- ir voru 36 lambhrútar sem er sami fjöldi og árið áður. Veittar voru viðurkenningar fyrir þrjá bestu hrútana í þremur flokkum. Dóm- arar voru Jón Viðar Jómundsson og Kristbjörn Haukur Steinars- son. Í flokki kollótra var talinn bestur hrútur nr. 58 frá Lækjarbug, fað- ir Serkur 13-941. Í öðru sæti nr. 6 frá Háhóli undan Baug 10-889. Í þriðja sæti varð hrútur nr. 314 frá Leirulæk undan Helmingi. Tíu mislitir hrútar mættu þetta árið. Bestur var svartflekkóttur hrútur frá Mel nr. 29 undan Sala- mon 10-906. Annar varð golsótt- ur frá Rauðanesi III nr. 334 undan Kalda 12-950 og þriðja sætið kom í hlut grás hrúts frá Leirulæk nr. 33 undan Kornelíusi 10-945. Bestur í flokki hvítra hyrndra var hrútur frá Skiphyl nr. 6023 undan Garra 11-453. Í öðru sæti hrútur frá Háhóli nr. 453 undan Hamri 14-088 sem er ættaður frá Hesti og þriðja sætið hlaut lamb nr. 6156, faðir Klemmi 15-350 á Skiphyl. Besti hrútur sýningarinnar var svo valinn nr. 6023 frá Skiphyl og varðveita því hjónin Kristjana og Sigfús skjöldinn góða næsta árið en þau áttu líka hrútinn í þriðja sætinu. Fegurðarsamkeppni gimbra var mjög hörð, mikið aginterað og plottað. Þar var unga fólkið í mik- illi kosningabaráttu og miklu meiri en frambjóðendur til Alþingis þessa dagana, en engin þeirra lét sjá sig á sýningunni. Þrjár gimbr- ar stóðu efstar og jafnar með ellefu atkvæði hver. Lífland styrkti sýn- inguna og gaf vörur sem fyrirtækið er með til sölu. Mýramenn fjölmenntu eins og jafnan áður og fóru glaðir heim með góða ræktunargripi sem von- andi stuðla að betra verði á sauð- fjárafurðum á næstu árum. Bestur kveðjur, Guðbrandur Guðbrandsson á Staðarhrauni. Hrútasýning á Mýrunum Stoltir eigendur með efstu hrútana í hverjum flokki. Ljósm. Guðrún Sigurðardóttir. Grillveisla var haldin í Dalabúð á laugardagskvöldinu þar sem verðlaun voru svo afhent. Kátir piltar á sviðaveislu. Mikil keppni í gangi. www.smaprent.is - s: 823-5827 LITIR: www.smaprent.is | smaprent@smaprent.is 2.900 ISK LITIR: 1.480 ISK 2.900 ISK LITIR: www.smaprent.is | smaprent@smaprent.is 2.900 ISK LITIR: 1.480 ISK 2.900 ISK

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.