Skessuhorn - 26.10.2016, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 20162
sem er um metri að þykkt og þyrfti
að standa í nokkra mánuði til að ná
fullu sígi. Hins vegar að grafa niður
á burðarhæfan botn og nota allt að
2,5 metra þykka fyllingu. Í samráði
við Eflu var síðari kosturinn valinn
og grafið verður niður á burðarhæf-
an botn, jarðvegsskipt í götunni og
hún síðan malbikuð.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir að tilboð í verkið lægi fyrir um
miðjan nóvembermánuð en vegna
tafa sem orðið hafa við hönnunar-
vinnuna standast þær áætlanir ekki.
„Hönnun er enn í gangi, hún hef-
ur því miður tafist og ljóst að henni
verður ekki lokið fyrr en seinni part
nóvembermánaðar,“ segir Sigurður
Páll Harðarson, sviðsstjóri skipu-
lags- og umhverfissviðs, í samtali við
Skessuhorn. „Stefnt er að því að til-
boð liggi fyrir fyrri part desember-
mánaðar,“ bætir hann við.
Upphaflega var gert ráð fyrir því
að endurgerð Vesturgötu yrði lokið
á fyrri hluta næsta árs en nú er ljóst
er að svo verður ekki. Sigurður Páll
vonast til að verkið geti hafist í mars,
ef veður leyfir. Sigurður Páll telur þó
að verklok eigi ekki að tefjast mikið.
„Líkur eru á að byrjun verks verði í
mars á næsta ári, en það fer eftir tíð-
arfari, og að framkvæmd verði lokið
um mitt ár 2017,“ segir hann.
Einstefna milli Stillholts
og Háholts
Samhliða framkvæmdum verða
lagnir sem liggja í götunni endurnýj-
aðar, eða endurbættar þar sem það á
við. Ekki er gert ráð fyrir neinu jarð-
raski á lóðum húsa, en komi til þess
verður haft samband við eigendur.
„Reynt verður eftir fremsta megni
að lágmarka óþægindi íbúa vegna
framkvæmdanna en nánari upplýs-
ingar verða sendar eigendum þegar
nær dregur,“ segir í dreifibréfi sem
bráðlega verður sent íbúum á fram-
kvæmdasvæðinu.
Þá hefur verið ákveðið að þrengja
Vesturgötu og hafa einstefnu milli
Stillholts og Háholts þar til fram-
kvæmdir hefjast. Er það talið nauð-
synlegt til að létta á umferð um göt-
una. Aðspurður kveðst Sigurður Páll
vænta þess að kaflinn verði gerður að
einstefnu í næstu viku. kgk
Nú þegar vetur konungur mætir á svæð-
ið og minnir á sig er ekki úr vegi að minna
vegfarendur á að undirbúa bifreiðar sínar
undir komandi kuldatíð. Það er að ýmsu
að huga, svo sem dekkjaskiptum, að fylla
á rúðupissið og að gæta þess að hafa
sköfu í bílnum til að vera viss um að sjá vel
til allra átta þegar frysta tekur.
Á fimmtudag verður vestlæg átt, allhvöss
um tíma sunnan til. Skúrir eða él í flest-
um landshlutum en úrkomulítið verður á
suðausturlandi. Hiti 0 til 6 stig, mildast um
landið sunnanvert. Á föstudag verður suð-
vestan kaldi með éljum en hægari og létt-
skýjað austanlands. Hiti 0 til 5 stig. Á laug-
ardag spáir allhvassri sunnanátt austan-
lands með rigningu en norðaustanátt um
landið vestanvert og fer yfir í slyddu eða
snjókomu norðvestanlands. Því gæti orð-
ið tvísýnt með flutning kjörgagna á taln-
ingarstað hér í Norðsvesturkjördæmi.
Á sunnudag er útlit fyrir nokkuð hvassa
norðvestanátt og snjókomu eða slyddu
um landið norðanvert en úrkomulítið
verður sunnan til. Á mánudag lítur út fyrir
vestlæga átt og þurrviðri.
Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns:
„Hvernig verð þú frítíma þínum?“ 19%
svarenda segjast verja frítímanum með
fjölskyldunni. 15% horfa á sjónvarp en
11% segjast tala við sjálfan sig. Einungis
7% svarenda lesa bækur í sínum frítíma
og 6% segjast verja honum í að hugsa.
Fæstir nýta frítímann í að stunda íþrótt-
ir eða líkamsrækt eða einungis 3%. Lang-
flestir segjast gera allt ofangreint í frítíma
sínum, eða 30% svarenda. 8% svarenda
segjast ekki gera neitt af ofangreindu í
sínum frítíma.
Í næstu viku er spurt:
„Er slysavörnum nægjanlega
sinnt hér á landi?“
Konur eru Vestlendingar vikunnar, bæði
fyrir og eftir klukkan 14:38.
Til minnis
Veðurhorfur
Spurning
vikunnar
Vestlendingur
vikunnar
Húsbíllinn lagðist
á hliðina
Sex umferðaróhöpp urðu í
umdæmi Lögreglunnar á Vest-
urlandi í liðinni viku. Allir hlut-
aðeigandi sluppu án teljandi
meiðsla frá þessum óhöppum,
að því best er vitað, enda fólkið
með öryggisbeltin spennt. Í dag-
bók lögreglu kemur m.a. fram að
erlend hjón, sem voru á húsbíl,
leituðu skjóls undir Brekkufjalli
í Borgarfirði í óveðrinu sl. föstu-
dag. Fengu þau inni í sumar-
húsi og gistu þar um nóttina og
komu húsbílnum í skjól við hús-
ið en í honum þorðu þau ekki að
gista því hann lék á reiðiskjálfi.
Það gekk á með vindhviðum um
nóttina og þegar þau litu út um
morguninn þá sáu þau hvar hús-
bíllinn hafði fokið frá húsinu og
lent á hliðinni neðan við veg-
slóða. „Mörgum finnst undarlegt
að verið sé að leigja út húsbíla og
hjólhýsi til erlendra ferðamanna
á þessum árstíma þegar Íslend-
ingar eru flestir búnir að koma
sínum húsbílum, hjólhýsum og
fellihýsum í öruggt skjól fyrir
veðri og vindum,“ segir Theó-
dór Þórðarson yfirlögreglu-
þjónn hjá LVL.
-mm
Betra að nota
bremsuna -
þegar þarf!
VESTURLAND: Lögreglunni
á Vesturlandi var í liðinni viku
tilkynnt um einkennilegt akst-
urslag jeppa sem ekið var að
sunnan. Strax og sást til jeppans
kom í ljós að ekki var allt með
felldu með aksturinn. Jeppanum
var ekið mjög hægt og rykkjótt
og stundum var hann alveg út
í kanti. Þegar náðist að stöðva
bílinn, sem gerðist eftir nokkr-
ar tilraunir, kom í ljós að í hon-
um voru tvær asískar konur sem
voru í lagi að öðru leyti en því að
þær kunnu ekkert á bílinn. Eftir
örnámskeið hjá lögreglunni um
hvernig aka eigi sjálfskiptum bíl
þá fóru þær aftur af stað og ók
lögreglan á eftir þeim. Skömmu
síðar voru þær stöðvaðar aft-
ur og þeim bent á að betra væri
að standa ekki á bremsunni þeg-
ar ekið væri áfram. Að leiðbein-
ingum loknum var þeim leyft að
halda áfram og var þeim óskað
góðrar ferðar en þær höfðu leigt
bílinn í Reykjavík þaðan sem
þær voru að koma. Að sögn lög-
reglu bárust ekki frekari tilkynn-
ingar um ferðir þessara kvenna
um þjóðvegi landsins.
-mm
Sótt var um stofnframlög úr ríkis-
sjóði til að byggja eða kaupa 104
Leiguheimili á landsbyggðinni,
þar af sex á Akranesi, en 467 á höf-
uðborgarsvæðinu. Samtals sóttu
14 aðilar um framlög til bygging-
ar eða kaupa á 571 íbúð á 28 stöð-
um í 17 sveitarfélögum. Á Akra-
nesi var það Brynja, hússjóður Ör-
yrkjabandalagsins, sem óskaði eft-
ir því að geta byggt eða keypt sex
íbúðir.
Leiguheimilin svokölluðu byggja
á nýlegu lagafrumvarpi Eyglóar
Harðardóttur, félags- og húsnæð-
ismálaráðherra. Eru Leiguheim-
ilin nýtt húsnæðiskerfi að danskri
fyrirmynd sem ætlað er að verða
langtíma valkostur fyrir almenn-
ing á leigumarkaði þar sem leigu-
greiðslur verða lægri en á almenn-
um markaði. Eru íbúðirnar ætlað-
ar tekjulágum fjölskyldum og til að
sækja um slíkar íbúðir mega mán-
aðartekjur heimilisins ekki vera yfir
ákveðnum mörkum. Tekjumörkin
fyrir einstætt tveggja barna foreldri
eru núna 593.584 kr., fyrir hjón
eða sambúðarfólk með tvö börn
751.917 kr. og 949.750 kr. fyrir
hjón eða sambúðarfólk með fjög-
ur börn. Tekjumörkin verða endur-
skoðuð árlega.
„Þess er ekki langt að bíða að
fyrstu íbúarnir í nýju húsnæðis-
kerfi flytji inn í svonefnd Leigu-
heimili,“ segir í tilkynningu. „Bú-
ist er við að fyrstu íbúðirnar verði
tilbúnar á næsta ári.“
Hægt er að kaupa íbúðir og
færa inn í Leiguheimilakerfið
eða byggja nýtt íbúðarhúsnæði. Í
flestum tilfellum þarf þó að reisa
Leiguheimilin frá grunni. „Enda
er víða lítið framboð af hagkvæmu
húsnæði og eina af kröfunum fyrir
úthlutun stofnframlags er að hús-
næðið sé byggt á hagkvæman og
hugvitsamlegan hátt,“ segir í til-
kynningu.
Hluti Leiguheimilanna verður
laus til umsóknar fljótleg en hluti
gæti komist í gagnið eftir um eitt
og hálft ár, eins og áform Almenna
íbúðafélagsins gera ráð fyrir.
kgk
Leiguheimili gætu risið á Akranesi innan tíðar
Eins og Skessuhorn greindi frá fyrr
í haust stendur til að endurbyggja
Vesturgötu á Akranesi og hluta gang-
stétta, milli Stillholts og Merkigerð-
is. Var verkfræðistofan Efla fengin
til að meta ástand steypunnar í göt-
unni, þá sér í lagi undirlag hennar og
grunnvatnsástand. Gatan var fræst í
sumar og ekki talið skynsamlegt að
fara beint í malbikun hennar fyrr en
undirlag götunnar hefði verið kann-
að frekar. Niðurstöður þeirra athug-
ana voru að tvær leiðir væru færar til
að byggja götuna upp að nýju; annars
vegar að með fljótandi jarðfyllingu,
Endurgerð Vesturgötu á að hefjast á vormánuðum
Á fundi byggðarráðs Dalabyggð-
ar 13. október sl. var lagður fram
tölvupóstur frá Orkufjarskiptum,
dagsettur 19. september 2016. Þar
er sveitarfélaginu tilkynnt af stjórn
fyrirtækisins að það hafni tilboði
Dalabyggðar um kaup á heim-
taugum ljósleiðara á Skógarströnd
og Hörðudal, en fyrirtækið lagði
sem kunnugt er stofnstreng ljós-
leiðara um Skógarströnd að fengn-
um stuðningi frá Fjarskiptasjóði.
„Byggðarráð harmar ákvörðun
stjórnar fyrirtækisins sem er í opin-
berri eigu og hefur lagt stofnstreng
um Skógarströnd með stuðningi
Fjarskiptasjóðs. Um er að ræða
mikið hagsmunamál fyrir íbúa og
óþolandi er að lagðir séu stofn-
strengir um lönd án þess að hirða
um að tengja þá byggð sem farið er
hjá,“ segir í fundargerð.
Í framhaldi samþykkti byggðar-
ráð að fela sveitarstjóra að kanna
hug annarra fjarskiptafyrirtækja á
samvinnu um ljósleiðaravæðingu
Skógarstrandar og Hörðudals á
sömu forsendum.
kgk
Segja óþolandi að lagðir séu stofn-
strengir án þess að tengja byggðina
Vesturgata á Akranesi, horft í átt
gatnamótunum við Stillholt. Gert er
ráð fyrir að gatan verði þrengd og ein-
stefna höfð milli Stillholts og Háholts
þar til framkvæmdir hefjast, til að létta
á umferð um götuna.
Ástand götunnar er víða mjög slæmt og á allnokkrum stöðum stendur steypu-
styrktarjárnið upp úr götunni.